Langur tími er liðinn frá því ég bloggaði síðast og ég hef spurt sjálfan mig hvar á ég að byrja þar sem af nægu er að taka. En svo þegar ég hugsaði lengra áttaði ég mig á því að við erum enn að kjást við sömu vandamálin en bara í öðrum búningi.
Ætla að byrja á fráfarandi stjórn Vorsteh-deildar. Konan mín Eydís Gréta var að klára tveggja ára stjórnarsetu í deildinni. Held ég ljúgi engu þegar ég segi að hún hafi verið lengst allra samanlagt í stjórn deildarinnar frá upphafi. Deildin var stofnuð fyrir 9.árum síðan og hefur Gréta verið í stjórn deildarinnar 5 af þeim árum.
Síðasta stjórn deildarinnar var mjög öflug, ekki bara vegna þess að Gréta var í henni heldur var þar valin manneskja í hverju rými. Ég hef því verið á hliðarlínunni síðustu tvö ár ef svo má segja og orðið vitni að þeirri gríðarlegu vinnu sem stjórn þarf að leggja á sig í vinnu fyrir okkur hin.
Eitt lítið dæmi en samt svo stórt. Stjórnarmaður HRFI dregur upp úr rassvasanum tillögu á stjórnarfundi félagsins og leggur fyrir fundinn til samþykktar. Þetta gerir hann þegar ekki allir fastamenn í stjórn sitja fundinn. Varamaður sem tengdur er honum miklum vináttuböndum situr fundinn í stað formanns félagsins. Auðvitað er tillagan samþykkt og gríðarleg vinna fer af stað hjá stjórn Vorsteh-deildar og síðar einnig FHD til að snúa ofan af vitleysunni.
Vinna og tími sem stjórnarmeðlimir hefðu svo sannarlega viljað eyða í eitthvað annað skemmtilegra. Það er algjörlega út í hött að persóna í stjórn HRFI geti nýtt sér tækifærið til að fá eitthvað bull sem honum er í hag samþykkt þegar ekki allir fastamenn í stjórn eru viðstaddir. Það ætti í raun að vera í lögum félgasins að þegar reglur eru samþykktar verði formaður að vera á fundinum þar sem hann er sá eini sem kosinn sérstaklega af félagsmönnum.
Til að taka eitt dæmi enn þá nefni ég reglur sem samþykktar voru og hafa bein áhrif á deildirnar án þess að þær hafi nokkra hugmynd um verknaðinn. Já spáið í því, deildirnar lesa það í fundargerð HRFI að búið sé að setja hina og þessa regluna yfir deildirnar án nokkurar aðkomu eða vitneskju þeirra. Ekkert er unnið í sameiningu með deildunum heldur eru reglur keyrðar í gegn með handafli.
Í gang fer þá aftur eins og áður sagði gríðarleg vinna hjá stjórnum deildanna til að snúa ofan af vitleysunni með tilheyrandi tíma og fyrirhöfn!
Stjórn Vorsteh-deildar hefur staðið sig gríðarlega vel varðandi þessi mál eins og sjá má á síðu deildarinnar. Stjórn hefur sett öll sín samskipti við stjórn HRFI á netið sem ég vona að aðrar deildir taki einnig upp. Það vantar reyndar svör HRFI á móti en ég vona að þau komi einnig á síðuna. Við erum í opnu félagi og eigum því skýlausan rétt á að vita hvað stjórnir okkar deilda eru að vinna að hverju sinni og þá um leið viðbrögð félagsins okkar. Þá sjáum við hin hversu gríðarleg vinna það er að slást við félagið okkar. Já það er má ólíkindum að við skulum þurfa að slást við félagið til að fá sjálfsögð málefni í gegn.
Og þegar þetta er skrifað bárust mér þær fréttir til eyrna að enn einn skósveinninn ætli að bjóða sig fram til stjórnar FHD! Það er greinilegt að enn eru til skósveinar þó þeim fari fækkandi sem tilbúnir eru að þrífa skít undan skóm þeirra sem stappa í aurnum !!
En þetta er nú bara lélegur formáli hjá mér af því sem koma skal og tek ég fram að þetta eru mínar skoðanir.
En ég á orðið svo mikið af myndum, kommentum og rökstuðningi sem gerir félagið í besta falli kjánalegt í samskiptum sínum við félagsmenn þess. Næst tek ég líklega fyrir siðarelgur dómara sem samþykktar voru fyrir hönd HRFI meðal annars af dómaranum sjálfum sem að þeim stóð. Já hann setti siðareglur um sjálfan sig og samþykkti þær svo í stjórnarsetu sinni í HRFI.
Vá ég hló næstum því upphátt þegar ég skrifaði þetta.
En að öllu gríni slepptu þá var búið að þýða norksu reglurnar af öðrum aðila sem góð sátt var um. Áður en sá aðili kláraði að fínisera reglurnar (bara staðfæra orðaval) hætti hann og dómaramenntaður maður tók við ásamt vini/vinkonu sinni. Þau áttu að klára að fínisera og leggja svo til samþykktar stjórnar HRFI. Þegar til kom var búið að taka út heilu setningarnar sem ekki hentuðu viðkomandi og bæta öðru inn í sem engin sátt varð um.
Afleiðingin varð meðal annars sú að stjórn HRFI fundaði um málið með fulltrúum deildanna og því máli er enn ólokið. Þetta er enn eitt dæmið þar sem dýrmætum tíma aðila er stolið vegna eins manns. Hver hefði ekki viljað vera að eyða tíma sínum í eitthvað annað en að sitja sérstakan fund vegna vanæfs stjórnarmanns HRFI. Og enn á eftir að eyða tíma í bullið og það besta er að þessi aðili er þegar orðinn vanhæfur ef tekið er mark á hans eigin siðareglum. Þessar reglur tóku gildi síðustu áramót svo hann var ekki lengi að fá á sig vanhæfi.
En það jákvæða er þó að ný stjórn Vorsteh-deildar og einnig stjórn deildar Enska Setans eru öflugar og geta spyrnt við hælum. Hvað verður með stjórn FHD verður að koma í ljós eftir morgundaginn þegar ný stjórn hefur verið kosin. En eftir að hafa heyrt áðan af framboðsræðu sem kom fram á facebook síðu deildarinnar er ég ekkert of bjartsýnn.
En meira um bullið í næsta bloggi ásamt myndum og kommentum því til rökstuðnings ....