í alhliðaprófinu um helgina. Weimaraner tíkin Silva SGT Schultz Rider, gerði sér lítið fyrir og var valinn besti hundur í OF báða dagana.
Ekki er hægt að segja annað
en að þetta sé frábær árangur, og sennilega besti árangur í alhliðaprófi á Íslandi frá upphafi.
Silva eins og áður sagði var valinn besti hundur í OF báða dagana og sannar þar klárlega fyrir mér að hún er hundur sem ég færi hiklaust með á gæsa eða andaveiðar.
Seinni daginn er hún að fá
tölurnar 10-10-9 sem er algjörlega
frábært.
Óska eigendum Silvu til
hamingju með frábæran árangur og frábæra
tík.
Auðvitað viðurkenni ég alveg að ég hefði nú viljað sjá betri árangur hjá Vorsteh-hundum, þeirra aðals merki hefur gjarnan verið hversu góðir alhliðahundar þeir eru.
Spurning hvort við séum
farin að einhæfa þá of mikið í
heiðarvinnu, gleymum sækivinnunni. En svo kannski voru ekki bestu
Vorsteh-hundarnir og Ensku Setarnir skráðir, spurning um þjálfunar aðferðir
líka.
Nokkuð ljóst að Weimaraner
eigendurnir sem tóku þátt geta
kennt þeim sem voru með
aðrar hundategundir helling hvað
varðar þjálfun.
Jú jú smá stríðni í þessu,
það verður að hafa gaman að þessu
líka.
Eitt sem ég verð þó að benda
á, það fékk enginn hundur einkunn um helgina, og það vann heldur enginn hundur
prófið.
Maður heyrir gjarnan,
jafnvel frá fólki sem hefur verið lengi í þessu að þessi og hinn hundurinn hafi
unnið próf.
Það vinnur enginn nema það
sé keppni. Það er hinsvegar hægt að velja besta hund prófs, bæði í UF og
OF.
Og þetta með einkunnirnar í
alhliðaveiðiprófi, það er ótrúlegt að lesa það á heimasíðu Fuglahunda deildar og
Vorsteh-deildar að hundar hafi fengið einkunn í alhliða
prófinu.
Nei þeir fengu ekki einkunn,
þeir fengu punkta, eða stig. Þessi stig er síðan hægt að tengja við árangur á
heiðinni.
Dæmi.
Silva þarf að ná fyrstu
einkunn á heiðinni til að geta tengt árangurinn í dag við þá einkunn, þá fyrst
fær hún fyrstu einkunn í
alhliðaveiðiprófi.
Hún þarf að sýna að hún sé
alhliða hundur, góður sækir og góður
fuglahundur.
Reyndar er að mín skoðun að
það eigi að gefa einkunnir í alhliða veiðiprófi, þar að segja án þess að tengja
hana við árangur á heiðinni.
En það eru nokkar hræddar
sálir sem meiga alla ekki heyra á það minnst, þá fyrst yrði nú fjandinn
laus.
Finnst kjánalegt að þurfa
tengja þetta saman, skil samt alveg hugsunina þar á bak við en finnst hún
eitthvað svo úrelt.
Annars var þetta frábær
dagur hjá okkur hjónum, við hjóluðum alveg helling í dag. Byrjuðum á því að
hjóla í Ártúnsholtið í afmæli til elsta sonar mína, Ársæls Páls sem varð 23 ára
í dag. Þáðum þar kræsingar sem borð hreinlega svignuðu
undan.
Þaðan hjóluðum við svo pakk
södd til Óla Gordons og Emelíu í kaffi og spjall og svo þaðan og heim. Já þetta
er búinn að vera frábær dagur í alla
staði.