Vorsteh liðið vann í dag og er gaman að segja frá því að það var engin önnur en Haugtun’s DPB Fri sem tryggði Vorsteh liðinu sigurinn.
Haugtun‘s DPB Fri er náskyld Haugtun‘s Erh Iðu okkar, en mamma Iðu er amma Fri. Ef ég man rétt þá var Fri besti unghundur Noregs árið 2008 og er hún meðal annars á forsíðu árbókar Vorsteh það árið.
Það var eigandi hennar og ræktandi Ola Øie sem leiddi hana í dag sem endranær.
Já auðvitað erum við hrikalega montin að hafa flutt inn úr þessari ræktun. En einnig jafn vonsvikin á móti að gotið undan Iðu og Teit hafi klikkað !
Annars röðuðust tegundir, eftirfarandi í þrjú efstu sætin.
1. Snögghærður Vorsteh
2. Pointer
3. Enskur Setter
Sjá má nánar um keppnina hér
Á morgun er svo fyrsti dagur í Kaldaprófinu. Mjög góð skráning er í prófið eins og fram hefur komið og verður gaman að fylgjast með gangi mála.
Ekki hefur enn verið gefið út hvort bein lýsing verði frá prófinu, en ég hef þegar gefið mig fram um að pikka inn eftir hvert slepp ef áhugi er fyrir hendi.
Mig grunar þó að ég verði ekki beðin um það þar sem þetta sport snýst mun meira um persónur en hunda ,,,,,,,,, já ég veit, ég bara varð.
En ég vona svo innilega að öllum komi til með að ganga vel, veðrið ætti allavega ekki að spilla fyrir miðað við spá.
Jæja meira um aðal hitamálið á morgun.
Góðar stundir