Haugtun´s Hfe Siw í sínu frysta veiðiprófi
Við heitum Kjartan og Gréta og erum við mikið áhugafólk um hunda og þá sérstaklega Vorsteh-hunda.
Áhugi okkar á veiðihundum tvinnast saman við annað áhugamál okkar sem eru veiðar, að
sjálfsögðu skotveiðar nr.1 og almenn útivist.
Einnig höfum við mjög gaman af allri stangveiði en hundarnir nýtast ekki eins vel þar eins og gefur að skilja.
Í dag eigum við 2. Snögghærða Vorsteh-hunda, Haugtun´ Hfe Siw sem við fluttum inn frá Noregi. Móðir Siw-jar er Haugtun´s Fri en hún var besti unghundur Noregs árið 2008 og einnig besti all around veðihundur Noregs 2012. Hún átti einnig stæstan þátt í að Vorsteh unnu liðakeppni standandi fuglahunda í Noregi 2012. Og svo eigum við dóttur hennar Zeldu Ast Rán. Pabbi Ránar er ISCh C.I.B. ISFtCh Rugdelias KMS Teitur sem við fluttum einnig inn frá Noregi árið 2001. Teitur var fyrsti karlhundur í grúppu 7 hér á landi að ná þeim magnaða árangir að verða þrefaldur meistari. Hann var Íslenskur veiðimeistari, Alþjóðlegur sýningameistari og Íslenskur sýningameistari.
Siw mætti í sitt fyrsta veiðipróf nú í haust 2015 og má segja að hún hafi staðið sig afburða vel. Því miður átti hún ekki séns á fugli en allar tölur og umsagnir eru í botni. Báðir dómarar (Norskir) töluðu gríðalega vel um alla hennar vinnu og sagði annar þeirr að þessi tík ætti að vera á ljósmynd upp á vegg á sem flestum heimilum, svo flott væri hún.
Áður áttum við einnig Zeldu (Gæfu dögg) Línu og Haugtun´s Iðu. Lína fór til nýrra eigenda árið 2009 en Zelda gamla féll frá 8.
september 2011 og er hennar sárt saknað. Það urðu nokkur kaflaskil í Vorsteh á Íslandi þegar Zelda féll frá, en hún var síðasti
lifandi Vorsteh-hundur úr fyrstu ræktun á Íslandi, Gæfu ræktun. Sumarið 2014. féll svo Teitur frá tólf og hálfsárs gamall. Teitur skrifaði hluta Vorsteh-sögunnar hér á landi en hann var lang fyrsti karlhundur í grúppu 7 til að ná þeim áfanga að verða þrefaldur meistari eins og áður sagði.
Iða féll einnig frá vorið 2014. þannig nú erum við hjónin bara með tvo hunda sem er svoldið sérstakt en alltaf hægt að bæta úr því.
Hægt er að kynnast okkur og hundunum okkar betur hér á síðunni.Vonandi hafið þið bæði gagn og gaman af.
Við höfum planað að para Siw-ina á næsta lóðarí-i sem ætti að vera ca.í desember og ef allt gengur að óskum ættu að koma hvolpar snemma á næsta ári, febrúar-mars?
Hægt er að hafa samband við okkur í gegnum tölvupóst og er netfangið kjartan(hjá)zelda.is