Hér ætlum við að byggja upp góðan fróðleiksbanka um allt sem viðkemur hundum. Er það okkar von að í framtíðinni geti þeir sem eru að stíga fyrstu skrefin og einnig þeir sem lengra eru komnir fengið tippst um allt það sem viðkemur hundum og þjálfun þeirra. Endilega ef þú lumar á góðum mola þá viljum við biðja þig um að leyfa okkur að birta hann hér. Fullt af fólki lumar á allskonar upplýsingum sem erfitt er að nálgast, eða bara það sem það hefur fundið upp sjálft og virkar. Við lærum öll endalaust. Við eigum enn eftir að skipuleggja hvernig fróðleiksmola síðan verður skipulögð. Til að byrja með verður felligardína undir linknum fróðleiksmolar. Við höfum þegar fengið fyrsta molana sendan og þökkum við fyrir það kærlega. Það eru molar um sækiæfingar fyrir hunda og einnig frábærir pistlar frá Erlendi heitnum Jónssyni um þjálfun fuglahuna ásamt öðru.