Umdeild heiðurspremía á að víkja fyrir meistarastigi í keppnisflokk. Skilyrði til veiðimeistara er í dag að hundur þarf að ná umdeildri heiðurspremíu í unghundaflokk eða opnum flokk til að eiga möguleika á því að verða veiðimeistari.
Að auki þarf hann að vinna einu sinni KF og lenda einu sinni í 1-3 sæti KF og ná samanlagt 25 stigum. Já og einnig einn góðan sýningardóm sem er eiginlega aukaatriði.
Við vitum alveg að þetta meistarastig verður umdeilt, kannski ekki eins umdeilt og heiðurspremía þar sem það á að vera innrammað, við vitum að hverju við erum að keppa. Eða réttarasagt, við vitum hvað hundur þarf að uppfylla til að eiga möguleika á meistarastigi í KF.
En er það nægilegt fyrir okkur. Dómari getur alltaf samt sem áður komið í veg fyrir að hundur fái þetta meistarastig þó hann hefði svo sannarlega unnið fyrir því.
Dæmi.
A mætir með hundinn sinn í KF. Hundurinn vinnur klárlega fyrir meistarastigi, ekki spurning. Nú bar svo við að dómarar sem við skulum kalla Knoll og Tott voru að dæma. Þeim líkar ekki við A, eiganda hundsins, eða þeim líkar ekki við tegundina á hundinum sem á mætti með í veiðiprófið. Þeir finna þá auðveldlega ástæðu til að gefa hundinum ekki meistarastig. Það væri alveg sama hversu fáránlega sú ástæða væri, Knoll og Tott þurfa ekkert að rökstyðja það neitt frekar.
Tökum sama dæmi aftur, nema nú var það B sem mætti með sama hund í KF, takið eftir, sami keppnisflokkur, sami hundur, sama vinna.
Þeir Knoll og Tott halda nú ekki vatni yfir vinnu hundsins. Það skemmir heldur ekki fyrir að þeir eru persónulegir vinir B. Þeir hafa oft æft með honum og eru oft í sambandi við B vegna vináttu sinnar. Hugsanlega kom Knoll að ræktuninni sem hundur B er úr. Þeir að sjálfsögðu gefa hundi sem B á meistarastig. Þeir rökstyðja það á sinn hátt og málið dautt.
Já það er alveg klárt að vinavæðingin í þessu sporti okkar er gríðarlega. Það skynja ég líka alltaf meira og meira að fólk er að gera sér meira grein fyrir.
Það stækkar alltaf hópurinn sem ætlar aldrei að mæta aftur í próf þegar Knoll eða Tott eru að dæma, þeir hafa sannað vanhæfni sína svo eftir var tekið.
Já þetta huglæga er og verður alltaf umdeilt, sérstaklega hjá íslenskum dómurum.
Ég kom með þá tillögu að breyttum veiðiprófsreglum að fella út heiðurspremíu, ekki flytja hana í KF og kalla hana öðru nafni.
Á móti þyrfti hundur að ná 3X 1.einkunn í opnum flokk. Vinna KF 1X og lenda í 1-3 sæti í KF og safna samtals 25 stigum.
Hvað fáum við svo út úr þessu. Jú sjáðu til, þegar hundur fær sína fyrstu 1.einkunn í opnum flokk þá getur hann tekið þátt í keppnisflokk. Hann getur unnið keppnisflokk nokkrum sinnum. Honum vantar samt enn tvær 1.einkunnir í opnum flokk.
Í fyrsta lagi missum við þá ekki viðkomandi hund úr OF eins og svo algengt er. Þátttaka helst lengur í OF samhliða KF, þar sem hvatinn er enn til staðar að mæta í OF.
Einnig sem mér finnst mikilvægast er að bestu hundarnir verða veiðimeistarar. Það viðurkenna örugglega allir sem vit hafa á að 1.einkunn í OF er mun meiri gæðadómur en sæti í KF.
Og í þriðja lagi, vinavæðingin hefur ekki alveg jafn mikið vægi, meiri líkur á að bestu hundarnir verði meistarar.
Auðvitað verð ég að taka dæmi og rökstyðja mál mitt. Tek hér raunverulegt dæmi af tveimur hundum sem eru í gagnagrunni FHD. Við skulum kalla hundana A og B. Ég tek ekki skráningar í unghundaflokk í þessum dæmum, bara OF og KF.
Hundur A er búin að mæta 27 x í opinn flokk.
Hann er búin að ná 1x 1.einkunn.
Hann er búin að ná 3x 2. einkunn .
Hann er búin að ná 2x 3.einkunn.
Hann er búin að fá 21x 0.einkunn á veiðiprófi.
Þessi hundur er búinn að mæta 9x í keppnisflokk.
Hann er búin að ná 1x 1.sæti í KF
Hann er búin að fá 8x 0.sæti í KF
Hugsið ykkur, þessi hundur er með betri árangur í KF en OF. Þessi hundur getur getur orðið veiðimeistari ef reglum er breytt eins og til stendur.
Er þessi hundur af því caliberi að eiga skilið veiðimeistaratitil. Nei klárlega ekki segi ég.
Þá er það hundur B.
Hundur B er búin að mæta 12x í opinn flokk
Hann er búin að ná 1x 1.einkunn
Hann er búin að ná 2x 2.einkunn
Hann er búin að ná 1x 3.einkunn
Þessi hundur er búin að mæta 5x í keppnisflokk
Hann er búin að ná 1x 1. Sæti í KF
Hann er búin að fá 4x 0.sæti í KF
Já þessi hundur getur líka orðið Íslenskur veiðimeistari samkvæmt nýju reglunum.
Eru þetta bestu hundarnir?
Nei segi ég og margir aðrir!!
Hafi mín tillaga verið samþykkt þá þyrftu báðir þessir hundar að ná tveimur 1.einkunnum í viðbót, sem er eins og áður sagði mun meiri gæðadómur en sæti í KF.
Ef við tökum meðaltal af hundi A sem var búin að mæta 27x í opinn flokk og ná bara einu sinni 1.einkunn, þá þyrfti hann að mæta 81x í opinn flokk til að ná 3x 1.einkunn.
Hundur B þyrfti að mæta 36x til að ná 3x 1.einkunn sem er þó betra hlutfall en hundur A. Já gott fólk, þetta eru raunveruleg dæmi.
Svo tökum við hundana sem hafa verið að raða inn 1.einkunnum undanfarið og virðast ekki hafa mikið fyrir því, já það eru klárlega hundarnir sem eru með caliberið í að verða veiðimeistarar.
Að lokum er hér flott myndband af unghundinum Álakvíslar Mario sem fékk sína fyrstu 1.einkunn um helgina. Virkilega flottur unghundur og vel gert. Fer ákveðið fram í reisningu og ekki sandkorn á eftir þegar fuglinn fer á vængina.
Sjá video hér