Ekki hafði ég heppnina með mér í þetta skipti, eftir að hafa fengið tarf síðustu tvö ár var ég nr. 202 í röðinni núna. Gréta er hinsvegar nr.2 á biðlista með tarf, þannig að það verða að teljast verulegar líkur á að hún fái tarf að lokum.
Ekki fengum við mikil viðbrögð við póstinum sem Vorsteh-deild sendi út þar sem biðlað var til félagsmanna um aðstoð. Kannski ekki að furða heldur þar sem Pétur Alan svaraði þeirri beiðni svo eftirminnilega eins og flestum er kunnugt um.
Þó hringdi einn maður í okkur og bauð okku hjálp, hann á meira að segja heima út á landi og var tilbúinn að keyra í bæinn og aðstoða. Það kom þó ekki til þess þar sem okkur tókst að leysa, en kunnum við honum bestu þakkir fyrir.
En það var virkilega gaman að starfa á sýningunni, við áttum að sjá um dyrnar þar sem hundarnir fara inn á sýninguna og það var gaman að upplifa spennuna með sýnendunum og aðstoða þá sem á þurftu að halda.
Eina kannski sem hægt er að setja út á var að þær deildir sem áttu að senda fulltrúa til að taka saman sýninguna, flytja allt dót á skrifstofu og Sólheimakot, rúlla upp teppum og þess háttar hefðu mátt standa sig betur, það vantaði allt of marga þannig þetta lenti á fáum höndum !
En hvað um það.
Ég lagði leið mína í þennan stórglæsilega bás fuglahundadeildar og las þar allt um facebook klúbbinn sem FHD er í samstarfi við.
Ég spurði nokkurra spurninga hvað það væri eiginlega en fékk nú ekki mikið af svörum. Eitt svarið var þó á þá leið að nokkrir Vorsteh-menn vildu kynna tegundina sína en gætu það ekki annarsstaðar. Ég kváði og sagði, ha, það getur nú ekki verið, Pétir Alan og félögum var boðið að kynna Vorsteh undir merkjum Vorsteh-deildar en það koma bara ekki til greina hjá þeim,
Þá fékk ég það svar að þeir væru ekki í Vorsteh-deild, ég spurði þá á móti hvort þeir væru í FHD hahaha já sorry, ég hlæ stundum þegar ég skrifa um þessa vitleysu ,,,,,,, en ég fekk ekkert svar við því. Þá var mér sagt að þeir Strýhærðu fengju enga kynningu, þeir vildu kynna sína hunda líka !
Það var tekið saman hvaða hunda er oftast minnst á inná heimasíðu Vorsteh-deildar. Þegar þessi listi var tekin saman var hann eftirfarandi.
Fj. Nafn
93 Yrja Strýhærður Vorsteh-hundur
61 Spyrna
61 Jökla
60 Nói Strýhærður Vorsteh-hundur
Það er athygli vert að tveir Strýhærðir Vorsteh-hundar hafa verið að taka þátt í prófum og eru á topp 4 yfir mest kynntu hundana á heimasíðu Vorsteh-deildar, og þeir fá ekki næga kynningu.
Nei það þarf eitthvað meira til að sannfæra mig um að þeir Strýhærðu fái ekki næga kynningu hjá Vorsteh-deild ! Enda hefur Vorsteh-deild kappkostað að láta ekki halla á neinn.
Hægt er að sjá listann í heild sinni inná vorsteh.is
Að öðru.
Hef verið að skoða aðeins gagnagrunn FHD sem ég sagði í öðru bloggi að væri hneykslanlega rangur.
Hann var nú ekki búin að vera lengi uppi þegar hann var tekin niður í nokkra daga til lagfæringa.
Hélt ég það að hann yrði nær lagi en raun varð á. Í fyrstu útgáfunni voru 1. einkunnir á ákveðnum hundi sem aldrei hafði fengið fyrstu einkunn (veiðipróf) það var snarlega lagað þar sem einhver annar en ég virðist hafa tekið eftir því.
Þarna er strax komin ástæða til að vantreysta grunninum, hvað skildu margar fyrstu einkunnir vera á hundum sem ekki hafa unnið til þeirra. Ok látum það vera.
Aðrir hundar sem sannarlega hafa hlotið einkunn eða farið á sýningar eru blanco þegar árangur þeirra er skoðaður.
Einnig er sorglegt með fullri virðingu fyrir þeim sem stóðu að gerð grunnsins, að þeir skuli detta í þá gryfju að tína allt til sem hundarnir þeirra hafa gert, það er allt sett inn. Veiðiprófs árangrar, sýningar árangrar og svo fr.
Myndir á viðkomandi hundum eru settar inn og allt dregið fram sem mögulega er hægt að draga fram, grunnurinn er strax fullur af skekkjum.
Tökum dæmi.
Ég ætla að fá mér Enskan Seta og fer á stúfana að ath hvað sé í gangi þar, eru einhver got á leiðinni.
Ég frétti fljótlega að því að Steini sem á Eldingu ætlar að para næst þegar tíkin lóðar. Ok ég fer inná gagnagrunn FHD og skoða allt um Eldingu sem er virkilega flott, bæði sýningar og veiðiprófsárangrar.
Svo frétti ég að Hrafn með Grímu ætlar líka að para Grímu á næsta lóðaríi. Ég fer í grunninn góða og skoða Grímu.
Ég kemst fljótlega að því að Grímu hefur gengið afburðavel í veiðiprófum eins og Eldingu, en Gríma er ekki með neinn sýningarárangur. Valið yrðir auðvelt fyrir mig græningjann, ég myndi velja hvolp frá Steina þar sem hún er með allt skráð, ekki bara veiðipróf.
Með fullri virðingu fyrir honum Steina vini mínum þá datt hann í pyttinn að hygla sínum hundi meira en öðrum, setti sýningarárnagur á sína tík en ekki hina tíkina. Hann var ekki einn um þetta, það er líka athyglivert hversu margir Weimaraner erum með skráða sýningarárangra en ekki aðrir hundar.
Já það er ekki erfitt að sjá hverjir sáum um innsláttinn í þennan grunn !
Ég þekki Steina samt það vel að ég veit að þetta var ekki með ráðum gert, en þetta bara einhvernveginn fer svona. Það er vandaverk að gera svona grunna svo öllum sé gert jafn hátt undir höfði.
Nú vitna ég eins og svo oft áður í að ég er ekki einn um þessa skoðun á grunninum. Nei allir hundar eiga að sitja við sama borð, á meðan þeir gera það ekki er grunnurinn í versta falli ónýtur, hann gefur skakka mynd af árangri hunda !
Ég get talið endalaust upp galla grunnsins, ætla að tala líka um Vorsteh-hunda (sem eiga ekki að vera þarna) sem ég þekki til og eru þeir nokkrir. Þú skoðar ákveðinn hund og ætlar svo að skoða árangur gotsyskina, þá kemur bara nafn hundsins sem þú ert að skoða, tala nú ekki um ef hann er erlendis frá. Þetta skekkir líka allan samanburð.
Svo eru aðrir hundar eins og ég sagði áðan sem þú klikkar á sem hafa farið bæði á sýningar og pórf en það kemur ekkert nema, ekki á skrá !
Og svo annað, allur þessi fjöldi hunda sem aldrei hefur tekið þátt, guð minn almáttugur, og svo er helllingur af erlendum hundum sem aldrei hafa á Íslenska grund komið og sumir löngu dauðir !
Af nægur er að taka en það síðasta sem ég kem inn á núna er misræmi í fjölda viðiprófa Vorsteh-hunda hjá FHD og gagnagrunni Vorsteh-deildar.
Það er athyglivert að langoftast hafa Vorsteh-hundar farið í fleiri próf í Vorsteh-grunninum en hjá FHD, það er merkilegra fyrir þær sakir að fólk frá FHD var með her manna til að ljósrita öll veiðiprófa göggn frá upphafi niðrá skrifstofu HRFI svo ekkert myndi nú vanta !
Er reyndar ekki búinn að skoða alla Vorsteh-hundana en merkilegt annað að dæmið snýst við hjá hundi fyrrverandi tengiliðs Vorsteh, og fyrsta formanni deildarinnar.
Tíkin hans er með mun fleiri veiðipróf inná gagnagrunni FHD en gagnagrunni Vorsteh-deildar. Af hverju voru ekki fleiri afrit af tíkinni hans í þeim gögnum sem hann afhenti stjórn Vorsteh-deildar.
Þetta er svo mikill munur að tilviljun er útilokuð hvað það varðar !
Nei stjórn FHD á að skammast sín. Stjórn FHD ætti að einbeita sér og nýta krafta sína í þá hunda sem tilheyra FHD og hafa þá rétta. Kraftarnir fara að langmestu leiti í hunda sem ekki tilheyra deildinni, Vorsteh og Írsk Setter.
FHD viðheldur bara þeim óróa sem verið hefur í þessu blessaða sporti okkar fram til þessa með umdeildum gjörningum þeim sem þeir bera ábyrgð á undanfarið.
Ég hugsa oft um tilganginn hjá þeim, hvað gengur þeim til. Af hverju viðurkenna þeir bara ekki Vorsteh-deild og fara að starfa með henni í stað þess að reyna alltaf að gera henni ómögulegt að starfa.
Er það tilfellið að FHD heldur að hún sé móðurdeild allra deilda og þurfið að vera með puttana í öllum deildum.
Nei FHD, takið kolrangan gagnagrunn um Vorsteh-hunda út af síðunni ykkar og hættið að láta einn aðila hafa áhrif á samstarf deildanna sem myndi sko sannarlega lyfta þessu á hærra plan hjá okkur.
Sportið á nefnilega að snúast um hunda, ekki menn !