Rugdelias KMS Teitur fæddist í Noregi 15/02/2002. Ræktendur Teits eru með virtari ræktendum í Noregi enda löngu orðin þekkt fyrir framúrskarandi ræktun þar sem útlit, veiðieiginleikar og góð skapgerð fara saman. Keppst er um að fá hvolpa frá Rugdelisas víða um heim. Í dag eru Rugdelias hundar í sjö löndum.
Við nafnarnir, Kjartan Antonsson og Guðbrandsson stóðum saman að því að flytja Teit til landsins. Teitur byrjaði eins og allir hundar sem koma erlendis frá að fara í einangrun sem þá var 6. vikur. Teitur kom úr einangrun í ágúst sama ár og komu hæfileikar hans snemma í ljós hvað varðaði veiðieðli.
Veiðipróf
Við nafnarnir stóðum okkur hinsvegar alls ekki nógu vel í þjálfun á Teit fyrstu árin. Teitur var lítið sem ekkert þjálfaður, þjálfanir voru stopular og tilviljana kenndar. Teitur var mikið að þvælast á milli okkar nafna sem höfðum ekki eins mikinn tíma til að sinna honum eins og hann hefði átt skilið. Var það aðalega vegna breyttra forsenda hjá okkur nöfnum. Aðstæður breyttust hjá okkur báðum sama ár og Teitur kom til landsins sem kom niður á þjálfun Teits næstu árin.
Þetta bitnaði að sjálfsögðu á árangri Teits í veiðiprófum sem var ekki sem skildi þetta tímabil. Teitur var yfirleitt í slæmu líkamlegu formi þegar hann mætti í prófin sem er ekki vænlegt til árangurs.
Það var svo í janúar 2007 sem Teitur kom alfarið til okkar hjóna og ákváðum við að nú skildi hann æfður markvisst í fyrsta skipti. Við settum okkur metnaðafullt markmið og æfðum mjög skipulega fram á vor. Við æfðum í verstu veðrum, það var bara farið í pollagalla þegar verstu veðrin voru, aldrei klikkaði æfingaprógrammið.
Ekki stóð á árangrinum, Teitur landaði sinni fyrstu 1. einkunn strax um vorið og endaði árið sem annar stigahæðsti fuglahundur landsins það ár. Teitur var aðeins einu stigi á eftir stigahæðsta hundinum það árið þrátt fyrir að hafa mætt í mun færri veiðipróf eða samtals 10 talsins.
Samtals mætti Teitur 7. sinnum í Opinn flokk árið 2007 og náði 6 sinnum einkunn, þar af 3 sinnum 1. einkunn. Þetta gerir tæp 86% árangur í Opnum flokki sem verður að teljast á heimsmælikvarða. Teitur mætti 3 sinnum í Keppnisflokk þetta ár og náði einu sinni sæti sem var 1. sæti. Það er glæsilegur árangur.
Teitur hélt áfram uppteknum hætti árið 2008 og endaði í þriðja sæti um stigahæðsta hundinn það ár. Var hann 7. stigum fyrir neðan efsta hundinn. Teitur mætti aðeins í 6 veiðipróf árið 2008, rúmlega helmingi færri en næstu tveir hundar fyrir ofan hann.
Árið 2008 mætti Teitur einu sinni í Opinn flokk og náði 1. Einkunn.
Sama ár mætti Teitur fimm sinnum í Keppnisflokk og náði 3. sinnum sæti, þar af einu sinni 1. sæti.
Árið 2007 og 2008 náði Teitur 4 sinnum 1. einkunn í OF, 2 sinnum 1. Sæti í Keppnisflokk, 1 sinni 3. sæti í Keppnisflokk og 1 sinni 4. sæti keppnisflokk.
Það er samt athyglivert að erlendir dómarar hafa átt þátt í 8 af 9 bestu dómum sem Rugdelias KMS Teitur hefur hlotið í gegnum tíðina í veiðiprófum, skemmtileg tölfræði !
Ef við tökum heildar árangur Teits í veiðiprófum frá upphafi þá náði hann einkunn eða sæti í Keppnisflokk í 47% tilfella.
Þær staðreyndir tala sínu máli og eru ekki margir hundar sem getað státað af svo góðu skori.
Rugdelias KMS Teitur er Íslenskur veiðimeistari.
Sýningar.
Rugdelias KMS Teitur hefur gengið afburðavel á sýningum. Enginn annar Vorsteh-hundur hefur unnið eins oft besti hundur tegundar á sýningum HRFI. Enginn annar Vorsteh-hundur á Íslandi hefur fengið jafn mörg CACIB á sýningum, eða samtals 10.
Teitur hefur nokkrum sinnum unnið úrslit Grúppu 7 hunda og er hann eini hundurinn sem hefur náð að narta í Írsku Setana að nokkru ráði undanfarin ár í grúppu 7 hvað sigur Í grúppunni varðar.
Rugdelias KMS Teitur var annar stigahæðsti hundur HRFI heilt yfir árið 2005 sem er einstakur árangur grúppu 7 hunds sem einnig er með árangur í veiðiprófum.
Teitur er eini karlhundurinn fyrr og síðar (þegar þetta er skrifað 2011) grúppu 7 hunda sem er þrefaldur meistari, Íslenskur sýningarmeistari, Alþjóðlegur sýningarmeistari og Íslenskur veiðimeistari.
Það er því óhætt að segja að Teitur sé með einstakan árangur þegar allt er tekið saman. Gaman að segja frá því að tveir erlendir dómarar hafa spurst fyrir um hvort hægt væri að fá Teit keyptan !
Teitur er einnig með mjög gott geðslag,rólegur og yfirvegaður. Það er nánast ekkert sem hreyfir við honum. Sem dæmi þá skiptir engu máli þó hann sé með okkur úti kl 00:00 á gamlárskvöld í öllum sprengingunum, hann bara dillar rófunni.
Það sem kannski hellst einkennir skapgerð Teits er hversu rólegur og yfirvegaður hann er við allar aðstæður.
Heima fyrir er hann algjör ljúflingur eins og allir okkar hundar. Fólk sem kemur í heimsókn hefur oft orð á því hvort það séu ekki örugglega 3 hundar á heimilinu, það finnst ekki fyrir þeim.
Mamma Teits Rugdelias Messalina er með þekktari Vorsteh-hundum i Noregi. Hún er veiði og sýningarmeistari og hefur gefið af sér marga meistara, bæði sýningar og veiðimeistara. Meðal annars er alsystir Teits Rugdelias KMS Zenobia bæði sýningar og veiðimeistari. Úr einu goti frá Zenobiu eru allir hvolparnir komnir með 1. einkunn í veiðiprófi.