Iða og Sacro á standi
Jæja þá er komið að síðasta bloggi mínu varðandi tillögur að
breyttum veiðiprófsreglum. Ég á örugglega eftir að koma eitthvað inn á þetta í nánustu framtíð, svona eftir því hvernig málin þróast, en þetta verða loka skrifin þar sem ég bendi ítarlega á það sem mér finnst vera illa unnið og ígrundað. Leyni því ekki að mig er farið að hlakka til að blogga um skemmtilegri hluti.
Ætla að grípa beint niður í lið 8.2. Einkunnarstig og taka þar fyrir a) lið.
8.2.
Einkunnastig
a) UF og OF:
1. einkunn fær hundur sem dómari álítur vera framúrskarandi
veiðihund sbr. 7. gr. Hundurinn skal prófaður í minnst klukkustund.
Hundur sem fær 1. einkunn getur fengið heiðursverðlaun, HV, ef dómari telur hund hafa sýnt afburða hæfileika. Þetta á að fella úr gildi samkvæmt nýjum reglum.
Þarna á að taka út hin umdeildu heiðursverðlaun.
Á sínum tíma þegar þessi óskapnaður var settur inn í reglurnar skrifuðu
rúmlega 50 fuglahunda eigendur undir plagg til að mótmæla því að hundar þyrftu
heiðursverðlaun til að verða veiðimeistarar, enda algjörlega undir geðþótta
dómara komið hvort hann veitt þessi verðlauna eða ekki. Ekkert er kveðið á um
hvað hundur þarf að uppfylla til að fá þessi verðlaun.
Að taka skilyrði um heiðursverðlaun út úr reglunum væri alveg
frábært ef ekki væri fyrir næsta lið sem er í besta falli hlægilegur, já
lesiði
nú!
b) KF:
Verðlaunasæti.
Í KF er gert ráð fyrir háum gæðakröfum. Venjulega skulu veitt
verðlaun fyrir 1.- 6. sæti í hverjum keppnishóp, þegar um eins- tveggja-, eða
þriggja daga próf er að ræða.
Hundar sem ná 1. og 2. sæti í KF, KF undanúrslit eða KF úrslit,
skulu prófaðir á móti hvor öðrum í keppninni. Önnur röð keppenda er samkv.
ákvörðun dómara.
Hægt
er að veita hundi meistarastig (MS) og vara meistarstig(vMS) í KF.
Til að hundur fái MS+vMS þarf hann að sýna framúrskarandi vinnu og fuglavinnu með reisningu. Til að hægt sé að veita MS þurfa að lágmarki 8 hundar að taka þátt og til að veita MS+vMS þurfa að lágmarki 10 hundar að taka þátt.
Já það er ekki verið að
einfalda þetta, þetta er gjörsamlega út úr korti að mínu mati. Samkvæmt þessum
breytingar tilllögum þarf nú hundur að fá meistara stig sem hann getur bara
fengið ef að lágmarki 8 hundar taki þátt í KF og svo enn önnur vitleysan að hundur
getur fengið vara meistara stig ef 10 hundar eða fleiri taka þátt í keppnisflokk.
Gera þessir menn sér ekki grein fyrir því að það hefur ekki verið hægt að halda keppnisflokk undanfarin misseri nema smalað hafi verið í þátttöku, og þá er bara verið að tala um að ná 4 hundum í flokkinn!
Þeir sem stóðu að síðustu breytingum á reglunum voru varaðir við því að þær breytingar myndu verða til þess að menn myndu mæta í próf og
ná einkunn á hundinn sinn, hellst hjá erlendum dómurum og hætta síðan að mæta. Það er ekki hægt að mæta á veiðipróf og keppa við eitthvað sem er óþekkt (heiðursverðlaun) og engar reglur til um. Eitthvað sem algjörlega eru undir duttlungum dómarans komið, nei það er eins og að keppa við drauga.
Það er alveg á hreinu ef
þessar breytingar ná fram að ganga þá verður það endanlega til þess að þátttaka
minnki hlutfallsega enn meira í
veiðiprófum. Þá verður það bara þessi fámenna klíka sem allt snýst um sem mætir,
einn og einn dettur inn í klíkuna og aðrir detta úr klíkunni þegar þeir eru ekki
sammála henni í einu og öllu!
Það væri enginn fótbolta leikur til ef ekki væru til skýrar reglur til að keppa eftir, það eru allir sammála um það.
Að lokum langar mig að minna aftur á blogg sem ég skrifaði fyrir mörgum mánuðum þar sem ég talaði um að menn væru að samþykkja eigin gjörðir, þetta er eitt gott dæmið um
það.
Egill Bergmann er í þessari reglubreytingar nefnd fyrir FHD, hann er einnig í stjórn FHD, hann er formaður FHD þrátt fyrir að hafa ekki mætt með hund sem tilheyrir deildinni á neina viðburði í ára-raðir. Egill Bergmann er einnig í stjórn Írsk Setter deildar.
Í þessu tilfelli getur Egill hoppað í stjórnar sæti sitt í FHD þar sem hann talar fyrir og samþykkir eigin gjörninga.
Egill hoppar svo úr stjórnarsæti sínu í FHD í stjórnarsæti sitt í Írsk Setter deild og leikur sama leikinn þar. Þaðan hoppar hann svo upp á heiði og dæmir eftir nýjum óskýrum
reglum sem hann tók þátt í að búa til.
Finnst okkur þetta virkilega ganga. Er þetta dæmi hugsanlega staðfesting á því hversu ónýtt þetta er oðið hjá okkur, að ekki fáist fólk til að
vinna svona vinnu. Eða eru alltaf sömu mennirnir að trana sér fram sem ættu
löngu að vera búnir að gefa þetta frá sér?
Guðjón Arinbjarna er einnig í nefndinni fyrir Írsk Setter deild . Hann gerir eins og Egill, hoppar í stjórnarsæti sitt og samþykkir þar eigin gjörning.
Lárus Eggertsson er einnig í nefndinni fyrir Vorsteh-deild, hann hoppar þá einnig í sitt stjórnarsæti eins og hinir og samþykkir eigin gjörning.
Finnst okkur þetta virklega vera í lagi?
Það eiga að vera tveir
aðilar frá deildunum þremur, Vorsteh-deild, ÍRSK og FHD. En er það í raun
þannig, Guðjón og Bragi fyrir Írsk en Egill fyrir FHD? Þessir þrír aðilar eru
allir í ÍRSK og þar af tveir í stjórn deildarinnar og báðir
dómarar.
Ég spyr einnig hvort eðlilegt sé að IRSK hafi svo mikið vægi þegar kemur að veiðiprófsreglum, sérstaklega þegar deildin sjálf kynnir hundakynið sem lélegan
veiðihund!
Eftirfarandi er tekið beint af heimasíðu ÍRSK undir linknum tegundin og þar er farið í
staðreyndir.
Tilvitnun
„Írski setterin var upprunalega ræktaður til að vera fuglaveiðihundur.
Geðprýði hans og glæsileiki hefur hins vegar skapað honum stærra pláss sem
sýninga- og heimilishundur. Ræktun til þeirra nota hefur komið niður á
veiðieiginleikum hans og nú er þessi fornfrægi veiðihundur í miklum minnihluta
í ört stækkandi hópi
veiðihunda.”
Og svo hér önnur tilvitnun “Það
er hverjum hundaþjálfara mikil áskorun að gera góðan veiðihund úr írskum seta.
Þeir eru frekar þrjóskir, það er auðvelt að ofbjóða þeim og þeir verða mjög
fljótt leiðir á erfiðum æfingum. En þeir eru flestir mjög
greindir.”
Hægt er að lesa ótrúlega kynningu
á Írska Setanum á heimasíðu tegundarinnar hér
Nei það er mín skoðun að búið hafi verið að laska veiðiprófsreglurnar verulega, en ef þetta verður samþykkt þá er búið að sökkva þeim endanlega.
Ég neita að trúa að eigendur Bretona, gordon seta, vizslu og weimaranera komi til með að samþykkja þessar reglubreytingar,
og er eiginlega hissa á því að 3 menn hafi verið í þessari nefnd sem eiga
Írska Seta og einn sem á Strýhærðan Vorsteh. Hvað eiga þessar 6 tegundir sem ég
nefni hér að ofan annars marga veiðimeistar?
,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,, Rétt, engann !!
Ég sagði í upphafi að þetta væri síðasta blogg mitt um þetta mál, en
nú er ég ekki viss, það er
hellingur ósagt ennþá, sérstaklega varðandi eitthvað sem þeir vilja kalla
samsettu próf, og stigagjöf fyrir alhliða veiðipróf.
Flestir þeirra sem í nefndinni eru hafa ekki tekið þátt í alhliða veiðiprófum en
ætla samt að búa til og breyta reglum þar um ,,,,,,,,,,,