En um leið og ég fer að blogga um félagið okkar HRFI, stjórn þess og vinnubrögð hennar þá fæ ég viðbrögð frá allt öðru fólki, að sjálfsögðu frá fyrrnefnda hópnum líka en ótrúleg viðbrögð samt frá aðilum sem ég hef ekki heyrt frá né séð áður.
Langar að leyfa ykkur að sjá brot frá viðbrögðum við síðasta bloggi.
„Alveg makalaust flott blogg hjá þér í gærkveldi! Þvílíkt og slíkt! Óli hundaskíxxx (x-in eru innskot frá mér, það geta allir botnað restina) er ekki fyrr mættur á svæðið en hann gerir allt vitlaust! Farinn að skipa formanninum Jónu fyrir verkum!
Ég skil að Valgerður hafi pakka saman“.
Annar sagði
„Já ég kannast við þessi vinnubrögð og þau koma mér ekkert á óvart“
Einnig vil ég þakka fyrir þá nafnlausu pósta (frí mail)sem ég hef fengið frá fólki sem stendur ekki á sama og lætur sig mál HRFI varða.
Vitna í einn slíkan hér í lokin.
En að framaldinu.
Ég hef mikið verið að hugsa um það hvernig ég eigi að setja bloggið upp? Það er alveg ljóst að ég þarf að setja þetta inn í skömmtum, það er mikil skriffinska í kringum þetta. Þetta er jú mitt blogg og ég þarf að koma mínum skoðunum á framfæri, en ekki bara mínum skoðunum, það eru margir sem deila þeim með mér.
Í síðasta bloggi birti ég umdeilda fundargerð frá stjórnafundi HRFI. Eins og fram hefur komið var þessi fundargerð tekin af netinu þar sem 3/5 hlutar stjórnar HRFI krafðist þess. Nú hafa margir lesið þessa fundargerð og skilja fullkomlega af hverju meirihluti stjórnar HRFI krafðist þess að hún yrði tekin af netinu.
Viðkomandi notuðu meðal annars til rökstuðnings að þetta væru drög að fundargerð! Þá spyr ég á móti.
Voru tölvupóstar sem mest er um deilt í téðri fundargerð drög? Hefur einhver, eða hafa einhverjir breytt textum í umræddum tölvupóstum? Ef ekki þá er nokkuð ódýrt að skýla sér á bak við að um drög sé að ræða.
Mín skoðun er sú að viðkomandi (Ólafur E Jóhannsson, Anna María Flygenring og Delía Kristín Howser) vilji ekki að félagsmenn HRFI sjái ofbeldið sem þau beita í krafti meirihluta þeirra í stjórn HRFI.
Vinnubrögð sem víða yrðu fordæmd, vinnubrögð þar sem hluti stjórnar ákveður hlutina á bak við tjöldin (Sólheimakot) án samráðs við alla stjórnarmenn.
Já það er greinlegt að Ólafur hefur æft taumgönguna vel eins og sjá má á viðkomandi tölvupóstum.
Margir hafa gagnrýnt stjórn HRFI fyrir óráðs-síu í fjármálum, það sé verið að fela hitt og þetta. Sama fólk rýkur svo upp til handa og fóta þegar formaður HRFI gerir það að tillögu sinni að segja upp leigusamningi um Sólheimakot og spara þar með hundruði þúsunda á ári. Sólheimakot sem ekki er annað en góður kofi í besta skilingi. Hvorki drykkjarhæft vatn og allt í niðurnýslu.
Ég treysti því að ef 3/5 hlutar stjórnar taka þá ákvörðun ein og sér að borga nokkur hundruð þúsund fyrir Sólheimakot sem brot af félagsmönnum HRFI notar, hafi kynnt sér fjármál HRFI niður í kjölin áður en sú ákvörðun var tekin.
Við ættum þá að geta treyst því að HRFI standi vel fjárhagslega þegar hægt er að leigja kofa fyrir þessa upphæð. Ég hreinlega neyta að trúa að þessi ákvörðun hafi verið tekin ef félagið stendur illa fjárhagslega.
Þessir sömu aðilar ættu þá að hætta að gagnrýna bágan fjárhag félagsins.
En það er svo margt sem ég á eftir að koma inn á varðandi þessi mál. Ég sagði í síðasta bloggi mínu að ég ætlaði að koma með facebook komment frá nokkrum aðilum sem flestir hafa verið áberandi í HRFI, oftast fyrir neikvæðni.
Ég veit ekkert hver póstaði þessu á mig, þetta er einn af þeim póstum sem kom frá frí-maili (Hotmail)
Ég mun á sumum stöðum segja mína skoðun eftir kommentin, jafnvel á eftir öllum kommentum. Ég mun ekki klára þessi facebook komment í einu bloggi, þau eru of mörg til þess. Það er líka bara meira gaman að bíða eftir restinni.
Vek athygli á að þarna kommentar hluti stjórnar HRFI, einnig Pétur Alan fuglahundadómari og fl. Ég man ekki eftir að hafa séð Jónu Th eða Björn Ólafsson skrifa svona á opinberum vettvangi um meðstjórnendur sína, eðlilega þau eru yfir það hafin.
En svona er hluti stjórnar í dag.
Tek það fram að Pétur Alan Guðmundsson á hausinn svo fylgja kommentin á eftir.
Sorglegt að lesa uppkastið að fundargerð stjórnar HRFÍ sem var sett á netið þrátt fyrir að meirihluti stjórnar hafi ekki samþykkt hana enda fundurinn ókláraður. Þvílík vinnubrögð sem fara þarna fram og eru ekki fullorðnu fólki í félaginu okkar sæmandi.
Sorglegt að sjá hvernig reynt er að eyðileggja félagsandann og brjóta niður sjálfboðastarfið sbr. bréf framkvæmdastjóra til Mosfellsbæjar varðandi Sólheimakot.
Nýtt fólk í stjórn reynir að fá upplýsingar um hvað er í gangi en fær engin svör. Er verið að reyna að fela eitthvað?
Þarna hittir Pétur naglann á höfuðið, fundargerð sett á netið þrátt fyrir að meirihluti stjórnar hafi ekki samþykkt hana!
Þarna átt þú væntanlega við þríeykið Ólaf E Jóhannsson, Önnu Maríu Flygenring og Delíu Kristíu Howser þegar þú talar um meirihlutann, eða er það ekki Pétur? Ég gef mér að þau Björn og Jóna hafi verið búin að samþykkja fundargerðina?
Brjóta niður félagsandann segir þú Pétur. Ég spyr, veist þú Pétur hvað félagsandi er. Er það félagsandi að hlaupa á dyr þegar meirihluti er á móti þér? Er það félagsandi að berjast gegn stofnun deildar um ákveðið hundakyn (Vorsteh) á aðalfundi HRFI, fara margoft í pontu til andsvara þegar aðrir höfðu talað fyrir stofnun deildarinnar?
Er það félagsandi að eiga met í að láta skrá sig í og úr viðkomandi deild? Er það félagsandi að skrá sig í deildir rétt fyrir aðalfund til að ná yfirtöku á deildinni með smölun? Er það félagsandi að skrá sig úr deildinni á sama aðalfundi þegar þínar hugmyndir ná ekki fram að ganga, meirihluti á móti?
Er það félagsandi að loksins þegar þú komst í stjórn viðkomandi deildar að þá loksins hélst þú í deildinni.
Er það félagsandi að hóta að skila dómaraskýrteini þínu ef ákveðnir aðilar verði fengnir til að að starfa fyrir HRFI, eða er það ofbeldi?
Já sennilega er einræði þinn skilningur á félagsanda, þinn vilji = félagsandi !
Pétur spyr að lokum.
„ er verið að fela eitthvað“.
Ég spyr að því sama á móti, er verið að fela eitthvað Pétur? Af hverju mátti fundargerðin ekki birtast á netinu, var verið að fela eitthvað? Það hefur hvergi komið fram hvað það var sem ekki mátti birtast í umræddri fundargerð?
Eru ekki ákveðnir aðilar alltaf að hrópa á að allt eigi að vera uppi á borðinu!
En þá að kommentum við skrifum Péturs.
Svava Garðarsdóttir
ertu með link í umrædda fundargerð ?
Pétur Alan Gudmundsson Ég veit þó að fundurinn var ekki kláraður og óskum þar um hefur ekki einu sinni verið svarað af formanni, drög að fundargerð ekki borin undir stjórnarmenn en samt sett á netið......
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Mjög undarleg vinnubrögð í alla staði ....... myndi aldrei líðast í minni deild alla vega ...
Pétur Alan Gudmundsson
Farðu á Hundaræktarfélag Íslands á FB Svava og þú sérð hana þar. Meira að segja eru birtir afar viðkvæmir póstar þar sem hefði alveg mátt hafa hægt um. Það er búið að laga í einni fundargerð en ekki annarri. Sýnir bara bullið sem er í gangi....
Já afar viðkvæmir póstar segir Pétur, hvaða póstar eru það? Ég hef nú ekki séð neina viðkvæmni út úr þessu. Það eina sem ég hef séð í þessum póstum er ógeðfelld valdbeiting meirihluta stjórnar ef það er það sem þú átt við Pétur. Við sennilega köllum það bara ekki sama nafninu en virðumst samt vera sammála í þessu máli. Viðkvæmni hjá þér kallast ógeðfeldni hjá mér. Spurðir þú ekki í upphafi hvort það væri verið að fela eitthvað?
Meiga þessir tölvupóstar ekki vera uppi á borðinu eins og allt annað?
Pétur Alan Gudmundsson
Virðist vera vísvitandi sem erindum frá nýju stjórnarmönnunum eru settir neðst í dagskrá fundar, fundi "frestað" og svo á nýr framkvæmdastjóri HRFÍ að svara þeim eftir að núverandi hleypur frá ábyrgðinni. Ég bara spyr: Er verið að fela eitthvað?
Þessi feluleikur hjá þér virðist vera einhver þráhyggja. Þú virðist vita um eitthvað sem verið er að fela, af hverju kemur þú bara ekki með það fram? Ef þú veist ekki um neitt sem verið er að fela þá ráðlegg ég þér að finna þér annan frasa til að slá ryki í augu hins almenna félagsmanns HRFI þegar þú elur á neikvæðninni. Það er orðið leiðingjarnt að lesa þannan órökstudda frasa frá þér.
Hahaha gat ekki annað en hlegið upphátt þegar þú segir að núverandi framkvæmdastjóri sé að hlaupa frá hahaha.
Það er semsagt þinn skilningur að Vala sé að hlaupa frá. Pétur þér til upplýsinga þá eru takmörk fyrir því hvað hægt er að leggja á mannfólkið, misjafnt er það vissulega eftir persónum hvað fólk þolir. Ég tel mig hinsvegar vita að Vala er búin þola meira áreiti frá þér og þínum líkum heldur en nokkur meðal manneskja gæti þolað.
Þegar drullumoksturinn nær þeim hæðum með tilheyrandi lykt þá flýr flest skynsamt fólk af hólmi og nægir þá bara lyktin ein og sér til þess.
Fólk áttar sig á því fyrir rest að lífið er of stutt til þess að fórna því fyrir neikvæðar persónur sem gera ekkert annað en níða niður.
Þetta er fólkið sem fylgir sinni sannfæringu þrátt fyrir árásir lítils hóps öfgafulls fólks og lætur ekki beygja sig með hótunum og leiðindum.
Nei frekar kýs þetta fólk að hverfa frá og nota tímann sinn í annað, félagið er fátækara fyrir vikið.
Þessar neikvæðu persónur átta sig því miður oftast of seint á því að þær sjálfar eru uppspretta leiðindanna!
Það er löngu vitað mál að það heyrist alltaf hæst í þeim neikvæðu, hvað eru margir neikvæðir eins og þú Pétur af félagsmönnum HRFI? Nákvæmlega, þeir eru ekki svo margir!
Pétur þú veist þetta alveg, hvað hafa margir látið sig hverfa úr fuglahundasportinu vegna leiðinda og ofríki ákveðinna persóna!
En eins og svo oft áður þá er þetta orðið allt of langt blogg. En það er allt í lagi ég mun láta þetta standa fram yfir helgi, kominn í blogg frí þar til þá. En þetta er nú hellingur til að melta. Ég á enn eftir að koma með helling af fasebook kommentum í viðbót sem eru alveg ótrúleg.
En ég sagði fyrr í blogginu að ég ætlaði að koma með það sem ég fékk sent frá nafnlausu hotmaili. Þar voru ákveðin skrif Vilhjálms Ólafssonar ryfjuð upp fyrir mér.
Takið sérstaklega eftir þessu hérna þar sem ég á eftir að koma með fleiri facebook komment. Einnig að Vilhjálmur er nú búinn að sækja um dómaranám og einnig hefur hann af rausnarskap sínum boðist til að borga fasteignagjöld af Sólheimakoti. Bendi einnig á að ég vitna í hans eigin heimasíðu !
Það hefur margoft komið fram m.a. á fulltrúaráðsfundum að stjórn telur það ekki fara saman að sinna trúnaðarstörfum fyrir Hundaræktarfélag Íslands og taka þátt í opinberum umræðum á hinum ýmsu spjallrásum.
Þetta mætti hluti stjórnar tileinka sér, sérstaklega Delía og Anna, veit ekki enn með Ólaf?
Sjá í heild sinni hér