Zeldu-ræktun óskar ykkur öllum gleðilegs árs og þökkum samfylgdina á árinu sem er að líða. Óskum þess að árið 2013 verði gott ár fyrir okkur öll og bestu vini okkar, fjórfætlingana.
Gull myndin Þá eru úrslit myndasamkeppninnar ljós. Alexaner Kristiansen dómari keppninnar sendi úrslitin seint í gærkvöldi. Við hjónin vorum gríðarlega spennt þegar við opnuðum póstinn og sáum hvað myndir unnu. Alexander rökstyður mjög vel frá sínu sjónarhorni af hverju fyrstu þrjár myndirnar eru í efstu sætunum. Það er virkilega gaman að lesa rökstuðning Alexanders enda er hann fagmaður fram í fingurgóma. Zeldu-ræktun þakkar öllum sem þátt tóku í keppninni, án ykkar þátttöku hefði þetta ekki verið hægt. Zeldu-ræktun þakkar einni styrktaraðlimum keppninar innilega fyrir stuðninginn en það eru eftirfa Veiðihúsið Sakka, verslunin Bendir, verslunin Hlað og heildversluninni Mekka, það er eins með stuðningsaðilana, án þeirra hefði þetta heldur ekki verið hægt. Þetta er annað árið í röð sem þessi keppni er haldin og miðað við áhuga á keppninni þá er alveg ljóst að hún verður haldin aftur að ári að öllu ábreyttu. En nóg komið af tali, hér á eftir koma myndirnar þrjár sem voru í efstu þremur sætunum. Zeldu-ræktun óskar vinningshöfum innilega til hamingju með sigurinn og virkilega flottar myndir. Til að sjá myndir stærri klikkið á viðkomandi mynd en þeim verður öllum gerð góð skil ásamt vinningshöfum undir linknum myndasamkeppni 2012 í dag. Haft verður samband við vinningshafa í dag. Gefum Alexander orðið. I would like to thank Greta and Kjartan for again asking me to be a judge in this photo competition. Many photos has been entered to the competition and it has been hard to pick out the three best photos. When I look at the photos I am searching for something special and unique. A standard trophy picture after the “kill” is seldom very interesting. I like to see people or animals doing something, not just sitting besides a dead animal. Here are the three best pictures for 2012: Mynd nr.3 Sendandi Brynjar SmárasonBrons myndin Number 3: A hunter is waiting for his prey to appear. The decoys are on the water and the sky behind the hunter is beautiful. The horizon could have been adjusted so it is level, but all in all a good picture. Congratulations to the bronze-winner! Mynd nr 2. Sendandi Oddur Örvar MagnússonSilfur myndin Number 2: A great picure of an pointing english setter. The photographer has taken the time to walk in front of the dog, so the angle is more interesting. The photo is well composed, but I would like a litte more air on the left side of the dog. The photo is in focus and correctly exposed. The light is beautiful and the dog also. Congratulations to the silver-winner! Mynd nr. 1 Sendandi Ingólfur GuðmundssonGull myndin Number 1: When I saw this picture I really was sure that this would be the winner! The angle is really unique and interesting and gives us an unusual view of a hunting situation. The photographer has chosen to put his camera close to the ground giving us this great photo. The light is beautiful, the look on the dog is intense, the sky looks like it is painted and even though the dog is moving really fast towards the bird, it is in perfects focus. Well done! And the photo is ofcourse taken at the perfect time. A worty winner of this years photo competition, congratulations to the winner! Hrísla Ég hef sagt áður að það er erfitt að koma tilfinningum til skila í texta svo vel sé, þetta eru alltaf svartir stafir á hvítum grunni, svo hrátt eitthvað. Enginn raddblær, enginn tónn né látbragð. Það er ekki á færustu nema allra bestu penna að koma tilfinningum til skila í rituðu orði, ég er ekki einn af þeim. Ég varð rosalega dapur þegar ég las nýjustu fundargerð af stjórnafundi HRFI. Ég varð dapur af því ég veit nákvæmlega hvað er í gangi. Ég varð dapur því ég fékk þá tilfinningu að verið væri að skaða eitthvað sem mér er ekki sama um, þetta eitthvað er HRFI, áhugamannafélag okkar hundaeigenda. Ég verð dapur þegar ég neyðist til að viðurkenna að raunveruleikinn er virkilega eins og hann er. Ég verð dapur þegar ég hugsa um þá staðreynd að það heyrist alltaf hæst í þeim fáu neikvæðu. Ég er dapur vegna þess að hæft fólk vill hætta að starfa fyrir félagið okkar vegna persónulegra samskipta sinna við ákveðna stjórnamenn félagsins. Eftirfarandi er tekið úr fundargerð HRFI (stjórnarfundi) Úrsögn Súsönnu Antonsdóttur úr stefnumótunarteymi HRFÍ: ,, HRFI Jóna Th. Viðarsdóttir, formaður Í framhaldi af umræðum við stjórn félagsins á stjórnarfundi 31. október s.l. hef ég ákveðið að draga mig úr Stefnumótunarteymi félagsins. Það viðmót sem við fengum á umræddum fundi frá nýjum stjórnarmeðlimum varð til þess að ég hef ekki áhuga á að starfa að þessu málefni eins og er. Ég vil taka það skýrt fram að fyrri stjórn félagsins og þeir stjórnarmenn sem þar sátu og sitja í núverandi stjórn hafa lagt sig alla fram um að aðstoða teymið með vinnuframlagi, mikilli aðstoð og hvatningu og eiga þau þakkir skildar fyrir það. Súsanna Antonsdóttir“ Já ég varð dapur þegar á las þetta. Ég varð dapur því það er því miður ekki einsdæmi að hæft fólk með mikinn vilja og áhuga hverfi frá störfum fyrir félagið okkar. Ég varð dapur þegar ég las þetta frá Sonju því hún ryfjar upp fyrir mér mína eigin reynslu. Er það tilviljun að einn af þessum stjórnamönnum sem Sonja talar um var einmitt formaður fuglahundadeildar í allt of langan tíma. Ég veit um svo marga hæfa aðila sem voru fullir áhuga og elju til að vinna fyrir fuglahundadeildirnar en voru hraktir í burtu, það er greinilega að smitast í félagið með nýju fólki! Þetta fólk sem hraktist frá áttaði sig á því að tíminn væri dýrmætari en svo að hægt væri að eyða honum í svona fólk. Það fyndna er að þetta nýja/gamla fólk er til þess að gera nýkomið að stjórnaborðinu en veit samt allt og getur allt. Hugsið ykkur, þetta er áhugamannafélag, ekki ríkisstjórn, ekki stórfyrirtæki sem höndlar með milljónir eða hefur áhrif á lífsafkomu okkar. Nei þetta er áhugamannafélag þó erfitt sé að trúa því þegar svona er lesið. Birti hér bókun formanns á þessum dapurlegu tíðindum „Bókun formanns, Jónu Th. Viðarsdóttur: Það er dapurlegt að dugmiklir félagsmenn, sem lagt hafa mikið af mörkum, skuli ekki treysta sér til frekari starfa fyrir félagið okkar vegna viðmóts og samkiptamáta ákveðinna stjórnarmanna. Ég vil nota þetta tækifæri og þakka Súsönnu fyrir vel unnin störf í þágu félagsins okkar.“ Ég varð líka dapur þegar ég las í fundargerðinni að Ólafur Jóhannesson er að leggja fram breytingar á hinu og þessu, sérstaklega varðandi fuglahundageirann. Ef grant er skoðað þá er engu líkara en að hann sé að reyna að gera HRFI að deild innan fuglahundadeildar. Allur ágóði prófa renni til fuglahundadeildanna sem halda viðkomandi próf! Hvað er næst, allur ágóði af hundsýningum rennur til þeirra hundategunda sem þátt tóku á sýningunni og skal honum skipt á milli tegunda miðað við hlutfallslegan fjölda hverrar tegundar? Ég verð líka dapur þegar perónur með takmarkaða þekkingu og áhuga á málum leggja fram breytingartillögur á reglum veiðiprófa. Ég verð dapur þegar persónur leggja til breytingar án þess að hugsa til þess hvaða áhrif breytingarnar hafa, hvar endar breytingin að lokum. Það er góð hugmynd að fara í fótbolta út í garði, það er ekki eins gaman þegar boltinn fer í rúðu og brýtur hana! Ég verð dapur þegar reynt er að færa ákvarðanatökur sem eiga heima í stjórn félagsins til einhvers dómararáðs, já vel aðnefna, dómararáðs sem aldrei hefur verið stofnað, er bara til í orði en ekki borði. Oftast er betra að gera ekki neitt í stað þess að gera bara eitthvað! Svo er til önnur tilfinning sem heitir reiði. Við þekkjum öll þá tilfinningu, hún væri ekki til nema við þyrftum að nota hana stundum. Hægt er að vera mismunandi mikið reiður, lítið reiður, mikið reiður eða jafnvel æfur af reiði! Ég varð aðeins reiður þegar ég las eftirfarandi bókun í fundargerðinni. Alvarleg ávirðing á formann HRFÍ - Úr tölvupósti frá Deliu Howser til formanns 3. esember 2013 ,, Nú virðist liggja fyrir að Valgerður hefur hafið störf í Víðistaðaskóla að hluta til. Mér hefði fundist lágmarkskurteisi að senda stjórn upplýsingar um slíkt - ég hefði ekki sett mig upp á móti því að hún byrjaði fyrr. En svona pukur og fals fer alltaf illa í mig!” Bókun formanns Jónu Th. Viðarsdóttur: Það er fráleitt að stjórnarmaður skuli halda því fram að “pukur” og “fals” hafi verið viðhaft um starfslok framkvæmdastjóra. Þvert á móti fóru fram umræður á stjórnarfundi þann 31.október 2012 þar sem upplýst var að framkvæmdastjóri hefði fengið aðra vinnu en myndi starfa áfram og ljúka ákveðnum verkefnum í þágu félagsins. Jafnfram var tilkynnt að framkvæmdastjórinn óskaði eftir að hætta eins fljótt og hægt væri. Engar athugasemdir voru hafðar uppi um þennan hátt á starfslokum framkvæmdastjóra á þessum stjórnarfundi. Delia Howser var í útlöndum og boðaði varamann sinn á þennan fund. Ég harma það hins vegar að þessi samskiptamáti og virðingarleysi sé í samskiptum stjórnarmanna eins og fram kemur í framlögðum tölvupósti frá Deliu Howser stjórnarmanni. Þetta vissi meira að segja ég þó ég sé ekki í stjórn HRFI, það þarf ekki annað en lesa fundargerðina frá þeim fundi sem Delia var erlendis. Mér finnst það hreint ótrúlegt að Delia setji sig sem stjórnarmannseskja ekki betur inn í málin, það er lágmark að hún lesi fundargerð þess fundar sem hún mætti ekki á. Eftirfarandi er tekið úr fundargerð stjórnarfundar HRFI þann 31.október „4. Uppsagnarbréf frá framkvæmdastjóra HRFÍ Valgerður Júlíusdóttir framkvæmdastjóri hefur sagt upp starfi sínu hjá félaginu. Hún óskar eftir að hætta sem fyrst þar sem hún hefur fengið aðra vinnu. Hún á inni ótekið orlof en auðvitað fer hún ekki frá ákveðnum verkefnum eins og næstu sýningu.“ Delia reyndi að klóra yfir ruddaskapinn með eftirfarandi „Bókun frá Deliu Howser: Skortur á samskiptum og ónóg upplýsingagjöf frá formanni stjórnar varð til þess að undirrituð taldi að verið væri að leyna stjórnarmenn um störf framkvæmdastjóra á nýjum stað samhliða störfum hjá HRFÍ. Virðingarfyllst, Delia Howser“ Delia, bara lesa fundargerðina frá fundinum sem þú mættir ekki á, þetta stendur allt þar. Ekki kenna formanni HRFI um að þú sért vanhæf (mitt álit sem þarf ekki að vera rétt) til að sitja í stórn HRFI, það er bara því miður eitthvað sem formaðurinn getur ekki að gert! Það er ákvæði í reglum til að náms til fuglahundadómara að hver sá sem sækir um dómaranám skuli vera hæfur í mannlegum samskiptum, ég var einmitt felldur á því, kemur ekki á óvart. En hvað þarf til að vera hæfur í stórn HRFI, er von að maður spyrji? Ég þekki Deliu ekki neitt, hef aldrei talað við manneskjuna. Addaði henni reyndar á facebook fyrir 2. dögum en hef ekki enn verið samþykktur af henni sem vinur. En þetta er ekkert persónulegt þar sem ég þekki hana ekki neitt, en það sem ég hef lesið frá henni í fundargerðum HRFI hefur markað þá skoðun mína að hún sé vanhæf í stjórn félags sem ég er meðlimur í. Bara það að vilja setja blendinga í gagnagrunn félagsins HRFI sem stendur vörð um ræktun og skráningu hreinræktaðra hunda er nóg til að ég lýsi yfir minni skoðun varðandi meint vanhæfi. Einnig er það þannig að í félaginu eru á milli 2500-3000 manns, það á að starfa fyrir þá alla, ekki bara 4-5 aðila. Það eru fordæmi fyrir því að stjórnamenn hafi hætt að mæta á fundi. Einhverntímann var Pétur Alan í stjórn HRFI, hann hætti að mæta á stjórnarfundi þegar hann fékk ekki eitthvað í gegn sem hann vildi (kunnuglegt) svo Delia gæti alveg gert það sama, hætta bara að mæta á fundi. Það ætti að vera auðveldara hjá henni þar sem ekkert atkvæði er á bak við hana og hún því ekki að svíkja neinn þó hún hætti í stjórn HRFI. Pétur var ef ég man rétt með einhver atkvæði á bak við sig í stjórn HRFI þegar hann hætti að mæta á stjórnarfundi. Reyndar sagði einn við mig um daginn Deliu til varnar. Ég held að Delia sé fín, held hún hafi bara lent í slæmum félagsskap þarna! Enn og aftur, lesið nýjustu fundargerð HRFI, alltaf janf mögnuð lesning, sjá hér þar er meðal annars hægt að lesa meira um hið ótrúlega mál um Sólheimakot og huldufélag sem stofnað hefur verið í sambandi við það, lesning er sögu ríkari. Næst held ég að óbreyttu áfram með facebook kommentin, það fer að koma að kommenti frá örðum stjórnarmanni sem ég á eftir að birta. Já það verður einhver að fylgjast með. Þangað til næst, góðar stundir Enn er von Síminn hringdi hjá mér í morgun kl 10:20, ég svara, halló. Já góðan daginn, Kjartan? Það er hann. Sæll xxxxxx heiti ég og hringi frá DV. Já sæll. Blaðamaður, Heldur þú úti heimasíðu undir léninu zelda.is? Já það mun vera svaraði ég. Blaðamaður, hvað er að gerast hjá HRFI, er allt að verða vitlaust? Ég hugsaði mig aðeins um þar sem það kom nokkuð flatt upp á mig að blaðamaður DV væri að hringja í mig en svaraði svo, já það er allt að verða vitlaust! Blaðamaður. Er möguleiki að taka við þig viðtal vegna þess? Ég, heyrðu þú gast ekki hitt ver á mig (ég var að detta inn á fund sem ég var að verða seinn á) er möguleiki að þú hringir í mig eftir ca 1. Klukkutíma? Blaðamaður, já ég geri það, takk. Þegar þetta er skrifað hefur blaðamaður ekki hringt aftur, ég tékkaði náttúrulega á númerinu sem hringt var úr og er það skráð á DV. Get samt ekki annað en hugsað svona eftir á, hvað vildi hann eiginlega. Ég veit að margir hafa misjafnar skoðanir á þessu dagblaði, en það er alveg ljóst að margt væri enn undir yfirborðinu hér á landi ef ekki nyti DV við, það verður að viðurkennast. Þeir hafa verið einna duglegastir að flétta ofan af spillingu og benda á óeðlileg vinnubrögð og skiptir þá ekki máli hver á í hlut. Það skildi þó aldrei vera að hann hafi viljað ræða eitthvað því tengdu við mig? Ég ætlaði nú fyrirfram að kalla þetta blogg mitt „hálf-leikur“ vera með léttari skrif en ég hef séð mig knúinn til að vera með undanfarið. Þetta símtal í morgun hafði því miður áhrif á það. En kannski þetta símtal verði bara jákvætt eftir allt saman, hver veit? Nokkuð viss um að margir landsmenn sem hafa engan áhuga á hundum verði spenntir að lesa það sem gengur á í stjórn HRFI! Ætlaði meðal annars að minna á að frestur til að skila inn myndum í ljósmyndasamkeppni Zeldu-ræktunar rennur út á miðnætti annað kvöld. Einnig ætlaði ég að kynna vinninga í keppninni en hægt er að sjá þá hér undir myndum sem þegar hafa borist í keppnina. Bara gaman að þessu. Verð þó að benda á snilldar komment sem mér var sent á eitt bloggið mitt, það segir meira en mörg orð um það sem ég hef verið að blogga um. Þetta eru mjög stutt en hnitmiðuð skrif, sjá hér. Þar til næst, góðar stundir Að deyja eða lifna? Fyrir þá fjölmörgu sem eru að byrja að fylgjast með blogginu þá langar mig að segja þeim hvers vegna ég er að þessu öllu saman, eyða tíma og fyrirhöfn í öll þessi skrif, afla heimilda og kryfja málið. Stutta svarið er, mér er ekki sama um félagið okkar! Réttlætis og siðferðiskennd minni er stórlega misboðið og er ég ekki eini félagsmaðurinn sem upplifir þá tilfinningu. Fyrir þá sem ekki eru vel inni í málum þá þarf ekki mikla fyrirhöfn til að koma sér inn í málið, það eina sem þarf að gera er að lesa fundargerð af stjórnafundi HRFI hér neðar á blogginu mínu 28.11.2012 sem ég kallaði, HRFI, félagið okkar eða? Ég lofa þér því að þú hættir ekki að lesa þegar neðar kemur, það er ótrúleg lesning. Þessi fundargerð var gagnrýnd af örfáum aðilum, þó mest fannst mér af Pétri Alan Guðmundssyni sem átti þar engra hagsmuna að gæta og svo voru tveir stjórnamenn, Delia og Anna María. Ég gat vel skilið þeirra mótbárur enda kemur glögglega í ljós hvernig þær vinna að okkar málum þegar fundargerðin er lesin. Þetta eru vinnubrögð sem ámælisverð og ekki í anda áhugamannafélags eins og HRFI, hreint til skammar. Þessi fundargerð stoppaði ekki lengi á netinu, en þó nógu lengi til að ég gæti náð að copy-a hana og setja hana inn á bloggið mitt. Skora svo á ykkur í framhaldinu að lesa nýju fundargerðina inn á HRFI sem kom í staðinn fyrir þessa sem tekin var út, hún er engu skárri. Mín skoðun og margra annara er sú að þarna sé ekkert annað en ofbeldi og einelti stundað í krafti meirihluta stjórnar. Það virðist ekki vera að hagur félagsins sé settur nr.1 samanber Sólheimakotsmálið, heldur eins og ég hef sagt áður minnir þetta á fjandsamlega yfirtöku. Ég spáði því fyrir 2-3 árum að ákveðnir aðilar ætluðu sér að ná yfirtökum í félaginu, ég var því miður sannspár! Hvað gengur þessum aðilum til, hvað á að vera svona flott og fínt hjá þeim, jú kannski eins og Delia stjórnarkona fór fram á að blendingar yrðu skráðir í gagnagrunn félagsins. Já þið lásuð rétt, blendingar skráðir hjá HRFI, hvað er þá næst, kettir kannski? En ætla að halda áfram frá síðasta facebook kommenti sem ég birti frá Pétir Alan en það var eftirfarandi. „Pétur Alan Gudmundsson Takk Delia hef fullt traust á þér og nýja fólkinu í stjórninni sem þorir og vill bæta félagið okkar í stað þess sem getur ekki sætt sig við breytta tíma og opnara félag. Veit að meginþorri félagsmanna er til í þetta en þorir ekki að tjá sig af ótta við að lenda úti í kuldanum eins og hefur verið undanfarin ár og hvert leiðir það? Jú til færri og færri sjálfboðaliða og minna félagsstarfs en vonandi eru nýjir tímar að koma sem leiða til bættara og opnara félags. Ég hef ekki skilið þessa þöggun á mörgu sem félagsmenn vilja fá svör við. Hafið allt uppi á borðinu ekki undir því eins og hefur verið þá fáið þið nýja fólkið í stjórn þá sem ekki þora í dag til að koma fram.” Hahaha já hefur fullt traust á Deliu sem vill skrá blendinga í gagnagrunn HRFI, góður Pétur. Ef það er að bæta félagið þá hefur eitthvað farið fram hjá mér! Pétur talar þarna um að þora. Langar að segja frá því að um helgina hringdi í mig persóna sem er búin að vera lengi í HRFI, mörg ár. Þessi persóna sagði mér að henni/honum langaði að deila blogginu mínu á facebook síðu sína þar sem hann/hún væri sammála mér nánast í einu og öllu. Málið var bara að hann/hún þorði því ekki því hún væri með marga af þeim sem ég skrifa um sem vini á facebook ,,,,,,,, já svona er HRFI í dag. Ég gat samt ekki annað en hlegið þegar ég las þetta komment frá Pétri, það er engu líkara en hann hafi tekið skrif eftir mig þar sem ég hef gagnrýnt hann og fleiri í FHD og fuglahundageiranum og gert þau að sínum, þá á ég við allt nema Deliu partinn í þessum skrifum. Þarna er Pétur að mínu mati að skrifa um sjálfan sig og sína skósveina sem hafa rústað fuglahundafélagsskapnum, gert hann að fámennri klíku þeirra sem fylgja hans skoðunum. Aðeins þeir sem borða úr hendi gjafarans eiga möguleika á að vera með, þeir sem slá á höndina, eru of stoltir til að þiggja, hundanammið ekki nógu freistandi til að láta undan hlýðniæfingum þjálfarans meiga úti frjósa. Pétur segir að MEGINÞORRI félagsmanna sé til í þetta. Meginþorri af 2.500-3.000 manns, hvernig getur Pétur fullyrt svona. Getur það virkilega verið að hann sé búinn að tala við meginþorra félagsmanna og ef svo er þá spyr ég, til í hvað Pétur? Er það virkilega svona áhrifamikið hjá Pétri að bara með því að hlaupa um allt með myndavél og taka myndir af öllum þeim hundum sem hann sér, hæla eigendanum aðeins hvað hann eigi nú fallegan hund að viðkomandi sé sammála honum. Nú er ég ekki að gera lítið úr Pétri með myndavélina, margar flottar myndir hjá kallinum, en kommon, meginþorri félagsmanna! Grunar frekar að þessi myndavélahlaup virki svipað og þegar hann ásamt fylgisveinum smalaði fólki úr smáhundadeildum til að kjósa í stjórn FHD á sínum tíma, fólki sem gat ekki verið meira sama um þann félagsskap, var ekkert inni í málum í þeirri deild. Fólkið mætti eftir fortölur frá Pétri, þetta er hægt að staðfesta. Þetta var gjörningur hjá Pétri sem varð meðal annars til þess að reglum var breytt varðandi kosningar í stjórn deilda. Getur verið að Pétur sé að segja að meiginþorri félagsmanna séu hreinlega ekki inni í málum, hugsar bara um að mæta með sína hunda á sýningar, hugsar um ræktun og framgang sinnar hundategundar og veit ekki betur en að allt sé með felldu í áhugamannafélaginu HRFI? Þetta fólk hrekkur svo upp við vondan draum og trúir því sem nýju neti að allt sé og hafi verið í kalda kolum í félaginu þegar það heyrir rödd Péturs og hans fáu skoðanasystkina. Já ég held það Já færri og færri sjálfboðaliða segir Pétur. Ætli Pétur sé þá að meina svona eins og þegar hann byrjaði að skipta þér af fuglahundamálum, þá fækkaði og fækkaði í hópnum þar til aðeins örfáir skósveinar urðu eftir til að vinna alla vinnuna. Skráningum í viðburði fuglahundadeildanna hefur snarfækkað þrátt fyrir mjög mikla fjölgun hunda í þeim geira. Frá því Pétur og Ólafur Jóhannsson komu að fuglahundamálum hafa þau verið rústir einar. Handvalið er í hvert rými (sem eru mörg) af mönnum sem vilja ríghalda í einhverja stjórnartauma en fólki með áhuga, vit og þekkingu er úthýst. Þetta geta margir vitnað um og það veit Pétur vel. Flest allir sem koma nýir inn og vilja nú kynna sér málin flýja fljótlega í ofboði eins og rottur frá sökkvandi skipi. Pétur ég get fengið marga til að vitna um það, þetta er bara þeirra upplifun. Það þarf ekki að skoða lengi til að sjá þessa örfáu aðila sem ég er að tala um. Þeir eru í mörgum embættum, sami maður er í stjórn deildar, hann er einnig í veiðiprófanefnd, hann er í endurskoðunarnefnd fyrir veiðiprófsreglur, hann er í dómararáði (sem reyndar er ekki til) og sá sami hoppar svo á milli sæta og samþykkir eigin tillögur og gjörninga. Er það þetta sem Pétur meinar þegar hann talar um opnara félag? Hann veit jafnvel og ég og allir sem hafa komið nálægt fuglahundageiranum að það hefur þurft að smala á viðburði deildanna, veiðipróf og fl. Þegar ég var að byrja í þessu fyrir 13 árum þá var nánast fullbókað í hvert próf og komust ekki allir að sem vildu, í dag þarf eins og áður sagði oft að smala í prófin. Ég var á deildarfundi um daginn hjá stæstu fuglahundadeildinni, Vorsteh-deild og sátu ekki nema 9 meðlimir deildarinnar allan fundinn + 2 menn sem ekki voru í deildinni. Af þessum 9 voru 4 stjórnarmenn, þar á meðal Pétur! Ef þetta styður ekki það sem ég er að reyna að benda á hvað styður það þá? En að Pétur hugsi í þessu samhengi að það gæti eitthvað verið að hjá forystumönnum í þessum félagsskap,nei það er alltaf einhverjum öðrum að kenna. Af hverju skildu svo fáir mæta á fundi og sína viðburðum deildar sem Pétur er stjórnarmaður í svo lítinn áhuga? Ætti ekki allt að vera svo skemmtilegt og opið. Nei það er mikill munur á orði og á borði. Hverra hagsmuna hafði Pétur Alan að gæta þegar hann gagnrýndi fundargerð HRFI, viðkvæmir tölvupóstar sagði hann. Svo segir hann í öðru orðinu að allt eigi að vera uppi á borðinu. Einnig athyglivert hversu mikill samhljómur er með þeim Pétri og stjórnarkonunum þeim Deliu og Önnu Maríu? Við vitum einnig að Pétur er persónulegur vinur Ólafs Jóhannssonar stjórnarmanns HRFI, það var jú Pétur sem stakk upp á Ólafi í stjórn FHD á sínum tíma og fáir vissu hver Ólafur var hvað þá meira. Já er nema von að maður finni smá lykt af spillingu. Talandi um það, ég get komið með dæmi þar sem Ólafur samþykkti eitt mál í stjórn FHD en sagði svo annað á bak við og hafði þar áhrif á framgang þess máls. Það var þegar ákveðinn aðili sótti um dómaranám og var samþykktur með 3 atkvæðum gegn 2 en sagði svo við formann dómararáðs (sem ekki er til) að þessi samþykkt hans hefði bara verið í orði en ekki á borði! Er það þetta sem Pétur á við þegar hann talar um að hafa allt uppi á borðinu? Það er hægt að skrifa heila bók, nei margar bækur um þessi mál. Ég trúi því og treysti að í framtíðinni eigum við eftir að vera þeirrar gæfu aðnjótandi að vera laus við umdeilt niðurbrotsfólk í áhrifastöðum í félaginu okkar. Langar að tileinka Ólafi Jóhannssyni þetta lag hér. Ég valdi óperuútgáfuna af því þar sem mér finnst söngkonan túlka textann svo vel með kunnuglegum svipbrigðum. Klikka hér til að hlusta á lagið En að lokum langar mig að vísa í komment sem ég fékk á eitt bloggið mitt frá Vilhjálmi Ólafssyni þar sem hann sagði ”viltu þá ekki birta þennan link líka” Mér er það bæði ljúft og skilt að birta linkinn sem Vilhjálmur bendir á þar sem ég hafði áður birt link um tengt málefni. Sjá hér Það sem kom mér samt á óvart þegar ég las þetta var að Vilhjálmur er nýbúinn að segja eftirfarandi á fulltrúaráðsfundi HRFI. Gott að hafa það í huga þegar klikkað er á viðkomandi link, að Vilhjálmur kom fram með eftirfarandi tillögu. Eftirfarandi er tekið úr fundargerð þess fundar. ”Vilhjálmur Ólafsson óskaði eftir að taka til máls. Hann sagði frá veiðihundaprófi sem Ferdinand Hansen hafði dæmt. Hann ræddi síðan, að hans mati, niðrandi skrif á vefsíðum og vildi afhenda stjórn útprentun því til staðfestingar. Hann vildi að stjórn tæki á málinu og að fundurinn ályktaði um þetta mál.” Þar til næst, góðar stundir Sólarlag Ég er að fá ótrúleg viðbrögð við bloggi mínu um stjórn HRFI og eru þau öll á sama veg. Reyndar sagði einn félagsmaður við mig að ég væri nú heldur grimmur en allt sem ég skrifaði ætti að koma fram. Það getur vel verið að ég sé í grimmari kantinum í skrifum mínum, en því miður þarf þess. Ég nenni ekki að skrifa í gátum eða eins og köttur í kringum heitan graut. Það verður að segja hlutina eins og þeir eru enda reyni ég að rökstyðja skrif mín eins vel og ég get og vitna í fundargerðir og fl. Eitt símtal fékk ég um helgina sem mér fannst mjög athyglivert. Þá hringdi í mig persóna sem búin er að vera lengi í félaginu. Þessi persóna sagði eins og nánast allir sem ég hef fengið viðbrögð frá að hún ætti ekki til orð yfir þessum vinnubrögðum á stjórnafundum HRFI, hvað væri eiginlega í gangi. Þessi aðili spurði mig hvort ekki væri hægt að lýsa yfir vantrausti á stjórn HRFI? Fundargerðir félagsins sýndu svo ekki verður um villst að að stjórnin er óstarfhæf! Ná nógum mörgum félagsmönnum saman til að fara fram á auka aðalfund, leggja fram vantrausttillögu og kjósa um hana.Þessi aðili vildi kjósa um vantraust á 3 aðila í stjórn, en ég held það sé ekki hægt, það verði bara að lýsa yfir vantrausti á alla stjórnina þó flestir myndu vita hverjum vantraustið væri ætlað. Ekki vitlaus hugmynd ef hægt er að framkvæma hana. Það er alveg ljóst að svona getur þetta ekki gengið, minni aftur á að þetta er félagið okkar og við eigum ekki að líða svona vinnubrögð og framkomu. Þegar ég les fundargerðir HRFI þá finnst mér vinnubrögðin lykta af kunnuglegu einelti. Í þessu bloggi mínu ætla ég að halda áfram með facebook kommentin sem ég hef verið að blogga um að undanförnu. Ég byrja þar sem frá var horfið í þarsíðasta bloggi mínu en þá átti Pétur Alan síðasta kommentið. Komment. Guðrún Hafberg Pétur hvað félagsstarf er verið að eiðileggja...ég sem hélt að það væri B'UIÐ að eiðileggja það????????? Rétt hjá Guðrúnu að mínu mati, eyðileggingin byrjaði eftir síðasta aðalfund HRFI ! Delia Howser Ágætu félagar - við látum ekki eyðileggja félagið, því félagið er jú fólkið = við! Fyrir mína parta er ég tilbúin í þau verkefni sem mér var treyst fyrir og ég er þrjóskari en andskotinn :) Nú liggur fyrir að ráða inn nýjan framkvæmdastjóra og með nýju fólki koma nýjar áherslur sem við vonum að verði félaginu til hagsbóta á þessum erfiðu tímum. Við hin höldum áfram að vinna félaginu vel og byggja upp flott félag. Takið eftir, þarna ritar Delia Howser stjórnamaður HRFI. Kryfjum aðeins hennar skrif. Delia segir meðal annars. ” Ágætu félagar - við látum ekki eyðileggja félagið, því félagið er jú fólkið = við!” Ég spyr Delíu þar sem hún skrifar þetta á internetið. Hver/hverjir eru að eyðileggja félagið? Ekki hægt að lesa annað úr hennar skrifum en félagið liggi undir skemmdum af völdum einhverra aðila og ég sem félagsmaður vill fá að vita hverjir það eru? Hún segir einnig. "Fyrir mína parta er ég tilbúin í þau verkefni sem mér var treyst fyrir og ég er þrjóskari en andskotinn” Ég spyr, hver treysti þér fyrir verkefnum Delia? Því miður voru engin mótfraboð í stjórn HRFI þannig að þú gast labbað inn í stjórnina án atkvæða. Við vitum ekkert hvað hefði gerst ef einhver frambærilegur hefði boðið sig fram í stjórn gegn þér. Og að vera þrjóskari en andskotinn telja flestir til lasta, ekki kosta! Og hún heldur áfram. “Nú liggur fyrir að ráða inn nýjan framkvæmdastjóra og með nýju fólki koma nýjar áherslur sem við vonum að verði félaginu til hagsbóta á þessum erfiðu tímum.” Já hvaða aðilar taka ákvörðun um hver verður ráðinn framkvæmdastjóri HRFI, er það ekki meirihluti stjórnar HRFI sem tekur þá ákvörðun og ef svo er hverjir tilheyra þá þeim meirihluta? Hægt að sjá svar við þessari spurningu með því að lesa fundargerðir HRFI Það verður forvitnilegt að sjá hver verður ráðinn, hvort búið sé að ákveða kandidat í það starf sem er ljúfur í taumi og gengur á hæl. Erfiðu tímum, já þar er ég sammála Delíu, þetta eru sko erfiðir tímar enda eru þeir gerðir erfiðir af persónum. Og hún endar á eftirfarandi. “Við hin höldum áfram að vinna félaginu vel og byggja upp flott félag.” Hver eru við hin og hverjir eru ekki við hin. Ekki við hin hljóta að vera þeir sem eru að vinna félaginu skaða? Félagsmenn eiga heimtingu á því að vita hverjir eru að vinna gegn félaginu! Ég og fleiri höfum okkar skoðanir á því hverjir séu að vinna gegn félaginu, það væri samt gaman að heyra það frá Delíu. Það þarf ekkert að byggja upp flott félag Delía, HRFI er flott félag og hafa starfsmenn þess oftast í gegnum árin unnið frábæra vinnu okkur hundaeigendum til handa. Guðrún Hafberg er framkvæmdarstjórinn að hætta?????????? Já og skildi engan undra, ótrúlegt hvað hún Vala hefur þraukað lengi. Ég get þó ekki annað en óskað Valgerði til hamingju með að losna undan rexinu og pexinu frá þessum aðilum. Kem aftur að því að það er eitthvað svo rangt við að fólki skuli létta þegar það fer frá störfum fyrir félagið. Störfum fyrir áhugamannafélag, ótrúlegt. Delia Howser Já Valgerður hefur sagt upp störfum Eins og áður sagði, ég er ánægður fyrir hönd Valgerðar en leiður fyrir hönd félagsins að hún sé að hætta. Ætla svo í lokin að enda hér á kommenti frá Pétri Alan, ég tjái mig um það í næsta bloggi. Reyndar dæma þessi skrif sig sjálf hjá Pétri, bið ykkur um að lesa þau í það minnsta tvisvar yfir! Langar samt að leyfa ykkur að heyra skemmtilegt lag svona í lokin, þið áttið ykkur þegar þið heyrið lagið, það verður jú að hafa gaman að þessu líka. Klikka hér til að hlusta á lagið. Þangað til næst, góðar stundir Pétur Alan Gudmundsson Takk Delia hef fullt traust á þér og nýja fólkinu í stjórninni sem þorir og vill bæta félagið okkar í stað þess sem getur ekki sætt sig við breytta tíma og opnara félag. Veit að meginþorri félagsmanna er til í þetta en þorir ekki að tjá sig af ótta við að lenda úti í kuldanum eins og hefur verið undanfarin ár og hvert leiðir það? Jú til færri og færri sjálfboðaliða og minna félagsstarfs en vonandi eru nýjir tímar að koma sem leiða til bættara og opnara félags. Ég hef ekki skilið þessa þöggun á mörgu sem félagsmenn vilja fá svör við. Hafið allt uppi á borðinu ekki undir því eins og hefur verið þá fáið þið nýja fólkið í stjórn þá sem ekki þora í dag til að koma fram. Kjartan Antonsson Mér berast þær fréttir reglulega að mikið sé orðið rætt um bloggið mitt varðandi málefni HRFI, það er jákvætt og bið ég ykkur öll um að dreifa þessu sem mest. Koma þessu á sem flestar facebook síður og mögulegt er, þetta varðar okkur öll sem erum í félaginu. Ég ætla aðeins að tjá mig áður en ég kynni næstu facebook comment sem mér voru send og ég hef verið að blogga um upp á síðkastið. Í dag gaf ég mér tíma til að lesa nýja og samþykkta fundargerð frá stjórnarfundi HRFI. Kemur hún í staðinn fyrir hina ósamþykktu og umdeildu fundargerð sem tekin var af netinu vegna viðkvæmra tölvupósta. Það er reyndar hægt fyrir þá sem eru að byrja að fylgjast með að lesa hana hér aðeins neðar á blogginu, ég náði að copy-a hana áður en hún var tekin út. En hvað um það, ekki er sú seinni betri, ofbeldið er það sama. Ég ætla ekki að fara ítarlega í nýju fundargerðina, ég set link inn á hana og skora á ykkur öll að lesa hana til enda. Þetta er hreint út sagt ótrúleg fundargerð. Sjá fundargerð hér Ólafur Jóhannsson líkir þar til dæmis HRFI við fjámálaeftirlitið ! Nei ég er ekki að plata, það fer drjúgur tími í þá lesningu en ég varð þó að lesa það tvisvar yfir og þá gat ég ekki annað en hlegið. Alveg mögnuð lesning! Að líkja áhugamannafélagi við FME, ja hvað er hægt að segja. Einnig kemur fram í fundargerðinni að búið sé að stofna hálfgert fyrirtæki um Sólheimakot, já eins og ég sagði, lesning er sögu ríkari. Annað sem var alveg ótrúlegt líka að lesa var eftirfarandi frá Delíu (stjórnarmanni) Tekið úr fundargerð HRFI „8. Erindi frá Deliu Howser sent með tölvupósti á stjórnarmenn 24. september 2012 Sæl öll Ég fékk sent erindi frá félagsmanni varðandi skráningu í gagnagrunn. Um er að ræða tík sem er hreinræktuð en sýkt af PRA. Hún er að sjálfsögðu ekki skráð í ættbók og snýst erindið ekki um það. Það kom hins vegar eiganda hennar á óvart, þegar hún þreytti sporapróf með tíkina um síðustu helgi, að á pappírum sem hún fékk stóð "Blendingur". Tíkin er ekki blendingur - hún er hreinræktuð. Spurning hvort hægt væri að hafa upplýsingar í gagnagrunninum réttar - þ.e. hreinræktuð en ekki skráð í ættbók. Nú er ég að gefa mér að þessar upplýsingar séu að koma úr gagnagrunni HRFÍ - ekki frá einhverjum sér gagnagrunni Vinnuhundadeildar. Endilega leiðréttið mig ef ég er ekki að fara með rétt mál. Gott væri ef hægt væri að setja þetta mál á dagskrá næsta fundar - þá get ég staðfest við félagsmann okkar að þetta mál verði skoðað af stjórn. Kveðja Delia.“ Það er hreint með ólíkyndum að stjórnarmaður HRFI skuli ekki einu sinni þekkja grundvallar-reglur félagsins. Þessi stjórnarmaður virðist algjörlega gerilsneydd þegar kemur að einhverju sem skiptir hundana okkar máli, það vantar samt ekker upp á hjá henni þegar hún greiðir atvæði með þríeykinu. Já nú vill hún að hundar sem ekki eru með ættbók séu í gagnagrunni HRFI og biður um að hann verði leiðréttur. Delía ef það er eitthvað sem þarf að leiðrétta þá ert það þú, gagnagrunnur HRFI verður fyrst vitlaus ef farið verður að skrá óættbókfærða hunda í hann. Þetta var nú svo vitlaust að ég gat ekki einu sinni hlegið þegar ég las þetta. Þetta minnir mig á þegar Ólafur Jóhannsson varð skyndilega formaður FHD, maður sem nánast enginn þekkti, maður sem hafði ekki einu sinni vit á veiðiprófsreglum, hvað þá náð árangri á veiðiprófum var allt í einu orðinn formaður FHD! En Delia fékk eftirfarandi svar. Tekið úr fundargerð HRFI. „Valgerður og Jóna svöruðu eftirfarandi: Samkvæmt skilgreiningu FCI eru allir hundar, sem ekki eru með ættbók frá hundaræktarfélagi viðurkenndu af FCI, taldir blendingar. Delia Howser ætlar að svara erindinu. Annað sem ég verð einnig að koma með þar sem ég tel því vera beint til mín þó ég taki það ekki til mín. Það er tillaga frá Vilhjálmi Ólafssyni um breytingu grundvallarreglum HRFI en það er eftirfarandi. „14. Tillaga frá Vilhjálmi Ólafssyni um breytingu á grundvallarreglum HRFÍ Núgildandi: 1.3. Koma ekki þannig fram á sýningum, prófum eða keppnum eða hvar sem er á opinberum vettvangi að það hafi áhrif á tækifæri annarra hunda til að fá réttlátan dóm. Tillaga að breytingu: 1.3. Koma ekki þannig fram á sýningum, prófum eða keppnum eða hvar sem er á opinberum vettvangi að það hafi áhrif á tækifæri annarra hunda til að fá réttlátan dóm. Viðbót. Félagsmaður skal ekki tala á niðrandi hátt um hunda félagsmanna, starfsmenn HRFÍ og/eða þátttakendur í viðburðum félagsins og deilda þess. Hvort sem er í ræðu eða riti, á prenti eða á vefsíðum á internetinu. Gildir þetta jafnt á viðburðum félagsins sem utan þess. Já gaman væri að vita hvort lög HRFI nái út fyrir landslög. Tjáningafrelsið er eitt af hornsteinum líðræðis í landinu og er það verndað í stjórnarskrá ef ég man rétt. Ég má og ég mun alltaf, tjá mig um málefni HRFI og segja mínar skoðanir í þeim efnum. Ég er í HRFI og búinn að vera það í 13 ár, ég væri ekki að skrifa og eyða dýrmætum tíma, hvað þá leggja bloggið mitt undir ef mér væri sama. Auðvitað langar mig að blogga um skemmtilegri hluti, ég bara get það ekki. Ég get ekki horft upp á hvað er að verða um félagið án þess allavega að reyna. Til eru vitni um það þegar ég spáði fyrir ca 2-3 árum að ákveðnir aðilar ætluðu sér að yfirtaka HRFI, því miður kom í ljós að ég hafði rétt fyrir mér. Ég sagði áður að það væri ekki mikið mál að sparka í fólk sem ekki svarar fyrir sig (Jónu formann, Björn og Valgerði) eins og commentin sem ég hef verið að birta hér á síðunni bera glöggt vitni um. Kannski Villi sé að koma þeim til hjálpar með þessari breytingartillögu sinni, ég efast samt um það? Ég veit ekki alveg hvað það eru margir félagsmenn í HRFI, mig grunar að það sé á milli 2.500-3.000 manns. Í hverjum heyrist hæst? Jú það eru örfáir aðilar sem alltaf eru með allt á hornum sér, takið eftir, örfáir aðilar. Hvað með hinn þögla stóra stóra stóra meirihluta, ekki heyrist í honum. Hvað skyldi það þýða? Jú að langflestir eru bara ánægðir með gang mála svona heilt yfir. Auðvitað eru alltaf teknar ákvarðanir sem ekki falla öllum í geð. Ég hef ekki alltaf verið sammála öllu sem stjórn hefur ákveðið, en ég hlýt því samt en safna ekki liði til að hefna. Hvað skyldi Ólafi og þríeykinu ganga til með þessu (sjá fundargerðir) hvað verður svona flott hjá þeim í framtíðinni? Hvað ætla þau að gera svona miklu betur en hingað til hefur verið gert? Hvað hefur Ólafur gert hingað til í hundamálum, ef ég á að svara og segja mína skoðun þá hefur hann gert helling, já alveg heilan helling ,,,,,,,,,,,,,,,,, bara allt til hins verra. Jú það eina sem ég man eftir sem hann gerði sem hafði jákvæðar afleiðingar (fyrir mitt hundakyn) var að hann eyðilagði móralinn í FHD sem varð til þess að Vorsteh-deild var stofnuð. Vorsteh-fólk var guðslifandi fegið að losna undan hans formennsku. Við vorum svo heppinn að eiga nægilega mörg ræktunardýr til að hægt væri að stofna deild og segja skilið við hann. Það var reyndar skammvinnur vermir þar sem á endanum Pétur Alan fór í stjórn deildarinnar, deildar sem hann barðist gegn að yrði stofnuð á aðalfundi HRFI! Hefur Ólafur mikið tekið til hendinni? Nei er það ekki oftast þannig að hann vill taka ákvarðanir og segir svo öðrum að gera hlutina? Hefur Ólafur setið ræktunarnámskeið? Hefur Ólafur ræktað hunda? Hefur Ólafur nægilega reynslu til að beita sér jafn hart í ákveðnum málum og raun ber vitni um? Var Ólafur kosinn í stjórn HRFI? Svar: Nei það var hann ekki! Ólafur var í stjórn skotfélags Reykjvíkur, hann var líka í stjórna FHD, ekki bara stjórn heldur var hann formaður. Hann endaði sinn feril í stjórn FHD sem gjaldkeri, af hverju skildi það hafa verið? Hefði frekar átt að vera gjaldkeri og svo formaður, vinna sig upp en ekki niður! Mig grunar reyndar að ef hann hefði byrjað sem gjaldkeri hefði hann aldrei náð því að verða formaður! Þetta er ekki búið enn. Síðast vor bauð hann sig fram í stjórn Stangveiðifélags Reykjavíkur, hann hlaut ekki kosningu. Þar var nefnilega mótframboð, hann gat ekki gengið inn í þá stjórn með ekkert atkvæði á bakinu eins og hann gerði þegar hann fór í stjórn HRFI! Já í hvers umboði er hann í stjórn HRFI, hann var ekki einu sinni kosinn í stjórn. Ég veit að til er hæft fólk til að sinna okkar málum, það fólk hinsvegar vill ekki eyða tíma sínum í að koma nálægt svona mannskemmandi umhverfi! Það er grátleg staðreynd að fólk sem hefur verið að vinna ötullega, af heiðarleika og þekkingu fyrir okkur hundafólk skuli finna fyrir létti þegar það hverfur frá, það hljóta allir að vera sammála um að það er ekki eðlileg tilfinning. Já hún er ótrúleg stjórnar-áráttan, það virðist vera hjá sumum að þeir hreinlega verða að vera einhversstaðar í stjórn. Ekki komast þeir á þing, ekki eru komast þeir í stjórnir stórfyrirtækja þá er bara að fara einhversstaðar í stjórn, hvort sem það er af áhuga eða ekki. Halda að þeir séu hreinlega ómissandi og geti bjargað öllu. Annað sem er mjög óhugnanlegt er þegar fundargerðin er lesin en það er eftirfarandi „samþykkt með 3 atkvæðum gegn 2“ !! Þetta er skýnandi dæmi um ofbeldi í stjórn að mínu mati og margra annara. Það er nöturleg staðreynd að félaginu okkar sé stýrt svona í dag. Fólk með litla sem enga reynslu af stjórnarstörfum HRFI skuli leyfa sér að gera svona hluti. Það er alveg ótrúlegt líka að þau Björn og Jóna skulu alltaf hafa rangt fyrir sér þegar kemur að stórum málum innan stjórnar HRFI sem þarf að greiða atkvæði um. Nei samþykkt eða hafnað af meirihlutanum 3 gegn 2. Reynsluboltarnir Jóna og Björn virðast bara ekki hafa vit á hlutunum, nýgræðingarnir vita þetta allt saman best. Það þarf ekki meðalgreind til að sjá í gegnum þetta, þetta sjá allir. Ég veit ekki með þig en ég krefst þess af Delíu (sem kom án atkvæða eins og Ólafur inn í stjórn HRFI) Guðmundur (í varastjórn án atkvæða) og Önnu að þau starfi fyrir mig og aðra félaga í HRFI af heilindum, taki sjálfstæðar ákvarðanir af skynsemi og yfirvegun. Ég sem félgsmaður HRFI fæ hroll þegar ég les fundargerðir á netinu sem þið eigið þátt í að búa til með ykkar gjörðum. Ég veit líka að ég er langt frá því einn að vera á þessari skoðun, ég fæ mörg símtölin þar sem fólk hreinlega trúir ekki eigin augum. Þetta er ekki félagið ykkar, þetta er félag okkar allra og þess er krafist af ykkur að því sé stjórnað eins vel og hægt er. Það á ekki að eyða púðrinu í þras, deilur og valdabáráttu gegn andstæðingum eins og Pétur Alan orðaði svo skemmtilega í commentinu sínu á facebook. Það er óþolandi að lesa fundargerðir þar sem drjúgur tími fer í það aftur og aftur hjá Jónu formanni að útskýra lög og reglur félagsins fyrir nýju fólki í stjórn. Það er lágmarks krafa okkar félagsmanna að stjórnarmenn hafi í það minnsta lesið lög og reglur félagsins. Nú ef viðkomandi hefur gert það og ekki skilið lög eða reglur félagsins hvað er þá viðkomandi að gera í stjórn? Þetta félag snýst um hunda, ekki ykkur, þið hafið enn tækifæri á því að breyta rétt, það er ekki orðið of seint. Eyði ekki orðum mínum í Ólaf, það er fullreynt af minni hálfu. Hef oft þurft að hafa samskipti við hann í gegnum árin, en það er eins með mig og minnihluta stjórnar HRFI, ég hef aldrei haft rétt fyrir mér í þeim samskiptum! Ætlaði að halda aðeins áfram með facebook commentin en það bíður morguns, þetta varð allt of langt hjá mér eins og svo oft áður. En mér er bara ekki sama um félagið eins og ég sagði áður þannig það er erfitt að hætta! Skora á alla að lesa fundargerðina, alveg mögnuð lesning en um leið sorgleg. Skora enn og aftur á ykkur að láta þetta berast til sem flestra sem eru í félaginu. Upplýsa félagsmenn sem ekki eru inn í málum hvað er að gerast í félaginu. Fundargerðin er ein sú lengsta sem ég hef séð til þessa, en vel þess virði að gefa sér tíma í að lesa alla. Þetta er jafnvel reyfaraleg lesning fyrir þá sem engan áhuga hafa á hundum. Velti því oft fyrir mér ef þríeykið væri ekki í stjórn en myndi lesa það sem ég er að skrifa (það væru þá aðrar persónur sem ég væri að skrifa um) hvaða skoðun þau myndu hafa á svona stjórnarstörfum? Það væri jafnvel hægt að græða á þessu öllu saman og gera framhaldsþætti um þetta mál, ekki ósvipaða og Dallas hérna um árið. Það vita þá allir hver væri J.R Þangað til næst, góðar stundir. Hiti Jæja þá er komið að næsta hluta facebook commenta, held áfram þar sem frá var horfið. Commentin eru birt í þeirri röð sem þau bárust til mín. En fyrst verð ég að setja inn linkinn aftur á heimasíðu Vilhjálms Ólafssonar þar sem margir áttuðu sig ekki á að ég setti hann neðst í síðasta bloggi mínu. Það höfðu nokkrir samband við mig sem áttuðu sig ekki á því, en ég setti það inn þar sem Vilhjálmur hefur nú sótt um dómaranám. Sjá hér En þá að commentunum. Guðbjörg Guðmundsdóttir: Pétur það er spurning sem margir hafa spurt sig lengi . Guðbjörg segir að það sé spurning sem margir hafi spurt sig lengi? Hvaða margir eru það, hversu stór hluti félagsmanna hafa spurt sig þeirrar spurningar. Nákvæmlega, ekki margir og er ég búinn að vera í félaginu í 13 ár. Það er samt rétt að mjög fámennur hópur hefur notað þennan frasa lengi í sínu áróðurs-stríði sem því miður virðist vera að virka. Neikvæðni elur því miður oft af sér meiri neikvæðni! Thor Sigurgeirsson Hvaða rugl er alltaf á þessu félagi? Þetta tekur engan enda. Eðlileg spurning hjá þeim sem kallar sig Thor. Hvaða rugl er á félaginu spyr ég? Þegar fámennur og neikvæður hópur sem í eru nokkrar áberandi persónur innan HRFI tyggja alltaf sömu neikvæðu tugguna þá fer einn og einn félagsmaður að trúa bullinu. Þetta tekur engan enda fyrr en þessir fáu hætta bullinu. Það er ekkert mál að tjá sig neikvætt á netinu um málefni HRFI, sérstaklega þegar tillit er tekið til þess að formaðurinn okkar hefur þá sjálfsögðu afstöðu að svara ekki svona á opinberum vetfangi. Já það er lítð mál að ráðast á fólk sem ekki svarar fyrir sig, en hversu stórmannlegt það er læt ég ykkur um að dæma. Olgeir Gestsson: Þetta er bara nákvæmlega það sem gerist þegar ónytjungar og dragbýtar hafa fengið að valsa um í stjórn þessa félagsskapar. Ég gekk í þennan félagsskap 1997, þá var núverandi formaður gjaldkeri félagsins. Hún var útbrunnin og gagnslaus þá. Það þarf ekki neitt voðalega frjótt ímyndunarafl til að sjá hversu mikið gagn er af henni í dag. Ekki er mín reynsla af henni sú að hún hafi skánað, því miður :'( Þetta er ótrúlegt comment frá Olgeiri og kom mér rosalega á óvart. Ég þekki hann reyndar ekki neitt, kannast bara við hann, hefði samt aldrei trúað því að svona komment kæmi frá honum. Ónytjungar og dragbítar, hvað skildi hann eiga við með þessu kommenti. Já það er oft sem maður telur sig þekkja fólk en svo kemur annað í ljós. En þetta comment frá Olgeiri dæmir sig sjálft og engu við það að bæta. Pétur Alan Guðmundsson: Margt hefur verið unnið í gegnum árin, sumt gott og annað miður gott. Það sem er þó slæmt er hvað fólk reynir að ríghalda í stöðurnar, vitandi að það er að gera rangt og þá er reynt að sverta andstæðinginn og eyðileggja í stað þess að byggja upp. Þegar fólk er valið í stjórn, hvort sem við eigum þátt í því eður ei, þarf að standa með því svo framarlega sem það fólk sé að sinna þeim störfum sem það var kosið til, félaginu til hagsbóta. Kom að því að þú segðir eitthvað jákvætt Pétur, tók samt eftir því að þú segir “sumt gott og annað miður gott” Tek þetta sumt gott frá þér sem lítið gott og annað miður gott sem að þér finnist mikið hafa verið gert slæmt, finnst það liggja í orðanna hljóða. Er að reyna að átta mig á hvað þú átt við þegar þú segir að fólk reyni að ríghalda í stöðurnar, vitandi að það er að gera rangt og þá er reynt að sverta andstæðinginn og eyðileggja í stað þess að byggja upp. Að ríghalda í stöðu er eitthvað sem þú kannast greinilega vel við. Ég hef nú ósjaldan bloggað um hvað þú og nokkrir aðilar ríghalda í stöðurnar, margir skilja ekki hvers vegna, hvaða hvatir liggja þar á bak við? Það er hægt að færa rök fyrir því eins og þú veist sjálfur Pétur úr fuglahundasportinu hvað þú og nokkrir aðrir aðilar eru búnir að skemma mikið fyrir í þeim geira. Þessi fámenni hópur vill ráða öllu og hefur því mikið gert lítið gott en helling miður gott í gegnum árin. Það er grátlegt hvernig búið er að fara með þetta annars ágæta áhugamál okkar. Öllum haldið úti ef þeir eru ekki skoðanabræður ákveðins fámenns hóps. Og svo eru gefnir bitlingar úr höndum forystumanna til að hafa líðinn góðann! Menn hættir að mæta á uppákomur, hríðfallandi þátttaka þrátt fyrir mjög mikla aukningu hunda í grúppu 7. Það segir allt sem segja þarf. Pétur það eru til fullt af mönnum sem myndu vitna um það ef fram á það væri farið, ekki málið. En að þú hlustir á það, nei þú ert algjörlega blindur, rígheldur í stöðuna sama hvað á gengur. Að sverta andstæðinginn segir þú. Það kom að því að þú viðurkenndir opinberlega að þetta hefur ekkert með hunda að gera, þetta er greinilega stríð og þú ert einn af herforingjunum. Eigum við að koma með nokkur dæmi þar sem þú ert sjálfur að “sverta” andstæðinginn bara vegna þess að hann er ekki á sömu skoðun og þú sjálfur. Eigum við að telja upp þá aðila sem þú hefur staðið í vegi fyrir að megi starfa fyrir félagið. Nei Pétur það er engu líkara en þú sért að skrifa um sjálfan þig þegar þú talar um hluta stjórnar HRFI, Jónu og Björn. Það eina sem þú þarft að gera er að viðurkenna það og þá lofa ég þér að þér á eftir að líða betur. Þú segir að standa eigi með fólki sem kosið er í stjórn hvort sem við höfum átt þátt í því eða ekki. Eftirfarandi er athyglivert “þarf að standa með því svo framarlega sem það fólk sé að sinna þeim störfum sem það var kosið til, félaginu til hagsbóta.” Ertu með öðrum orðum Pétur að segja að hluti núverandi stjórnar sé ekki að sinna þeim málum sem þau voru kosin til. Er það þitt að ákveða hvort svo sé. Þér finnst náttúrulega eðlileg vinnubrögð þegar 3/5 hluti stjórnar tekur ákvarðanir sín á milli án þess að leggja það fyrir minnihlutann “andstæðinginn” í stjórninni? Pétur þú færð þetta allt í andlitið aftur, það eru nefnilega svo margir sem vita betur og minna þig á. Það versta er hvað þeir eru lítið sýnilegir en þú veist vel af hverju það er! Jæja gott í bili, eins og ég hef sagt áður, þetta má ekki vera of langt í hvert sinn. Ég kem með meir Næstu comment verða meðal annars frá hluta stjórnar HRFI, sagan og uppryfjunin heldur áfram. Vona bara að sem flestir átti sig fyrir næsta aðalfund HRFI, það er enn hægt að koma í veg fyrir stórslys. Þangað til næst, góðar stundir |
Eldri færlsur
February 2017
|
|