Zelda á fallegum standi
Hér sit ég Zelda og hugsa um allar minningarnar með þér frá því þú komst til okkar. Þær eru svo margar og allar góðar, það hafa óteljandi móment með þér rifjast upp í dag.
Ég var búin að bíða í tvö ár eftir að þú fæddist, þeirri bið hef ég aldrei séð eftir.
Ég mun alltaf muna þegar þú komst fyrst heim, þú varst
svo ljúf og auðþjálfuð. Það þurfti ekki nema segja þér einu sinni til hvers væri ætlast af þér og þá var það komið.
Ég man þegar þú varst lítill hvolpur og borðaðir heila túbu af
A-D kremi með sóðalegum afleiðingum hehehe.
Ég man líka þegar Gassi var alltaf að opna útihurðina
og stelast í burtu þegar enginn var heima, þú fórst aldrei með honum, þú bara kúrðir
upp í sófa þegar við komum heim og beiðst róleg þó allt væri
opið út.
Þegar ég hugsa um allar veiðiferðirnar sem við fórum saman þá get
ég ekki valið neina eina ferð sem stendur upp úr, þær voru allar góðar, þú
gerðir aldrei mistök.
Það skipti ekki máli hvort við vorum að veiða gæs,
rjúpu eða önd, þú kunnir þetta allt. Það var ótrúlegt að
fylgjast með þér þegar við vorum að ganga á skurðina og læðast að öndum, þú
stoppaðir alltaf sjálf ca 10 metra frá skurðinum og beiðst meðan ég læddist
áfram, þú fældir aldrei upp fuglinn.
Í fyrirsát á gæs var ekki hægt að hugsa sér betri
veiðifélaga, þú hringaðir þig niður salla róleg og beiðst eftir
að gæsirnar kæmu í færi.
Ég gleymi seint kvöldfluginu við tungnána þegar gæs
féll í ána um það leiti sem myrkrið skall á.
Þú fórst óhikað út í strauminn í kaldri jökulánni og hvarfst
sjónum okkar, það liðu ca 15-20 mín og komið svarta myrkur þegar þú skilaðir þér
til baka, að sjálfsögðu með gæsina. Þú hafðir þurft að synda niður strauminn og
ná gæsinni sem flaut hratt niður ána og hafði mikið forskot á þig í
upphafi.
Þú gafst aldrei upp ef þú áttir að sækja eitthvað fyrir
mig, þú vissir að það var eitthvað til að sækja ef ég sagði það, þú
gafst aldrei upp fyrr en þú fannst það og skilaðir til
mín.
Rjúpnaveiðarnar voru svo algjörlega sér kapituli, þar vorum við
algjörlega samstillt. Aldrei þurfti ég að segja þér til þar, þú varst þar
algjörlega á heimavelli.
Aldrei hvarfst þú, aldrei tíndist þú, ef þú hvarfst bak við hæð
eða fell og skilaðir þér ekki til baka þá var það 100% að þú varst búin að finna
fyrir mig rjúpur og beiðst róleg eftir mér til að klára dæmið.
Það er líka ógleymanlegt þegar þú tókst fyrsta standinn þinn í
september aðeins 5 mánaða gömul upp við Rauðavatn. Ég var svo stoltur og
spenntur að ég hringdi beint heim til að láta vita af viðburðinum, ég varð að
deila því með öðrum.
Þegar við vorum að mæta í fyrstu æfinga göngurnar með öðrum, ég
var að spyrja þá reyndari um ráðleggingar varðandi þjálfun, þeir sögðu okkur
bara að halda áfram á sömu braut, þetta væri bara flott hjá
okkur.
Einn af þessum reynslu boltum sagði mér seinna að þeir hefðu
ekkert getað ráðlagt mér, þeir hefðu aldrei séð annað eins, þú varst strax svo
örugg.
Já Zelda þú hafðir vit fyrir mér byrjandum þegar við vorum að
stíga okkar fyrstu skref, þú bara sást um þetta.
Til marks um það hefur enginn séð þig brjóta upp eða elta rjúpur
eftir móment, það er ótrúlegt. Öll prófin sem þú tókst þátt í sem unghundur
varstu alltaf valin besti unghundurinn í prófinu. Einnig varstu marg oft valin
besti hundur í opnum flokki og þá oftar en ekki þegar aðstæður voru erfiðar og
krefjandi.
En það mesta og besta sem þú gerðir á þinni æfi var að þín vegna
hittumst við Gréta og höfum verið saman upp frá því, Já Zelda þú átt stóran sess
hjá okkur og fyrir það verð ég þér æfinlega þakklátur.
Ég gæti skrifað endalaust um þig, að hafa átt því láni
að fagna að vera með þér þessi ár er ómetanlegt. Ég varð að skrifa til þín þessi
fátæklegu orð nú þegar þú ert komin á veiðilendurnar
endalausu.
Það kemur aldrei neinn í þinn stað, þú verður alltaf drottningin,
það er bara þannig.
Það er á svona stundum sem gott er að trúa, trúa að við hittumst
aftur og þá verður þú búin að skanna svæðið sem þú ætlar með mig til veiða
á.
Þangað til verður þú með okkur í anda, bæði hér heima og
veiðiferðum, þú gleymist aldrei. Þitt nafn á eftir að koma oft fyrir í okkar
lífi í framtíðinni enda búið að stimmpla það rækilega inn.
Þín er sárt saknað af öllum þeim nánustu sem voru í þínu lífi,
öllum þótti óendanlega vænt um þig.
Zelda, takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur öll þessi
ár, þú varst einstök og mér þótti svo innilega vænt um þig.
Bless í bili elsku Zelda, þinn Pabbi