allt gengur upp von á hvolpi frá Noregi undan stigahæsta Vorsteh-hundi Noregs árið 2011, HAUGTUN´S DPB FRI.
Það má með sanni segja að Fri er búin að vera stjarna frá því hún fyrst fór að taka þátt í veiðiprófum, hún var meðal annars valin unghundur Noregs árið 2008 og hefur óslitið síðan á sig blómum bætt. Nú síðast með þeim áfanga að vera besti Vorsteh-hundur Noregs 2011.
Það var ekki nóg með að Fri væri besti Vorsteh-hundur Noregs 2011
heldur sló hún stigametið svo um munaði.
Hún fékk 88 stig árið 2011 en næsti hundur á eftir henni var með
46 stig. Það eru ótrúlegir yfirburðir sem þessi tík hefur í Noregi, nánast
helmingi fleiri stig en næsti hundur.
Og takið eftir einu, Noregur er ekki smá eyja þar sem að
meðaltali 10 hundar taka þátt í prófum hverju sinni, nei það eru hundruðir hunda
sem taka þátt.
Þess má einnig geta að Rugdelias Lucilla (mamma Rugdelias
Lucienne sem Palli og Sigga eiga) var valin besti hundur í skógarprufum, held að
sú tík sé að nálgast met í heiðurspremium í Noregi.
Það er líka gaman að segja frá því að allir hundar sem unnu
bestir eitthvað eru með Rugdelias blóð einhversstaðar í ættbók.
Hægt er að lesa allt um þetta hér á forsíðu Vorsteh í Noregi
Hægt er að klikka á nöfn viðkomandi hunda og sjá allt sem þeir
hafa afrekað á árinu ásamt ættbók. Þetta er frábær síða hjá Vorsteh í Noregi,
eitthvað sem við ættum að hafa í huga í framtíðinni, einföld en
ítarleg.
Það er ótrúlegt að við hér á Íslandi skulum eiga hunda frá báðum
þessum ræktendum, það eru í það minnsta 3 Rugdelias hundar hér á landi og einn
Haugtun´s og von á öðrum.
Auðvitað á mikið vatn eftir að renna til sjávar þar til hvolpar
líta dagsins ljós. Eigendur Fri áætla að setja á hana þegar hún lóðar næst sem
verður væntanlega núna í des eða janúar.
Ef allt fer að óskum þá ættum við Gréta að vera komin með
Haugtun´s hvolp á heimilið um mitt næsta ár.
Bara spennandi og góðir tímar framundan og ekki ónýtt fyrir
stofninn hér á Íslandi að fá svo gott blóð inn.
Hér að neðan má sjá mynd af Haugtun´s tíkum
Frá vinstri, Fri, Pil og Roy. Veit ekki úr hvaða ræktun
kettlingurinn kemur en myndin
sýnir glögglega yfirvegunina í Haugtun´s hundum