búinn að melta símtalið og get ekki orða bundist.
Símtalið var frá nýjum formanni Vorsteh-deildar, Gunnari Róbert
Péturssyni. Aðdragandi símtalsins var sá að ég hafði áður sent heimasíðustjóra og stjórnarmanni deildarinnar Sæþóri Steingrímssyni mail og beðið um að heimasíða mín yrði sett undir linkinn íslenskir ræktendur á heimasíðu Vorsteh
deildarinnar. Einnig bað ég um að nafn mitt og símanúmer yrði sett undir linkinn viltu kynnast Vorsteh.
Ég fékk svar um hæl sem hljóðaði eftirfarandi.
„Blessaður Kjartan!
Er búin að laga þetta og væri gott ef þú
gætir skoðað hvort þetta sé
ekki rétt hjá mér
kv.
Sæþór“
Ég kíkti á þetta og þetta var alveg til fyrirmyndar, allt komið
inn, bæði linkur á heimasíðuna, nafn og númer.
En Adam var ekki lengi í paradís. Formaðurinn hringdi og
tilkynnti mér að síðan mín hefði verið tekin út, ástæðan væri neikvæð skrif á
blogginu mínu !
Ekki nóg með það heldur var nafnið mitt líka tekið út undir
linknum viltu kynnast Vorsteh.
Linkur á heimasíðu mína mætti vera á
Vorsteh-síðunni ef ég þurrkaði út öll neikvæð skrif, það voru skilyrðin !!
Ég sagði formanninum að ég væri ekki sáttur með þessi vinnubrögð,
ég gæti ekki samþykkt þennan gjörning stjórnar.
Símtalið endaði svo á þá leið að við skildum hugsa þetta og tala
saman eftir 2-3 daga. Ég þurfti hinsvegar ekkert að hugsa þetta í 2-3 daga, ég
hringdi í hann daginn eftir.
Ég fór fram á þá eðlilegu kröfu að linkurinn á heimasíðu mína
yrði settur inn aftur og nafnið mitt undir linkinn viltu kynnast
Vorsteh.
Ég er búinn að kaupa mitt ræktunarnafn sem ekki er ókeypis hjá
HRFI. Deildin á að vinna fyrir mig og aðra sem rækta
Vorsteh-hunda.
Stjórnin væri eitthvað að misskilja verksvið sitt ef þeir haldi
það virkilega að þeir eigi að ritskoða síður einstaklinga og í framhaldi gefa
sér vald til að hafna eða samþykkja ræktunarsíður af eigin
geðþótta.
Fyrir utan það þá er bloggið hjá mér val, þegar þú kemur inn á
síðuna mína þá kemur þú inn á forsíðu, ekki inn á bloggið.
En hvað er það sem er svo neikvætt sem ég hef verið að
skrifa um ? Gæti það verið skrif mín um til dæmis þegar ég sagði frá því að tveir
fuglahunda dómarar, þeir Siggi Benni og Pétur Alan hótuðu að skila inn
skírteinum sínum ef ég gengi með sem aðstoðarmaður erlends
dómara?
Gæti það verið þegar ég sagði frá því að Egill Bergmann
fuglahunda dómari laug uppá mig í votta viðurvist í fuglahundaprófi og ég rakti
frá A til Ö á blogginu.
Gætu það verið skrifin þegar ég sagði frá því hvernig ég var
hanteraður af fyrrverandi formanni FHD varðandi umsókn mína um dómaranám á sínum
tíma og svo fr.?
Ég veit ekki hvað það er, en ég hef svo sannarlega ekki verið að
ljúga neinu í mínum skrifum, ég hef bara verið að segja frá.
Það sem einum þykir neikvætt finnst öðrum
jákvætt.
Gunnar formaður talaði um að það ætti allt að vera jákvætt,
ekkert neikvætt yrði liðið í deildinni. Ég sagði honum sem var að ég væri alveg
með honum þar, en ég er ekki Vorsteh-deild, ég er einstaklingur út í bæ.
Stjórnin var ekki kosin til að stjórna mér heldur Vorsteh-deild.
Gunnar hringdi svo í mig aftur sama dag og sagði mér að
stjórnin hefði ákveðið að allir tenglar hjá ræktendum yrðu
teknir út, já þið lásuð rétt, allir tenglar ræktenda teknir út af
Vorsteh-síðunni !!
Já mikill er máttur minn. Ekki yrði ég ánægður ef mín síða væri
tekin út bara vegna þess að þeir væru ekki ánægðir með einhverja aðra síðu.
Þetta eru ótrúleg vinnubrögð.
Gunnar sagði að jafnt yrði yfir alla að ganga, já sæll !
Gunnar sagði mér svo að þetta yrði tekið fyrir á stjórnafundi,
hugsanlega yrðu allir hlekkir settir inn aftur. Ég hlýt að spyrja, hver hefur
vald til að taka einhliða ákvörðun um að taka út linka ræktenda með heimasíðu?
Ég veit að það var ekki gert á stjórnarfundi, hvar er hægt að sjá fundargerð þar
sem þessi aðgerð var samþykkt.
Já ég get ekki séð annað en að stjórn Vorsteh-deildar sé komin út
á hálan ís ef þeir ætla að taka út linka hjá ræktendum Vorsteh-hunda sem leggja
mikla vinnu og metnað í að kynna Vorsteh-hunda og sína ræktun.
Já ég tók ákvörðun um að nú segi ég stopp. Ég er alveg búinn að
fá mig fullsaddann á einelti gegn mér undanfarin ár.
Það er í raun ótrúlegt að maður sem hefur flutt inn tvo
hunda erlendis frá og búinn að
panta þann þriðja skuli ekki fá að vera með link inn á sína ræktun á
Vorsteh-síðunni.
Ég hef verið með ötulustu mönnum að kynna Vorsteh-hunda að öðrum
ólöstuðum. Ég er búinn að hafa árhif á sölu Vorsteh-hunda úr mörgum
Vorsteh-gotum frá upphafi, þar á meðal tveggja stjórnamanna Vorsteh-deildar sem
voru að koma með got núna.
Ég var einmitt að tala við einn á netinu í gær sem sagði mér að
hann hefði tekið ákvörðun um að fá sér Vorsteh-hund eftir að hafa séð myndböndin
mín á youtube.
Já og þeir bera fyrir sig að ég sé svo neikvæður.
Nei þeir hljóta að átta sig áður en
langt um líður.
En þeir meiga nú líka eiga það sem gott er og verður að
sjálfsögðu að tala um það líka, þetta er nú ekki allt neikvætt. Ég get ekki
annað en hælt stjórn Vorsteh-deildar fyrir Vorsteh-dagana í Garðheimum, það var
virkilega flott framtak sem ég er sannfærður um að eigi eftir að skila sér þegar
fram líða stundir.
Einnig hafa þeir staðið fyrir frábærum æfingum fyrir alhliðavinnu
með Albert hundaþjálfara fremstan í flokki.
Já það er engin spurning að þeir eru að standa sig frábærlega á
sumum sviðum og þakka ég fyrir það.