Keppnin mæltist mjög vel fyrir í fyrra og fengum við hjónin mikið af jákvæðum póstum þar sem oft kom fyrir hvað það væri gaman að geta skoðað svo fjölbreyttar veiðimyndir á einum stað.
Norðmaðurinn Alexander Kristiansen var dómari keppninnar í fyrra en hann vinnur meðal annars hjá fyrirtækinu Web-hunt sem meðal annars sérhæfir sig í veiðimyndböndum, hann mun einnig dæma keppnina í ár.
Hægt er að sjá allar myndirnar sem bárust í keppnina í fyrra á undir linknum, Myndasamkeppni. Einnig gaman að lesa rökstuðning dómara af hverju hver mynd lenti í einu af þremur efstu sætum.
Vegleg verðlaun sem verða kynnt fljótlega verða í vinning fyrir efstu þrjár myndirnar en styrktaraðilar keppninnar eru meðal annars Verslunin Bendir, sérverslun fyrir allt sem hundurinn þarfnast. Verslunin Hlað sem þarf vart að kynna og Veiðihúsið Sakka sem flytur meðal annars inn margt af því veiðidóti sem við skotveiðifólk notum.
Nú er um að gera að taka þátt og senda inn myndir og ekki skemmir að rjúpnaveiðar eru að byrja svo það er um að gera að taka vélina með á veiðar, það er aldrei að vita hvenær Kodak momentið kemur.
Þátttakendur eru beðnir um að senda myndir á netfangið zelda(hjá)zelda.is og þær verða birtar fljótlega eftir að þær berast.
Skilafrestur á myndum er til og með 1. desember og úrslit verða kunngjörð á síðunni þann 10.desember eins og í fyrra.
Heimasíða Zeldu ræktunar, zelda.is er í uppfærslu en ætti að vera komin upp fljótlega undir því léni. Það er eitthvað tæknimál sem við kunnum ekki að útskýra en hefur eitthvað með tenginu á léninu að gera.
Óskum þeim sem ætla sér á rjúpnaveiðar góðrar og ánægjulegra stunda á fjöllum.
Með veiðikveðju Kjartan&Gréta