Albert er af mörgum kunnur sem einn besti hundaþjálfari og leiðbeinandi landsins og kemur það mér ekki á óvart.
Hann vissi klárlega hvað hann var að gera, en í gær einbeitti hann sér að því að kenna okkur hvernig við ættum að láta hundana hlýða.
Hann setti upp æfingar þar sem hundarnir þurftu að standast freistingar og mikið áreiti. Þarna voru saman komnir hundar af nokkrum gerðum og öllum aldri.
Auðvitað voru eldri hundarnir yfirleitt lengra komnir en þeir yngri, en heilt yfir var ekki annað að sjá en að allir hundar hafi staðið sig virkilega vel heilt yfir.
Auðvitað var enginn hundur fullkominn, eðlilega ekki því þá hefði ekki verið mætt með þann hund, það þarf jú ekki að kenna þeim sem er fullkominn neitt.
Einn hundur gerði kannski eina æfingu gallalausa á meðan annar var ekki alveg gallalaus en svo var það kannski öfugt í næstu æfingu.
Við hundaeigendur höfum öll gott af svona æfingum, en kannski nr.1-2 og 3 er að hundarnir hafa gagn og gaman af.
Frábært framtak hjá þeim suðurnesjamönnum og takk kærlega fyrir okkur, við komum klárlega næst þegar við höfum tök á.
Set inn nokkrar myndir fyrir þá sem ekki hafa séð aðstöðuna hjá þeim félögum. Ef ykkur langar að þjálfa hundana ykkar með öðrum hundum og góðu fólki þá mæli ég eindregið með þeim þarna suðurfrá, þetta er styttra en þú heldur.