Jæja góðri og langri blogg pásu minni er lokið. Það má eiginlega segja að ég hafi tekið ákvörðun um það núna um helgina.
Ég hitti mann sem ég hafði ekki hugmynd um hver væri. Hann heilsaði mér að fyrra bragði og spurði hvort ég væri með hundana með mér? Í framhaldi kynnti hann sig eftir að hafa sagt að ég hefði ekki hugmynd um hver hann væri. Hann hafði fylgst með blogginu hjá mér og vissi í gegnum heimasíðuna mína hver ég væri.
Hef lent ótrúlega oft í því að fólk heilsar mér að fyrra bragði og fer að ræða um hunda sem er ótrúlega gaman. Það kom fljótt í ljós að ég kunni vel við þennann mann og sagði hann mér ótrúlega sögu um tvo hunda sem hann og konan hans eiga en verður ekki farið nánar út í hér.
En ég ætla að eyða mesta púðrinu í þessu bloggi í að tala um Snögghærða Vorsteh-hunda. Í gær var sýning á vegum HRFI og það sem ég kemst næst er að allir Snögghærðir Vorsteh hafi fengið góða einkunn og óska ég öllum eigendum þeirra innilega til hamingju.
Get þó ekki látið hjá líða að tala sérstaklega um árangra hvolpanna frá Palla & Siggu. Í gær bar það hellst til tíðinda að Bendishunda Mía vann mömmu sína Rugdelia's QLM Lucienne. (Luci)
Luci hefur nánast verið einráð á sýningum og hefur hún aldrei tapað fyrir tík áður sem er magnaður árangur. Hún reyndar tapar nánast aldrei, það er hellst að aðrir vinna þegar hún er ekki skráð á sýningu.
Það var ekki fyrr en dóttir hennar vann hana í gær sem hún tapaði fyrir tík. Svona á ræktun að vera og út á þetta gengur ræktun nr.1-2 og 3. Að rækta hunda sem verða betri en foreldrarnir. Auðvitað er ekkert öruggt að Mía vinni alltaf mömmu sína hér eftir, en hún gerði það í gær og sannaði enn og aftur gæði Bendishunda.
En þar með er sagan ekki öll sögð. Bendishunda Móri gerði sér svo lítið fyrir og vann systur sína Míu í úrslitum besti hundur tegundar.
Bendishunda hvolparnir eru enn mjög ungir, en þrátt fyrir ungan aldur hafa þeir svo sannalega látið eftir sér taka á sýningum. Mín skoðun er sú og tel ég ómögulegt að þræta fyrir hana að þetta sé eitt það albesta og jafnasta got sem komið hefur af Snögghærðum Vorsteh hér á landi.
Engu að síður kemur þetta ekki á óvart heldur þvert á móti. Þegar metnaðarfullir aðilar leggja á sig að flytja inn hunda úr bestu línum sem völ er á má vænta góðrar útkomu. Luci kemur frá ræktun sem heitir Rugdelia's í Noregi. Mamma hennar er heimsmeistari ásamt fullt af öðrum meistara titlum.
Það verður klárlega mjög erfitt fyrir aðra Vorsteh að vinna Bendishunda í nánustu framtíð, það er mín skoðun, takið sérstaklega eftir "mín skoðun" sem tíminn mun leiða í ljós hvort reynist rétt?
Þetta er mjög jákvætt fyrir Vorsteh hér á landi og ætti að hvetja aðra ræktendur til að gera eins vel og mögulegt er, fyrst og fremst með hagsmuni tegundarinnar fyrir brjósti.
Hér er hægt að sjá ótrúlegan árangur Bendishunda sem spannar í raun örstuttan tíma. Þessi stutti tími styður enn frekar skoðun mína hér að ofan.
Meira síðar, alltaf gaman að pæla í ræktunum