Smá kynning á henni Siw okkar. Auðvitað er hún óskrifað blað þegar þetta er ritað og á þessi kynning eftir að breytast með auknum þroska hjá henni. En þetta er það sem við höfum í dag og vonandi á hún eftir að sanna sig.
Siw fæddist 24/03/2012
Siw er okkar þriðji innflutti Vorsteh, en hún kemur frá Noregi eins hin tvö, Teitur og Iða. Siw er ótrúlega róleg og yfirveguð tík, við hjónin trúum því ekki enn hversu róleg hún er þrátt fyrir að hafa haft hana núna hjá okkur frá 6. September, en þá kom hún úr einangrun. Byrjunin lofar svo sannarlega góðu og ekki skemmir fyrir hversu falleg hún er.
Móðir Siw er einn besti Vorsteh-hundur Noregs um þessar mundir, N JCH Haugtun´s Dpb Fri. Hún var valinn besti Vorsteh unghundur Noregs árið 2008 og svo var hún valinn besti Vorsteh hundur Noregs í opnum flokki árið 2011 með rúmlega 80 stig á meðan næsti hundur var með rúm 40 stig. Það sýnir hveru mikill yfirburða hundur Haugtun´s Fri er.
Ræktandinn, Ola kom sálfur með Siw til landsins á miðvikudegi. Hann flaug út aftur á föstudegi og sagði okkur að hann ætti að mæta (man ekki hvar) í Noregi á laugardeginum þar sem velja átti besta all-around veiðihund Noregs 2012. Það er skemmst frá því að segja að Haugtun´s Fri tók fyrsta sætið og fékk Ola 10.000 norskar krónur í verðlaun, já þetta er alvöru.
Haugtun´s Fri átti einnig mjög stóran þátt í að Vorsteh vann NM-Vinter árið 2011 í liðakeppninni, var mikið ritað um hana á heimasíðu Vorsteh í Noregi í kjölfar þess.
Pabbi Siw, Extrem Herak er frá Króatíu. Þau keyrðu 11.000 kílómetra, gegnum 7 lönd og enduðu í því áttunda, Króatíu til að para Haugtun´s Fri við Herak. Þetta sýnir gríðarlegan metnað ræktenda enda eru þau í fremstu röð hvað varðar Vorsteh ræktun í Noregi.
Ræktandi Herak hefur ræktað marga meistara, þar á meðal heimsmeistara og veiðir hann sjálfur með hundum og fálkum.
Það er ekki sjálfgefið að fá dýr frá svona ræktendum, en okkur hjónum hefur hlotnast sú gæfa að eiga fremstu Vorsteh ræktendur Noregs sem vini, Rugdelias ræktunin og Haugtun´s ræktunin. Það komu ekki nema tvær tíkur í gotinu hjá Siw, hún kom til Íslands og ræktendur hennar héldu hinni tíkinni sem heitir Nin. 5 rakkar fæddust þannig að þetta var 7 hvolpa got. Við vitum það fyrir víst að listinn var langur sem beið eftir hvolpum frá þeim og mikið var rætt um af hverju þau væru að senda eina tík til Íslands. Það eru forréttindi af fá svona dýr frá svo góðri ræktun til Íslands.
Auðvitað á hún Siw okkar eftir að sanna sig í framtíðinni, það er langur vegur eftir, en byrjunin lofar svo sannarlega góðu. Það er mikil tilhlökkun í okkur hjónum að byrja að þjálfa hana og sjá hvað í henni býr. Ef það er eitthvað líkt geðslaginu þá er óþarfi að kvíða.
Ættbók Haugtun´s Hfe Siw. Klikka á mynd til að stækka