Iða fæddist í Noregi 30/08/2008 og kom hún til landsins 19/01/2009. Iða byrjaði á því eins og allir innfluttir hundar að fara í einangrun. Það kom snemma í ljós í einangrunni hversu mikill gullmoli hún er.
Það voru langar 4. vikur að bíða eftir að einangruninni lyki en loksins rann dagurinn upp. Það voru spenntir eigendur sem keyrðu suður með sjó að sækja hana. Það var ólýsanleg tilfinning að fá að snerta hana og knúsa í fyrsta sinn.
Við vorum að sjálfsögðu með búr í bílnum þegar við sóttum hana og fór hún í búrið áður en við lögðum af stað heim.
Mjög fljótlega fundum við að hún var mjög hrædd og óörugg í búrinu og urðum við að stoppa til að róa hana.
Það gekk ekki upp og endaði það þannig að hún var afturí hjá mömmu sinni (Grétu) og kúrði alla leiðina heim.
Það var gaman að sjá viðbrögðin þegar hún hitti hina þrjá hundana sem fyrir voru á heimilinu, hún var svo kát að hún átti erfitt með að hemja sig.
Iða svaf uppí hjá okkur hjónum fyrstu nóttina og það fór ekki á milli mála að hún kunni að meta það.
Iða var fljót að finna sinn sess í hópnum og gekk allt upp eins og í ævintýri. Það leynir sér ekki að hún er mjög klár og rosalega vinnusöm. Hún hefur gríðarlegan vilja til að vinna fyrir okkur og er rosalega fljót að læra.
Iða tók strax flotta standa á rjúpur og fór hún í sína fyrstu rjúpnaveiðiferð í haust (2009) 14 mánaða gömul.
Hún nýtti sinn fyrsta séns sem hún fékk á veiðum. Hún tók fallegan stand í sínu fyrsta veiðimómenti sem skilaði 3. rjúpum í pokann hjá okkur hjónum.
Við hjónin görguðum af stolti eftir hennar fyrsta móment, við vorum svo stolt. Iða var að sjálfsögðu látin finna hvað við vorum stolt af henni, það lá við að hún hefði verið tolleruð á staðnum.
Veiðipróf
Iða fór í 2. veiðipróf í unghundaflokki vorið 2010, eru það hennar fyrstu veiðipróf fram til þessa. Óhætt er að segja að Iðu hafi gengið framúrskarandi vel. Hún gerði sér lítið fyrir og landaði 2. einkunn á sínu fyrsta prófi í unghundaflokk.
Dómari sagði að hún hefði fengið 1. einkunn ef Kjartan hefði ekki snert hana of fljótt að hans mati eftir reisningu og hún hefði verið stöðug.
Þetta voru svona týbísk byrjendamistök sem ekki er hægt að afsaka sig fyrir, en samt flott umsögn hjá dómara.
Það er því alveg ljóst að mikið veiðicaliber býr í Iðu og enginn ástæða til að ætla annað en hún eigi eftir að standa sig vel í prófum í Opnum flokki í framtíðinni.
Sýningar.
Iða hefur þrátt fyrir ungan aldur mætt 4. sinnum á sýningar HRFI. Iða hefur alltaf fengið dóminn Excellent sem er það besta sem hægt er að fá.
Iða er komin með meistaraefni og vara CACIB (Alþjóðlegt meistarastig) og því hægt að segja að hún byrji sérstakaleg vel á sýningum.
Skapgerð
Iða er með virkilega skemmtilega skapgerð. Hún er yfirveguð en alltaf til í leik ef uppá er boðið. Hún er mjög athugul og námsfús.
Iða er einstaklega hörð af sér og ósérhlýfin sem er gríðarlegur kostur hjá veiðihundi.
Iða er einnig virkilega blíð og góð tík og hún er sífellt að koma okkur hjónum á óvart. Það sem kannski er óvenjulegst við hana er að ef sett er veiðimyndband í tækið þá horfir hún allan tímann með miklum áhuga. Það þarf stöðugt að vera að kalla hana frá sjónvarpinu þar sem hún virðist vera einstaklega nærsýn.
En ef upp flýgur rjúpa í myndbandinu þá á hún það til að reyna að grípa hana. Einnig er hún löngu búin að fatta þegar við erum að setja inn ljósmyndir í tölvuna þá stendur hún yfir okkur og horfir á þegar við hjónin erum að skoða, og hún sýnir alltaf viðbrögð þegar skipt er um mynd.