Sæl öll.
Ég skrifaði það hér um daginn að ég hugðist ætla að bæta við kynningu Péturs Alans Guðmundssonar á sjálfum sér. Hann er í framboði til stjórnar HRFI á næsta ársfundi félagsins og kynningin sem ég ætla að bæta við er viðbót við hans framboðs kynningu sem hægt er að fara inn á og lesa á heimasíðu HRFI.
Auðvitað minnist Pétur ekki á neitt neikvætt um sálfan sig í kynningunni, það er eðlilegt þar sem þetta er jú framboðskynning og ekki hefði fyrir öðru en mæra sjálfan sig í slíkum kynningum. Ætla ég því að taka það að mér óumbeðinn og algjörlega á minn kostnað að koma með eitt og annað sem Pétur sleppti í sinni kynningu.
Nú kann einhver að spyrja af hverju ég sé að þessu, hvað vaki fyrir mér? Það er mjög einfalt svar við því. Ég hef verið félagi óslitið í HRFI frá árinu 1999. Ég hef allan þann tíma átt hund/a sem tilheyra grúppu 7. Sem eru af tegundinni Vorsteh.
Af reynslu minni til margar ára af hans verkum og afskiptum af málefnum fuglahunda og einnig starfsemi HRFI almennt tel ég það skyldu mína í það minnsta að reyna af öllum mínum mætti að koma í veg fyrir að Pétur nái brautargengi og í framhaldi kjöri í stjórn HRFI. Ég get þá allavega ekki sagt við sjálfan mig hvernig sem fer að ég hafi ekki reynt.
Hef oft sagt það áður að það er ekki á færi nema allra færustu penna að koma tilfinningum í orð, rituð orð eru alltaf svartir stafir á hvítum grunni. En eitt eigum við öll sameiginlegt, okkur þykir öllum vænt um eitthvað. Sem betur fer þekkjum við flest öll í það minnsta eina og flest okkar mun fleiri en eina persónu sem okkur þykir alveg rosalega vænt um. Þetta eru gjarnan persónur sem við myndum nánast gera hvað sem er fyrir ef við værum beðin um og alveg klárlega myndum við gera allt svo þær yrðu ekki fyrir meiðslum eða yrðu særðar af einhverju sem við vissum að við gætum komið í veg fyrir. Við myndum alltaf reyna það sama hvað það kostaði vegna væntumþykju okkar í þeirra garð.
Auðvitað er ekki hægt að bera saman HRFI og persónur sem mér þykir ofboðslega vænt um enda ekki ætlunin. En eins og áður sagði þá er erfitt að koma tilfinningum í orð og er ég með þessari viðbótar kynningu á Pétri Alan Guðmundssyni að reyna að koma með nægilega góð og sannfærandi rök til þess að afstýra því að hann verði mögulega stjórnarmaður í HRFI eftir næsta ársfund.
Ég er að reyna að koma í veg fyrir að félagið verði ekki fyrir meiðslum eða særindum. Ég ætla að koma með nokkur blogg fram að ársfundi sem ég innilega vona að komi til með að sannfæra ykkur um að kjósa hann ekki í stjórn HRFI. Ekki nóg með það heldur ætla ég að vona að þið sannfærist svo innilega að þið komið til með að hvetja þá sem jafnvel ekki ætla að mæta á fundinn til að mæta svo koma megi í veg fyrir leiðindi og særindi sem skaðað gæti HRFI.
Þið verðið samt að gera eitt fyrir mig. Trúa því og treysta að ég sé að segja satt og rétt frá. Trúa því að ég geti staðið við það sem ég skrifa og segi hér eftir sem hingað til. Og einnig verðið þið að gleyma hver skrifar því það skiptir ekki máli. Það sem máli skiptir eru þær staðreyndir sem fram koma og að Pétur Alan er í framboði til stjórnar HRFI.
Ég sjálfur á mjög líklega eftir að koma inn í þessa kynningu, þar að segja samskipti mín við Pétur Alan en ekkert af þeim dæmum eða tilvikum koma til með að vera sögusagnir heldur dæmi sem aðrir geta staðfest ef þurfa þykir. Einnig mun mikið af þeim heimildum sem ég vitna í koma af netinu, meðal annars úr fundargerðum og skrifum þar sem staðreyndum er lýst.
Að sjálfsögðu átta ég mig á því að svona kynning getur reynst tvíeggja sverð þegar allt kemur til alls. Fólk mun spurja sig hvort ég sé að leggja manninn í einelti, hvað hann sé eiginlega að mér og svo fr. það er samt ekki mikil áhætta sem ég tek þar sem mér virðist hann vera á leið í stjórn HRFI að öllu óbreyttu svo það er engu að tapa en allt að vinna.
En þetta er mín opnun á málinu og ef ég kem ekki með kafla nr.1 á morgun þá verður það síðasta lagi 1.maí. Ég veit að bloggið mitt er mikið lesið og vona ég að það eigi eftir að aukast enn meir hjá félagsmönnum HRFI fram að ársfundi svo endilega láttu þetta spyrjast út.
Takk fyrir lesturinn.