Komið sæl gott fólk. Jæja þá er haustið farið að banka á dyrnar og þá breytist forgangsröðun eins og gengur og gerist. Enn og aftur er komið að haustgegningum sem ekki er hægt að víkja sér undan nú frekar en áður.
Ætla ekkert að teygja þetta heldur skella mér beint í efni þessarar gegninga. Ótrúlegur eftirfarandi texti er tekin úr fundargerð fundar HRFI sem haldinn var nú í júni ef ég man rétt. Skora á ykkur að lesa til enda þetta ótrúlega plagg formanns FHD. Þetta er reyndar mjög undarleg fundargerð ef byrjað er að lesa efst. Í lið nr.3 svarar stjórn HRFI bréfi FHD án þess að hafa erindi FHD á undan svari. Fólk þurfti að geta í eyðurnar hverju stjórn HRFI var að svara.
Svo er fundi lokið og stjórn kvittar fyrir fundargerðinni en svo þarf að skrolla neðar til að sjá viðauka sem sumir vilja meina að hafi komið síðar inn vegna fjölda fyrirspurna.
Eftirfarandi er tekið úr fundargerð HRFI:
"Stjórn Fuglahundadeildar hittist á fundi til að fara yfir stöðu deildarinnar eftir ad stjórn HRFI samþykkti að skera hana niður um 1/3 með stofnun deildar Enska Setans. Við erum mjög undrandi yfir þeim vinnubrögðum stjórnar að viðhafa ekkert samráð við okkur áður en tillagan var borin upp á adalfundi félagsins þann 25. maí siðastliðinn og tengiliði tegundarinnar var ekki einu sinni sýnd sú kurteisi að láta hann vita af tillögunni. Það mátti vera alveg ljóst að þetta myndi hafa mikil áhrif á störf deildarinnar.
Í stjórn deildarinnar situr eigandi Ensks Seta sem er þá í raun ekki lengur eigandi hunds i deildinni, okkur langar ad vita hvort hann má sitja sitt timabil í stjórn FHD þrátt fyrir að eiga ekki hund í deildinni eða hvort hann þarf ad víkja. Ekkert i reglum félagsins tekur á þessu.
Þá viljum við láta vita af því að FHD mun ekki sjá sér fært að afla mannskapar til að aðstoða á sumarsýningu félagsins þar sem deildarmeðlimum hefur fækkað um þriðjung.
Með kveðju.
Fyrir hönd stjórnar Fuglahundadeildar HRFI
Albert l. Steingrímsson, formaður"
Þarna fullyrðir stjórn FHD að stjórn HRFI hafi samþykkt að skera niður fuglahundadeild um 1/3
Albert hélt það fyrir neðan þína virðingu að senda svona frá þér. Þér til upplýsinga kom stjórn HRFI hvergi nálægt stofnun deildar Enska Setans nema bara að forminu til. Það eru til reglur um stofnun deilda og ef þær eru uppfylltar eins og í tilviki stofnunar deildar fyrir Enska Setann er ekkert sem stjórn HRFI getur við því gert.
Albert hvaða samráð átti að fara fram á milli stjórnar HRFI og stjórnar FHD vegna stofnunar Enska Setans? Hvergi færir þú rök fyrir því í "kvörtun" ykkar til stjórnar HRFI.
Ekki man ég eftir því þegar Vorsteh-deild var stofnuð að þáverandi stjórn FHD hafi gert athugasemd við stjórn HRFI vegna stofnunar þeirrar deildar. Gefum okkur að stjórn HRFI hafi haft samráð við stjórn FHD um stofnun deildar Enska Setans hvernig hefði þá stórn FHD beitt sér. Ætlaði stjórn FHD þá að fara fram á að eigendur Enskra Seta yrðu neyddir til að vera áfram í handónýtri deild FHD? Endilega láttu það koma einhversstaðar fram af hverju stjórn FHD vildi samráð um stofnun deildar Enska Setans?
Og að sýna tengiliði tegundar Enska Setans ekki þá kurteisi að láta hann vita af tillögunni er náttúrulega bara út í bláinn hjá þér. Tengiliður tegundarinnar vissi jafn vel og allir aðrir að til stæði að stofna ræktunardeild Enska Setans. Hvílíkur fyrirsláttur hjá þér með þessum skrifum og hvað hafði tengiliður fyrir Enska Setann gert fyrir tegundina öll þau ár sem hann var "titlaður" tengiliður með fullri virðingu fyrir honum? Getur verið að hann hafi verið algjörlega á móti stofnun deildar Enska Setans?
Og varðandi einn af stjórnarmeðlimum FHD sem er eigandi Enskra Seta hefðir þú betur kvatt hann til að vinna með sinni tegund í stað gegn henni. En það hefur mörgum verið ljóst að hann hefur frá upphafi verið á móti deild fyrir sitt eigið hundakyn einverra hluta vegna.
Og svo klikkir þú út í lokin að FHD geti ekki sinnt skyldum sínum á sumarsýningu HRFI þar sem fækkað hefði í deildinni um þriðjung.
Veit ekki betur en að eftir sitji hjá þér tveir Ensk Setter eigendur og þegar ég les þetta plagg frá stjórn FHD fæ ég ekki aðra útkomu en þá að eingöngu eigendur Enskra Seta hefðu átt að sinna störfum fyrir FHD á sýningunni.
Albert ég hef lesið fullt af bulli um æfina en held svei mér þá að þetta plagg ykkar slái flestu því við. Deild Enska Setans hafði varla verið stofnuð þegar stjórn fékk skilaboð um það frá stjórn HRFI að þeir þyrtu að útvega fólk til starfa á sýningunni. Stjórn deildar Enska Setans brást skjótt við og stóð sína plikt svo léleg afsökun ykkar fyrir því að nenna ekki eða kenna stofnun deildar Enska Setans um að FHD gæti ekki mannað sín störf stenst enga skoðun. Hvað um 2/3 hlutann sem eftir sat í FHD, af hverju gat enginn þeirra mætt og unnið á sýningunni fyrir FHD?
Nei Albert það er fyrir löngu kominn tími fyrir ráðamenn deyjandi FHD að líta inn á við. Fyrst var það Vorsteh sem hvarf á braut og nú síðast Enskir Setar. Albert þú getur engum öðrum kennt um þá staðreynd að hundkyn flýja deildina við fyrsta tækifæri sem gefst nema ráðandi öflum í FHD. Af hverju fóru þessi tvö öflugustu veiðihundakyn landsins úr FHD.
Svar:
Jú vegna þess að þeim var ekki vært innan FHD þar sem ákveðnir aðilar stjórna öllu með handafli og það verður að stoppa. Það verður ekki fyrr en þá sem við komumst á þann stað sem við eigum að vera á. Ég er einn af þeim sem barist hefur fyrir því í mörg ár og oftast á móti straumnum. Nú er ég hinsvegar farinn að finna fyrir því að fallaskipti hafa átt sér stað og ég farinn að fljóta með straumnum í rétta átt og er það vissulega góð tilfinning.
Get ekki annað en klappað mér á öxlina eftir öll þessi ár og þakkað sjálfum mér fyrir þrautsegjuna og úthaldið en viðurkenni líka að oft var þrekið orðið lítið. En sólin er klárlega farin að gægjast undan skýjum ............ njótum þess
Kær kveðja til þín
Kjartan Antonsson
Stoltur eigandi Ensk Setters og Vorsteh