Jæja kæru vinir, þá loksins ég hef tíma til að blogga. Mikið hefur safnast upp sem halda þarf á lofti og mun ég eftir fremsta megni reyna að vinna það niður á næstu dögum!
Ætla samt að byrja á því nýjasta, skráningum í veiðipróf fuglahundadeilda HRFI. Nú er nýlokið veiðiprófi sem deild Írska Setans stóð fyrir. Skráningarfrestur í prófið rann út á miðnætti 15.apríl. eða hvað? Við skulum skoða það nánar. Ætla að stikla á stóru um skráningarferlið og velta svo upp mínum vangaveltum þegar við á.
Þann 15.apríl kom eftirfarandi á heimasíðu FHD og Vorsteh.
„Skráningarfrestur á veiðipróf ÍSD að renna út“ !
16. apríl kom svo eftirfarandi á báðum heimasíðum.
„Mjög góð skráning á veiðipróf ÍSD“ ! (Sem ég ætla reyndar að tala um í öðru bloggi)
16. apríl var svo settur listi allra hunda á netið sem skráð höfðu í prófið áður en skráningarfresti lauk, bara svona eins og venjan er. Allt gott og blessað, bara eftir hefðinni.
Það næsta sem gerist í málinu er hreint út sagt alveg ótrúlegt. Þann 23.apríl birtist eftirfarandi á heimasíðu Vorsteh-deildar.
„Skráning fram á miðnætti í kvöld 23.04.2014“?
Bíddu við, búið var að bæta heilum 8 sólarhringum við skráningarfrestinn! Og það besta er að það var aldrei auglýst og enginn vissi af því?
Hvað gerðist á þessum 8 sólarhringum? Af hverju sitja ekki allir við sama borð, af hverju var bætt við 1.degi við skráningarfrestinn viku eftir að honum lauk? Já ég segi einum degi þar sem aldrei var auglýst að ætti að framlengja frestinn fyrr en sama dag og framlenging rann út!
Ég skal segja ykkur hvað gerðist, það sama og vanalega. Klíkuskapurinn tók yfir og var reynt að klóra yfir óréttlætið gagnvart öðrum sem farið höfðu eftir settum reglum og fría sig ábyrgð með því að auglýsa þennan fáránlega auka dag!
Það sem ég raunverulega held að hafi gerst var eftirfarandi.
Eftir að skráningarfresti lauk fékk einn forréttinda prinz að skrá hund í prófið. Með öðrum orðum, fordæmi var gefið! Þá kom næsti og vildi líka skrá í prófið þar sem framtíðar veðurspá var hagstæð og hann búinn að sjá listann með hundum sem ætluðu að taka þátt.
Það gekk ekki alveg þrautarlaust og linnti viðkomandi ekki látum fyrr en látið var undan hans kröfum, þar að segja, hann fengi að skrá sinn hund þrátt fyrir að lögbundnum fresti til þess væri lokið!
Nú spyr ég í leiðinni, af hverju kom ekki uppfærður þátttökulisti inn á netið daginn eftir, eða þann 24.apríl?
Ef okkur langar að sjá hverjir voru skráðir í prófið þá er ennþá rangur listi inni á netinu. Ef við tökum keppnisflokk sem dæmi, þá eru tveir hundar þar í sætum sem ekki eru skráðir í keppnisflokk. Ok, þá allavega vitum við um tvo hunda sem fengu að nýta sér óþægilega eins dags framlengingu á fresti. Svona forréttinda skráningu, þurfa ekki að sitja við sama borð og almúginn!
Eins og áður sagði, nokkuð nákvæm spá fyrir helgina þar sem aðeins tveir dagar eru í próf.
Ég spyr, hvenær á að stoppa þessa vitleysu, þennann klíkuskap sem viðgengst hjá ákveðnum aðilum og hefur í allt of langan tíma fengið að skemma þetta skemmtilega áhugmál. Ég veit líka að ég er ekki einn um að spyrja þessara spurninga, ég spyr fyrir fjöldann sem talar um þetta svínarí sín á milli!
Ég tók að gamni saman skráninguna í keppnisflokk eins og áður sagði. Þar sjáum við tvo hunda sem ekki voru skráðir í flokkinn á eðlilegum fresti.
Við sjáum reyndar þrjá hunda þar en ég bið ykkur um að líta framhjá Háfjalla Pörmu. Parma vann sér þátttöku rétt með því að taka sína fyrstu 1.einkunn í opnum flokki í sama prófi og vil ég nota tækifærið og óska Kristni til hamingju með Pörmuna.
Takið eftir, listinn hér að neðan er með nöfnum þeirra hunda sem skráðu áður en frestur til þess rann út. Hér vantar hundana Heiðnabergs Byl og Heiðnabergs Gátu!
Háfjalla Týri
Heiðnabergs Gleipnir von Greif
Barentsvidda‘s B Hardy Du Cost‘ Lot
Álakvíslar Mario
Midtvejs Xo
Vatnsenda Kara
Ef svo úrslit í keppnisflokk eru skoðuð og borin saman við þátttökulistann á netinu þá eru hundar í 1. og 2.sæti sem ekki eru skráðir í KF!
Í besta falli pínlegt, í versta falli ömurlegt að svona lagað sé liðið!
Það er alveg klárt frá minni hendi og MARGRA annara að svona klíkuskapur sé alveg út úr korti. Þetta er ein af aðal ástæðum þess að þátttaka í prófum hefur dregist saman um tugi % á síðustu árum! Það er alveg á hreinu hefði ég komið degi of seint og ætlað að reyna að skrá minn hund í próf hefði svarið verið, nei skráningarfrestur er liðinn!
Hefði ég verið í KF þennann dag og fengið 3.eða4.sæti hefði ég ekki tekið því þegjandi. Ég varð að skrá fyrir eðlilegan skráningarfrest, sem var svo það sé á hreinu heilir 10 dagar. Voru Bylur og Gáta að taka hugsanlega 1.eða 2.sæti af Pörmu eða Gleipni eða öðrum hundum?
Það er allavega alveg á hreinu að keppnisflokkur hefði spilast öðruvísi hefði verið farið eftir reglum.
Mér finnst það líka skondið til þess að hugsa ef einhver annar hefði skráð of seint, unnið flokkinn á kostnað annara hunda sem skráðu innan marka. Shit, sá hefði orðið brjálaður. En ekki núna, hentistefnan lifir og fær að grassera hjá alltaf sömu aðilum.
Tek fram að það voru fleiri hundar sem skráðu eftir að skráningarfresti „þeim fyrri“ lauk. En það er erfitt að átta sig á því hvaða hundur/ar það er/u ef þeir náðu ekki einkunn? Hafi hundur sem ekki er á listanum ekki heldur náð einkunn í prófinu þá kemur hvergi fram að hann hafi tekið þátt!
Dæmi
Ef Bylur og Gáta ná ekki sæti þá kæmi það hvergi fram að þau hefðu tekið þátt!
Ég veit að örfáir aðilar þola illa þegar ég blogga um viðkvæm mál, þannig er það bara og þannig verður það. Tala nú ekki um ef það snertir viðkomandi!
En við þá aðila vil ég segja .............. hættið að gefa mér færi á að blogga um svona bull og farið eftir reglum. Hef sagt það áður og segi það aftur. Ég er ekki að búa neitt til, ég er ekki að stjórna atburðarrásinni, ég er bara segi frá henni.
Vil að lokum þakka fyrir þann mikla stuðning sem ég fæ frá ótrúlegasta fólki við bloggið mitt. Ég met það mikils og það hvetur mig áfram.
Að segja sína skoðun umbúðalaust aflar þér ekki flestra vina, en það aflar þér réttra vina.
Og þar sem ég er í stuði ætla ég að byrja á næsta bloggi sem kemur inn á morgun eða hinn? En það fjallar um erlenda & Íslenska dómara eða nýjar reglur FHD um stigagjöf til veiðimeistara.
Inn með réttlæti, burtu ranglæti!