Þetta er nokkuð langt blogg hjá mér enda mikið í húfi. Skora samt á þig ef þú hefur áhuga á málinu að lesa til enda. Margt sem kemur fram sem er mjög áhugvert. Það tekur samt ekki nema nokkrar mínútur að lesa til enda.
Leyfi mér vitna í fréttina og er eftirfarandi tekið af visi.is en þar segi Jón
Tilvitnun.
„Jón Steinar segir að þar sé kominn hópur sem stjórni Hæstarétti og ráði því hverjir koma nýir inn. „Viljum við hafa þetta svona? Að það sé einhver klíka búin að koma sér fyrir í dómskerfinu sem ákveður alla nýja dómara inn í hópinn?“ spurði Jón.
Tilvitnun líkur.
Já þetta hljómar kunnuglega fyrir marga. Það má vel snúa þessu yfir á fuglahundadómara og nánast hvaða dómarastétt sem er. Ég hef í mörg ár bent á klíkuskapinn hjá ákveðnum aðilum varðandi aðkomu þeirra að okkar málum. Aðilar sem í mörg ár hafa með geðþótta ákvörðunum ráðið því hvort þú eða ég meigum þroska okkur áfram í okkar áhugamáli. Ráðið því hvort við meigum starfa á viðburðum tengdum HRFI, ráðið því hvort við meigum læra til dæmis til dómara eða sitja í stjórnum eða nefndum á vegum HRFI !
Pétur Alan hefur oftar en ég og fleiri viljum muna haft áhrif á framgöngu margra okkar sem vildum gera meira. Hann hefur nokkrum sinnum komið í veg fyrir að áhugasamir einstaklingar sem uppfylla öll skilyrði og mjög rúmlega það fái að læra til dómara.
Jafnvel fólk sem uppfyllir skilyrðin margfalt meira en þegar hann sjálfur fékk að læra. Klíkuskapurinn er mjög sterkur sem sannast ef horft er til baka. Nýliðar koma inn í hópinn fullir orku og jákvæðni tilbúnir að læra og leggja sitt af mörkum. En hvar er allt þetta fólk sem hefur í gegnum árin komið inn og viljað taka þátt? Af hverju hverfur þetta fólk á braut og lætur ekki sjá sig aftur. Svo ef sagan er tekin og horft fram til dagsins í dag sést glögglega að þetta eru alltaf sömu aðilarnir ár eftir ár sem eru í fararbroddi.
Nú viðurkenni ég vel að ég er ekki inni í öllum deildum HRFI kannski er þetta svona víðar og í öðrum deildum. Kannski er það ástæðan fyrir því að fólk vill ekki taka þátt og leggja sitt af mörkum fyrir félagið okkar HRFI. Félag sem telur á í það minnsta vel á þriðja þúsund félagsmanna og það eru vandræði sýningu eftir sýningu að manna svo vel sé!
En ég þekki vel innviði deilda sem halda utan um grúppu 7 hunda og þeirra aðila sem haldið hafa um taumana þar síðustu 10 -15 árin. Þeir aðilar neita að líta í eigin barm þegar rætt er um af hverju nýliðar séu svo fáir þrátt fyrir mikla aukningu hunda í deildunum og þeir nýliðar sem byrja stoppa yfirleitt stutt við.
Já það er ekki að ástæðu lausu sem þessi fámenni hópur sem öllu ræður er kallaður litli rauðvínsklúbburinn.
En höldum aðeins áfram með Jón Steinar og það sem hann sagði.
Tilvitnun.
„Jón Steinar vill líka að hæstaréttardómurum verði bannað að sitja í nefndum á vettvangi stjórnsýslunnar. „Mér finnst það fáránlegt að hæstaréttardómarar sitji í slíkum nefndum,“ sagði Jón Steinar. Hann benti á áratugalanga setu hæstaréttardómara í réttarfarsnefnd.“
Tilvitnun líkur.
Þetta eru áhugaverð ummæli frá Jóni Steinari. Þetta hef ég bent margoft á í gegnum árin. Pétur Alan hefur til dæmis verið í stjórn fuglahundadeildanna og setið í dómararáði á sama tíma, gott ef hann er ekki formaður þess ráðs.
Pétur gat þá komið að tillögum að breytingum á fuglahundaprófum og jafnvel staðið sjálfur fyrir breytingum í dómara ráði. Sent svo tillögurnar til fuglahundadeildanna til samþykktar. Þar mætir hann svo sjálfur og hoppar í stólinn hinu megin við borðið og opnar jafnvel sjálfur umslagið sem hann sendi frá dómararáði og leggur til við stjórn deildarinnar að samþykkja breytinguna. Já gott fólk ótrúlegt en satt!
En skoðum aðeins nefndir og ráð sem Pétur Alan situr í. Fyrst er að sjálfsögðu að nefna dómararáð sem aldrei hefur formlega verið stofnað heldur er eitthvað sem fuglahundadómara bjuggu til upp á sitt einsdæmi. Við hljótum að sjá það mjög skýrt að Pétur verður kominn í þægilega stöðu ef hann kemst í stjórn HRFI til að samþykkja eigin ákvarðanir sem hann tekur í dómararáði. Jafnvel þó hann segi sig úr ráðinu (sem ég hef ekki trú á) kemur hann til með að hafa áhrif inn um bakdyrnar.
Svo er Pétur í skoðunarnefnd sem hann var kosin í á ársfundi HRFI ef ég man rétt. Það er nefnd sem á að skoða reikninga og fjárhag félagsins. Hann hefur haft hátt um fjármál félagsins og látið að því liggja að ekki sé allt með feldu þar. Þrátt fyrir að hann hafi verið í þessari nefnd í að minnsta eitt ár hefur hann ekki komið með neitt sem staðfesta þær dylgjur hans.
Nú er ég ekki að segja að félagið okkar hefði ekki getað verið betur rekið, það hefur örugglega mátt gera miklu betur. En hafandi sagt það þá verðum við líka að taka inn í reikninginn árið 2008 það skelfilega ár. Mörg fyrirtæki fóru á hausinn og það sem verra er að allt of mörg heimili misstu allt sitt. Það er ekki afsökun fyrir slæmum fjárhag HRFI (sem ég reyndar er ekki svo vel inni í) heldur ákveðin útskýring.
Svo skulum við tala næst um Sólheimakotsnefnd sem Pétur Alan er í forsvari fyrir. Það voru reyndar kunnugleg vinnubrögðin hjá honum þegar hann fyrst gaf kost á sér í nefndina, hann byrjaði á því mjög fljótlega að segja sig úr nefndinni ásamt öllum þeim sem í henni voru.
Eftirfarandi tekið úr fundargerð frá HRFI
„Sólheimakot – úrsögn nýskipaðra félagsmanna í stjórn Sólheimakots: Tölvupóstar 3. og 4. desember. Þeir aðilar, þau Jón Ásgeir Einarsson, Pétur Alan Guðmundsson, Guðbjörg Guðmundsdóttir og Bragi Valur Einarsson, sem gáfu kost á sér í stjórn Sólheimakots sendu öll samhljóða tölvupóst sendu öll eftirfarandi samhljóða texta: Ég undirritaður hef ákveðið að taka ekki sæti í stjórn Sólheimakotsnefndar þar sem núverandi reglugerð stjórnar HRFÍ er í engu samræmi við það sem upp var lagt með.“
Já kunnugleg vinnubrögð. Það væri án gríns gaman að vita hversu oft Pétur Alan hefur gefið kost á sér í stjórnir og nefndir sem hann síðan hættir í án fyrirvara?
En þar sem ég er sagður og vill meina að rétt sé þá er ég samkvæmur sjálfum mér. Ég ætla að hrósa starfi Sólheimakotsnefndar. Það er heldur skemmtilegra að koma þar inn í dag eftir að húsið var tekið nokkuð í gegn að innan. Þó ekki hafi verið nema rifið upp parketið og veggir málaðir. Ég hefði persónuelga byrjað samt á því að laga klósettið. Karlmennirnir fara jú útfyrir og merkja eins og hver annar hundur en það er verra með dömurnar. Við erum þarna upp í sveit og ekki hægt að ætlast til þess að dömurnar fari útfyrir og láti vaða. Að ég tali nú ekki um ef einhver þarf að gera nr.2 ! En þarna er auðvelt fyrir mig að gagnrýna og kannski ósanngjörn gagnrýni. Kannski var WC nýbilað þegar ég var þarna um daginn og stutt í viðgerð.
Gott fólk og kæru félagar í HRFI er það þetta sem við viljum? Viljum við umdeildar persónur í stjórn félagsins okkar HRFI. Það er alveg á hreinu ef Pétur Alan væri að freista þess að ná endurkjöri annað kjörtímabil í röð á alþingi myndi þjóðin hafna honum vegna fyrri gjörða. Hann myndi mögulega ná inn í fyrstu tilraun en næði aldrei endurkjöri.
En hverja eigum við þá að kjósa kann einhver að spyrja sem ekki er vel inni í málum en vill nýta atkvæði sitt vel? Ég hef lagt þessa spurningu fyrir nokkuð marga aðila og fengið mismunandi svör. En merkilega oft hafa sömu nöfnin komið oftast fram í svari. Það eru eftirfrandi nöfn og tek ég skírt fram að ég þekki þessa aðila akkúrat ekki neitt.
Daníel Örn kom oft upp í umræðunni. Hann væri óumdeildur og myndi klárlega koma með ferskan blæ á starfið og hefði óbilandi áhuga. Framboðskynningu Daníels er mjög raunsæ og góð svo ekki verði sterkar að orði komist.
Einnig hef ég heyrt nafn Guðnýju Völu oft nefnt og er það sama sagt um hana, óumdeild og hefur mikinn áhuga og vilja til að starfa og stuðla að frekari framgangi félagsins okkar. Framboðskynning Guðnýjar Völu er eins og hjá Daníel mjög raunsæ.
Ok þetta er fólkið sem ég veit að margir vilja sjá í aðalstjórn félagsins en þá er eftir varastjórn.
Finnst mér nafn Eyrúnar Arnardóttur koma sterkt inn. Hún býr á landsbygðinni, er dýrlæknir og hefur unnið mikið fyrir mast. Alveg klárt að hún mun koma sterk og öflug inn fyrir okkar hönd. Auðvitað getur fjarlægðin verið til vandræða fyrir stjórnarfundi en við lifum á 21.öldinni og tæknin gerir það auðveldara en ella.
En auðvitað má ekki heldur gleyma Þórdísi Björgvinsdóttur. Hún er einnig með raunhæf markmið eins og sjá má á hennar framboðskynningu. Hægt er að sjá kynningu á öllum frambjóðendum til stjórnar HRFI með því að klikka hér. Skora ég á ykkur öll að lesa kynningu allra frambjóðenda og bera þær saman.
Tek aftur sterklega fram að ég þekki þetta fólk ekki neitt og hef engra hagsmuna að gæta nema bara hagsmuna HRFI sem ég er meðlimur í. Það er heldur ekki mitt að raða fólki á lista eins og hér fyrir ofan en í einhverri röð verður það samt að vera og er það staðföst sannfæring mín að fólkið sem ég nefni hér að ofan er best til þess fallið að koma félaginu og ekki síst starfseminni í eðlilega farveg.
Aðalfundur HRFI er á morgun. Þetta verður mitt síðasta blogg varðandi aðalfundinn hjá okkar ágæta félagi. Ég bið þig og þig og þig að mæta og við skulum reyna að sameinast um góða stjórn í okkar ágæta félagi. Mín sannfæring og trú er sú að Pétur Alan er ekki rétti aðilinn fyrir okkur til að hafa rétt áhrif á gang mála. Undanfarið hef ég bara verið að blogga um brot af því sem ég tel rökstyðja að hann eigi ekkert erindi í stjórn.
Ég trúi því og treysti að við berum gæfu til þess að kjósa okkur stjórn sem hugsar fyrst og fremst um félagið og ber hagsmuni hundanna okkar nr.1 fyrir brjósti. Við viljum ekki fólk sem er í persónulegu stríði og á í illdeilum við félagsmenn sem stjórnast af annarlegum hagsmunum sem ekkert á skilt við hundarækt.
Já gott fólk nú er tækifærið til að snúa aftur inn á réttan veg og treysta réttu, góðu og óumdeildu fólki til góðra starfa fyrir okkar hönd.
Ég er búin að blogga meira og minna síðan árið 2011 og má segja að bloggið mitt sé uppfullt ef sögu og heimildum. Það er eiginlega ótrúlegt að stikla á stóru yfir þann tíma og nánast alltaf mjög áhugaverður lestur.
Skora til dæmis á þig lesandi góður að lesa yfir blogg mitt frá í febrúar árið 2011. Það er nöturleg staðreynd að við erum nánast á sama stað. Og ótrúlegt en satt þá er Pétur í því bloggi fyrir rúmum fjórum árum síðar í aðalhlutverki. Þú getur lesið það blogg hér og taktu eftir að þetta er bara eitt af mörgum bloggum á þeim tíma.
Svoldið skondið að ef þú googlar Pétur Alan Guðmundsson þá kemur blogg frá mér nr.4 í röðinni.
Að lokum ætla ég að enda þetta með því að setja inn umræðu sem fór fram á facebook síðu Péturs Alans fyrir 4.árum síðar. Þarna er verið að gagnrýna fundargerð frá stjórnarfundi HRFI sem fór að virðist ósamþykkt á netið. Í þessari fundargerð var engu logið heldur kom bara skýrt fram hvernig ákveðnir aðilar haga sér á stjórnafundum. Það var sem sagt ekki búið að fegra fundargerðina. Þessir aðilar þoldu ekki að sett væri á netið hvernig hluti stjórnar HRFI starfði í raun og veru.
Það er með ólíkyndum að lesa ummæli Péturs Alans þar sem hann var á þessum tíma í trúnaðastörfum fyrir HRFI eins og hann er enn í dag. Takið sérstaklega eftir þegar hann tala um vitjunartíma fólks og svo fr. Hann er ómyrkur í máli og dregur ekkert undan sem kemur á óvart (eða hitt þó heldur) þar sem hann hefur kvartað sáran undan mínum skrifum. Kommnet Péturs minna mig reyndar á sjálfan mig á stundum þegar ég skrifa um Pétur Alan. Einnig að þarna er hluti stjórnar HRFI að úttala sig opinberlega gegn félaginu og samstarfsfólki sem það vinnur með. Þurfum við meiri staðfestingu á því að kominn sé tími að skipta út fyrir óumdeilt fólk?
Já það er nefnilega þannig þegar upp er staðið að við gætum á endanum þurft að standa við orð okkar og gjörðir.
Áfram HRFI ............... góðar stundir.
Fyrst kemur formáli sem er póstur sem mér var sendur árið 2011. Að sjálfsögðu birti ég þetta að fengnu leyfi sendanda sem ekki kemur farm hver er. Enda er það ekki aðalatriði málsins heldur það sem fram fór á facebook síðu Péturs Alans um málið og ummæli sem þar voru látin falla.
Póstur til mín árið 2011. tilvitnun.
„Sæl Kjartan
Ég var að lesa bloggið þitt og var strax sammála því sem þú hafðir skrifað og hef síðan verið að lesa bloggið þitt. Bara til að sýna hvernig þessir menn eru ekki sjálfir sér samkvæmir þá fékk ég sendan neðangreindan póst sem tekin var á facebooksíðu Péturs Alans þar sem hann úttúðar starfi félagsins og fleira alveg eins og hann er að kvarta sjálfur yfir hvernig skrifað er um hann sem dómara félagsins!
Og ekki nóg með það heldur er Anna og Delia stjórnarmenn að ræða opinberlega um það sem stjórn er að taka fyrir. Ég sendi þetta á þig þar sem þú hefur verið að blogga um þessi mál undanfarið.
Svona kom pósturinn til mín!
„Subject: Alvarlegt að sjá 3 af 5 stjórnarmönnum félagsins haga sér svona á opinberum vettvangi, ekki skömminni skárri en þeir aðilar sem þeir voru að kvarta yfir.
Ég er bara reiður finnst þetta ekki sæma stjórnarmönnum þau eru ekki vitund skárri en þessir fuglahundagæjar sem þau eru að kvarta yfir.
Þarna er 3 stjórnarmenn að taka þátt í einelti og eyðileggingarstarfsemi já ég er bara fokvondur !!
Innskot. Það fylgdi því miður ekki hver átti fyrsta kommentið hér að neðan en það skiptir reyndar ekki öllu máli. En sjáið hverjir setja like við færsluna!
Sorglegt að lesa uppkastið að fundargerð stjórnar HRFÍ sem var sett á netið þrátt fyrir að meirihluti stjórnar hafi ekki samþykkt hana enda fundurinn ókláraður. Þvílík vinnubrögð sem fara þarna fram og eru ekki fullorðnu fólki í félaginu okkar sæmandi. Sorglegt að sjá hvernig reynt er að eyðileggja félagsandann og brjóta niður sjálfboðastarfið sbr. bréf framkvæmdastjóra til Mosfellsbæjar varðandi Sólheimakot. Nýtt fólk í stjórn reynir að fá upplýsingar um hvað er í gangi en fær engin svör. Er verið að reyna að fela eitthvað?
Ólöf Elíasdóttir , Anna María Flygenring , Brynja Tomer og 25 aðrir kunna að meta þetta.
Svava Garðarsdóttir
Ertu með link í umrædda fundargerð ?
9. nóvember kl. 22:36 · Líkar þetta · 1
Pétur Alan Gudmundsson
Ég veit þó að fundurinn var ekki kláraður og óskum þar um hefur ekki einu sinni verið svarað af formanni, drög að fundargerð ekki borin undir stjórnarmenn en samt sett á netið......
9. nóvember kl. 22:36 · Líkar þetta · 1
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Mjög undarleg vinnubrögð í alla staði ....... myndi aldrei líðast í minni deild alla vega ....
9. nóvember kl. 22:37 · Edited · Líkar þetta · 2
Pétur Alan Gudmundsson
Farðu á Hundaræktarfélag Íslands á FB Svava og þú sérð hana þar. Meira að segja eru birtir afar viðkvæmir póstar þar sem hefði alveg mátt hafa hægt um. Það er búið að laga í einni fundargerð en ekki annarri. Sýnir bara bullið sem er í gangi....
9. nóvember kl. 22:38 · Líkar þetta · 2
Pétur Alan Gudmundsson
Virðist vera vísvitandi sem erindum frá nýju stjórnarmönnunum eru settir neðst í dagskrá fundar, fundi "frestað" og svo á nýr framkvæmdastjóri HRFÍ að svara þeim eftir að núverandi hleypur frá ábyrgðinni. Ég bara spyr: Er verið að fela eitthvað?
9. nóvember kl. 22:45 · Líkar þetta · 2
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Pétur það er spurning sem margir hafa spurt sig lengi ....
9. nóvember kl. 22:46 · Líkar þetta · 3
Olgeir Gestsson
Þetta er bara nákvæmlega það sem gerist þegar ónytjungar og dragbýtar hafa fengið að valsa um í stjórn þessa félagsskapar. Ég gekk í þennan félagsskap 1997, þá var núverandi formaður gjaldkeri félagsins. Hún var útbrunnin og gagnslaus þá. Það þarf ekki neitt voðalega frjótt ímyndunarafl til að sjá hversu mikið gagn er af henni í dag. Ekki er mín reynsla af henni sú að hún hafi skánað, því miður 10. nóvember kl. 00:01 · Líkar þetta · 3
Pétur Alan Gudmundsson
Margt hefur verið unnið í gegnum árin, sumt gott og annað miður gott. Það sem er þó slæmt er hvað fólk reynir að ríghalda í stöðurnar, vitandi að það er að gera rangt og þá er reynt að sverta andstæðinginn og eyðileggja í stað þess að byggja upp. Þegar fólk er valið í stjórn, hvort sem við eigum þátt í því eður ei, þarf að standa með því svo framarlega sem það fólk sé að sinna þeim störfum sem það var kosið til, félaginu til hagsbóta.
10. nóvember kl. 00:21 · Líkar þetta · 3
Guðrún Hafberg
Pétur hvað félagsstarf er verið að eiðileggja...ég sem hélt að það væri B'UIÐ að eiðileggja það?????????
10. nóvember kl. 06:58 · Líkar þetta · 1
Delia Howser
Ágætu félagar - við látum ekki eyðileggja félagið, því félagið er jú fólkið = við! Fyrir mína parta er ég tilbúin í þau verkefni sem mér var treyst fyrir og ég er þrjóskari en andskotinn. Nú liggur fyrir að ráða inn nýjan framkvæmdastjóra og með nýju fólki koma nýjar áherslur sem við vonum að verði félaginu til hagsbóta á þessum erfiðu tímum. Við hin höldum áfram að vinna félaginu vel og byggja upp flott félag.
10. nóvember kl. 07:27 · Líkar þetta · 8
Guðrún Hafberg
Er framkvæmdarstjórinn að hætta??????????
Delia Howser
Já Valgerður hefur sagt upp störfum
10. nóvember kl. 09:02 via mobile · Líkar þetta · 1
Pétur Alan Gudmundsson
Takk Delia hef fullt traust á þér og nýja fólkinu í stjórninni sem þorir og vill bæta félagið okkar í stað þess sem getur ekki sætt sig við breytta tíma og opnara félag. Veit að meginþorri félagsmanna er til í þetta en þorir ekki að tjá sig af ótta við að lenda úti í kuldanum eins og hefur verið undanfarin ár og hvert leiðir það? Jú til færri og færri sjálfboðaliða og minna félagsstarfs en vonandi eru nýjir tímar að koma sem leiða til bættara og opnara félags. Ég hef ekki skilið þessa þöggun á mörgu sem félagsmenn vilja fá svör við. Hafið allt uppi á borðinu ekki undir því eins og hefur verið þá fáið þið nýja fólkið í stjórn þá sem ekki þora í dag til að koma fram.
10. nóvember kl. 09:31 · Líkar þetta · 3
Guðrún Hafberg hvenær hættir hún broskall
10. nóvember kl. 09:32 · Líkar þetta · 1
Pétur Alan Gudmundsson
Lestu fundargerðina Guðrún. Þar kemur uppsögnin fram. Furðulegt hvað framkvæmdastjóri á mikið inni af sumarleyfi þegar skrifstofan er lokuð í fleiri vikur á sumrin+jól og páska. Það er öruggt að eitthvað starf þurfi að vinna innan skrifstofu á þeim tíma en samt............ Stjórn á að fá að sjá vinnutímaskýrslur því eitthvað hlýtur að vera til um störf og hvenær framkvæmdastjóri er í fríi fyrst þetta liggur fyrir. Samt sem áður held ég að það skipti engu máli enda bakkar vinkonan allt upp. Var ráðningarsamningur framkvæmdastjóra borinn undir stjórn og hvenær þá? Væri gaman að sjá þá fundargerð því enginn sem ég hef talað við innan stjórna undanfarinna ára kannast við það að hafa séð eða komið að ráðningu.
Guðríður Magnúsdóttir-Gígí
Átti ekki að gera ráðningarsamning v framkvæmdarstjóra eftir síðasta aðalfund? hann er kanski munnlegur milli V & J ?
Guðrún Hafberg
ææ talvan mín neitar að opna svona skjöl,en ég man á sínum tíma að það var formaðurinn sem ákvað þessa stöðu og átti staðan að vera til eins árs ,,,,síðan áttti að endurskoða stöðuna eftir þann og fékk núverandi framkvæmdastjóri árs námsfrí í sinni vinnu til að geta gegnt framkvæmdastjórastöðinni og tekið til á skrifstofunni( sem fólst í því að losasig við ákveðna starfsmenn) sumarfrí,vetrarfrí, frídaga eftir allar sýningar frí til að sinna goti og endalaus frí ,,þessi staða verður örugglega mjög eftir sótt með öllum þessum fríindum .....góðir hlutir gerast enn :
10. nóvember kl. 10:14 · Líkar þetta · 4
Pétur Alan Gudmundsson
Já og svo er eitt það grátlegasta, frkv.stjóri er í fríi alla föstudaga til að mæta vinnu á sýningum á meðan að allir hinir vinna við sýningar í sjálfboðavinnu fyrir félagið, enn á ný sorglegt
10. nóvember kl. 10:18 · Líkar þetta · 2
Guðrún Hafberg
Huggum okkur við það að það hljóta að vera bjartari tímar frammundan hjá HRFI
Pétur Alan Gudmundsson
Já segðu Guðrún, bara ef vissir aðilar sæju að vitjunartími þeirra er kominn. Er ekki betra að fara með smá reisn í stað þess að reyna að sökkva skútunni. Það er svo merkilegt sem er sagt um nýju stjórnarmennina og fleiri til að eyðileggja þeirra tilraun til uppbyggingar á starfinu sbr. Sólheimakot. Það er sagt að það séu engir peningar til í rekstur skrifstofu þar sem það eigi að ausa peningum í kotið. Þegar rúmar 40.000 á mánuði eru þess valdandi að félagið er að fara á hausinn þá spyr ég: hvað hefur verið í gangi undanfarin ár? Við vitum þó ýmislegt en margt á eftir að koma upp á yfirborðið.
10. nóvember kl. 10:34 · Líkar þetta · 3
Brynja Tomer
Samningur um Sólheimakot hefur verið í gildi í fjöldamörg ár og samkvæmt honum ber félaginu að viðhalda eigninni. Við, þ.e. HRFÍ höfum ekki staðið við þann hluta samningsins svo sómi sé að. Hinsvegar höfum við alla tíð lagt út ákveðinn kostnað vegna Kotsins, t.d. v. vatns, sorphirðu, trygginga og þessháttar. Sá kostnaður hefur (að því er ég best veit) alltaf verið greiddur, svo það er fásinna að halda því fram að núna allt í einu bitni hann á rekstri skrifstofu. Óráðsía og vond fjárfesting er ástæða þess að félagið er á kúpunni. Það vita allir en viðurkenna ekki allir.
10. nóvember kl. 11:04 · Líkar þetta · 6
Sigríður Aðalsteinsdóttir
Félagið á að auglýsa stöðu framkvæmdatjórastöðuna svo að fólk geti sótt um hana, Er búið að auglýsa?
Sigríður Aðalsteinsdóttir
Mig minnir að kostaður við Sólheimakot sé minni en kostnaður við hreinlætisvörur og þrif á húsnæði HRFÍ...það má víða spara í fjármálum þessa félags. Varðandi Sólheimakot og þessa framleigu. Þetta er nú meiri klaufaskapurinn. Það er nú auðvelt að fela deildum ábyrgð á Sólheimakoti og innheimtu afnotagjalda. Af hverju þarf þetta að vera svona flókið?
10. nóvember kl. 11:50 · Líkar þetta · 1
Pétur Alan Gudmundsson
Það stendur allt um þetta í "ósamþykktri og ókláraðri fundargerð" stjórnar á netinu.
10. nóvember kl. 11:53 · Líkar þetta · 1
Sigríður Aðalsteinsdóttir
En ég sé að það á að leita eftir tilboðum frá ráðningarskrifstofum til að annast ráðningu framkvæmdarstjóra. Best að sækja um. Maður hlýtur að koma til greina með þekkingu og reynslu á markaðsmálum, rekstri, verkefnastjórnun, háskólmenntun í stjórnun og hellings reynslu af fjölbreyttum hundategundum. ÉG geri mér í að minnsta kosti vonir um að verða boðuð í viðtal...
10. nóvember kl. 12:30 · Líkar þetta · 5
Anna María Flygenring
Ég er sammála þér Pétur Alan að það er sorglegt að sjá þetta ófullgerða plagg komið á netið og kallað "fundargerð stjórnar". Ég hafði sett mér það að taka ekki þátt í neinum netskrifum í minni stjórnartíð en ég get varla orða bundist, fólk á rétt á að vita sannleikann. Hann er sá að þessi svokallaða fundargerð er ekki samþykkt af þeim sem sátu fundinn, honum var aldrei slitið og við undirrituðum ekkert ! Ég mótmælti á fundinum að setja langlokuna um samskipti okkar um Sólheimakot í fundargerð, ég mótmælti því líka í tölvupósti morguninn eftir fund. Í ljós hefur komið að fleira ámælisvert er í þessu plaggi og nú hafa nokkrir aðilar krafist þess að þetta sé tekið burt. Formaður vor lokar eyrunum og hlustar ekki á stjórnarmenn sína né félagsmenn. Ekki heldur þegar beðið er um aukafund um málefni Kotsins og ekki þegar við viljum ljúka þessum ókláraða fundi. Svona vinnubrögð eru ólíðandi og til skaða fyrir félagið og til skammar fyrir forsvarsmenn þess. Ég tek alveg minn hluta af skömminni á mig, ég hefði átt að sjá betur og gera meiri kröfur um svör.
10. nóvember kl. 16:24 · Líkar þetta · 6
Pétur Alan Gudmundsson
Takk fyrir þetta Anna María. Ég er alveg sammála þér að svona er ólíðandi fyrir utan við virðingarleysið við meðstjórnendur sem formaður hefur þarna og svarar ekki beiðnum og póstum þeirra. Er þó ánægður með framgang ykkar í stjórn og hvernig eðlileg vinnubrögð sem þið óskið eftir og viljið viðhafa virðast vera hægt og sígandi að komast á koppinn. Sorglegt hvernig sumir stinga hausnum í sandinn aftur og aftur. Ég hef trú á að hægt verði með ykkar skeleggu framgöngu að koma á eðlilegu og opnu starfi í félaginu svo framarlega sem niðurrifsöflin um eðlilegt og opið starf fari ekki hamförum bakvið tjöldin. Eins og ég hef oft sagt áður, kæra stjórn hafið allt uppi á borðinu, feluleikurinn gerir félagsmenn bara tortryggna,
Guðrún Hafberg
Pétur sambandi við vitjunartímann,þá eru sumir eru svo heimskir að þeir hafa ekki vit á að sjá hvenær hann er kominn ,,EÐA frekjan er svo mikil að geta ekki gefið eftir,,,en passið ykkur það kæmi mér ekki á óvart að allt yrði gert til að vinna hrfi eins mikla bölvun og hægt væri,ég er búin að fá minn skerf og einnig verið þjófkennd!!!!!
Pétur Alan Gudmundsson
Enn á ný sorglegt
Sigríður Aðalsteinsdóttir
Við skulum vona að þetta verði hreinsað upp og ró komist í starfsemi Hrfí. Félagði snýst ekki um okkur heldur hundana. Þó á þetta að vera skemmtilegur félagsskapur og það á að ríkja eining og góður samstarfsandi. Svo má spyrja: ef deildir innan Hrfí geta ekki starfað í sátt og samlyndi, hvernig á þá Hrfí nokkurn tíman að geta það. Sumar deildir eru klofnar í herðar niður í kergju og ósætti. Mjög dapurt. Ég held að hundaeigendur þurfi kannski að fá námskeið í mannlegum samskiptum. Heilbrigð umræða getur falið í sér öflugar rökræður en þegar komið er út í leiðindi og skítkast þá eru málin í alvarlegum farvegi.
10. nóvember kl. 18:50 · Líkar þetta · 2
Sigríður Aðalsteinsdóttir
Hefur einhver haft samband við ritara stjórnar? Hann er sá sem sendir frá sér fundargerðir ekki formaður. Formaður þarf að hafa samband við vefstjóra til að taka plaggið út af síðunni.
10. nóvember kl. 18:54 · Líkar þetta · 2
Guðrún Hafberg
Ég trúi að ef stjórnin vinni að heilum hug í þágu hundanna og eigenda ,hætti að mismuna fólki og f.l.þá lagist þessi klofningur í deildum ..einhverstaðr stendur eftir höfðinu dansa limirnir,ég gekk í hrfi 1989 og er búin að vinna fyrir þetta félag síðn eða til 2008...en svo er hægt að drulla yfir mann að það tekur nokkur ár að hreinsa mykjuna...
Delia Howser
Ég get staðfest að ég hafði strax samband við ritara stjórnar og bað um að plaggið yrði fjarlægt af netinu.
Sunnudagur kl. 14:07 · Líkar þetta · 3
Arnheiður Runólfsdóttir
Ég sagði vó Þegar ég las fundagerðina hjá HRFÍ og spuðii sjálfan mig. Getur þessi stjórn unnið saman? Er ekki best fyrir félagið að kosningum verði flýtt.
Sigríður Aðalsteinsdóttir
Svona vinnubrögð ganga ekki. Ritarinn á að vita betur en að setja fundargerð af fundi sem ekki klárast á netið. Auðvelt að setja bara tilkynningum um framhalds-stjórnarfund. Punktur. En, hafði í huga að þetta er sú stjórn sem félagsmenn kusu og meirihluti þeirra sem á aðalfund mæta ræður. Á meðan meirihlutinn ræður er engu hægt að breyta í félaginu.
Sigríður Aðalsteinsdóttir
Og hvar eru ársreikningar félagsins fyrir árið 2011? Eru þeir komnir á heimasíðuna? Ársskýrslan inniheldur engar upplýsingar um reksturinn sem er frekar óvenjulegt en þá eiga ársreikningarnir að vera aðgengilegir. Alltaf.
Pétur Alan Gudmundsson
Fyrst í dag þriðjudag er uppkast að fundargerð stjórnarfundar farin út af FB síðu HRFÍ.
fyrir 21 klst. síðan · Líkar þetta · 1
Bára Einarsdóttir
Það er ekki að ástæðulausu að félagsmenn halda sig til hlés, áhugamál á að mínu mati að vera skemmtilegt og uppbyggjandi. En þegar frekjan tekur völd og yfirkeyrir fólk sem réttir fram hjálparhönd þá er ekki við öðru að búast en fólk bakki. Endilega drögum fram AFTUR gömlu gildin... virðing fyrir náunganum, samhjálp, samvinna og umfram allt gleði og uppbygging.
fyrir 21 klst. síðan · Líkar þetta · 4
Jon Thor Bjarnason ...þetta er allt að fara í hundana ;þ
Guðríður Magnúsdóttir-Gígí
þetta var eina fundagerðin sem ég þurfti ekki að reka á eftir í mög ár þannig að áhugi vissra manneskja var mikill til að koma fundagerðinni á netið, en lifum í voninni Vala að fara og Jóna sagði á sl. aðalfundi að hún gæfi ekki kost á sér aftur, finst í raun að það eigi að krefjast afsagnar hennar nú strax, ef hún sér það ekki sjálf, það eru til varamenn á bekknum