En hvað er það sem veldur? Mér var lengi vel kennt um af ákveðnum mönnum að mórallinn væri eins og hann er. Að nýliðar skiluðu sér ekki í starfið því ég væri svo neikvæður og með allt á hornum mér. Ég tel mig nú hafa afsannað það þar sem ég hef ekki skrifað staf né blandað mér á annan hátt í umræðuna að neinu viti í langan tíma. Hef að sjálfsögðu verið með púlsinn á málunum þó ég hafi ekki verið að skipta mér af.
Þrátt fyrir það hefur staðan aldrei verið verri að mínu mati. Nýjasta dæmið er sem ég fjallaði um í síðasta bloggi mínu þar sem spjallþræði var eytt út í heilu lagi á facebook síðu Fuglahundadeildar. Hver tók þá ákvörðun hefur ekki enn komið fram en það líður varla á löngu þar til að lekur undan steini.
Það er nákvæmlega gjörningur sem þessi sem hleypir illu blóði í fólk. Það eru nákvæmlega afskipti sem þessi sem hefur í gegnum árin gjörsamlega eyðilagt þetta áhugamál okkar.
Það er samt þannig að vondar skoðanir verða að heyrast til að hægt sé að kljást við þær. Með því að þagga niður í óvinsælum skoðunum lokum við augunum fyrir vandanum og skiljum hann eftir jafn óútkljáðan og áður.
Skoðanir sem þóknast ekki örfáum aðilum innan okkar raða eru barðar niður með ofbeldi. Það eru mörg dæmi um það í sögunni þar sem reynt hefur verið að berja niður skoðanir og vilja fólksins. Öll þekkjum við sögur af andspyrnuhreyfingum sem á endanum náðu í gegn vilja fólksins. Þá voru það gjarnan örfáir menn sem þorðu og gerðu. Aðrir þorðu ekki af ótta við vandarhöggin en studdu samt og óskuðu innilega að andspyrnan næðu sínu fram.
Það má kannski segja að ég sé ein af þeim persónum sem er sjáanleg í andspyrnuhreyfingunni. Ég hef með því einu að segja mínar skoðanir gert það ómögulegt fyrir mig að fá hlutlausa dóma á mína hunda hjá Íslenskum dómurum. Því til staðfestingar sem áður hefur komið fram hafa 9 af 10 bestu dómum á mína hunda komið frá erlendum dómurum sem þekktu mig ekki neitt. Og til að taka af allan vafa mætti ég á þeim tíma jafnt í próf hjá þeim Íslensku og erlendu.
Nokkrum sinnum hafa hundar í minni eigu hreinlega verið dæmdir niður með mjög óréttlátum dómum. Þetta hafa margir séð og talað um í gegnum árin, menn sem til málanna þekkja hafa spurt mig „Kjartan hvað gerðir þú dómaranum eiginlega“
Íslenskur dómari laug upp á mig blá kalt að ég hafi veist að sér í veiðiprófi og sendi stjórn HRFI kvörtun vegna þess. Málið var rannsakað og hlaut dómarinn Egill Bergmann ákúrur fyrir frá stjórn HRFI. Það var mér til happs að tvö málsmetandi vitni voru á staðnum sem vitnuðu um að ég hefði spurt dómarann einnrar spurningar í rólegheitum. Það átti ekkert skilt með að veitast að einhverjum!
Auðvitað átti að svipta hann dómararéttindum eftir svo alvarlegar upplognar sakir á hendur þátttakanda.
Eitt skiptið var ég beðinn um að ganga með í prófi sem aðstoðarmaður dómara (prófstjóri fór þess á leit við mig)
Ég spurði prófstjórann hvort það væri óhætt, það væri nokkuð ljóst að ákveðnir aðilar yrðu kolvitlausir ef af því yrði.
Það kom á daginn. Pétur Alan Guðmundsson og Sigurður Ben Björnsson hótuðu að skila inn dómaraskýrteinum sínum ef ég gengi með sem aðstoðarmaður dómara. (dómarinn var erlendur) Þetta var ótrúlegt ofbeldi af þeirra hálfu sérstaklega ef mið er tekið af því að þeim kom þetta ekkert við og snerti þá ekkert.
Og Siggi Benni sem aldrei hefur dæmt próf einn og sér. Hann dæmdi eftir sitt nám örfá próf og þá með öðrum dómara.
Miðað við reglur þá er Siggi Benni ekki lengur dómari þar sem mörg ár hafa liðið frá því hann kom nálægt dómum í fuglahundaprófum. Held að reglur segi til um ef dómari dæmir ekki í 2.ár missir hann réttindi sín.
Þetta hefur komið fram áður en ég kem með þetta núna aftur til uppryfjunar og fyrir þá sem ekki hafa fylgst með áður.
Ég á mörg önnur dæmi til um ofbeldi af hálfu þessara manna en ég á ekki að þurfa að koma með allan listann, þessi dæmi sýna klárlega fram á vanhæfni þeirra.
Ég veit að þetta er ótrúlegt og erfitt fyrir marga að trúa en við ykkur segi ég. Það geta margir staðfest þetta og sumt af þessu er á netinu, meðal annars í fundargerðum stjórnar HRFI.
Tölum aðeins áfram um dómarana. Svafar Ragnarsson átti að dæma Kaldaprófið og mun örugglega gera. En gríðarleg óánægja er með þá ákvörðun hjá mjög mörgum þátttakendum. Það var meðal annars umræðuefnið í spjallþræðinum sem eytt var út af facebook síðu Fuglahundadeildar. Þar var meðal annars deilt á framkomu Svafars við þátttakendur í prófum sem hann hefur dæmt. Ákveðið var að fá erlendann dómara í stað Svafars þar sem svo mikil óánægja er með hans dómarastörf.
Sagan segir að þá hafi ákveðinn aðili orðið alveg kolvitlaus (þið getið ykkur til um hver það er) og sagði það ekki koma til greina. Nú voru góð ráð dýr, hvað skildi gera til að bjarga málunum. Jú þá á að redda því þannig að haldnir verða 3.keppnisflokkar þrjá daga í röð því þá eru dómararnir fjórir samtals. Hefði ekki verið eðlilegra að fara eftir vilja þorra þátttakenda og leysa Svafar undan prófinu? Þá spyrja menn að sjálfsögðu þeirrar spurningar, hverjum vantar svona mikla sénsa til að eiga möguleika á því að gera hundinn sinn að veiðimeistara?
Nú veit ég að einn aðili spurði stjórn Fuglahundadeildar á umræddum þræði sem eytt var út hvort hætta væri á því að Svafar myndi dæma hundinn hans í umræddu prófi. Þessi aðili skráði meðal annars í prófið þar sem hann var þess fullviss um að Svafar myndi ekki dæma. En þá eins og svo oft áður er reglum breytt eftir á. Stjórn Fuglahundadeildar áskildi sér rétt til breytinga hvenær sem væri!
Ég hef 100% heimildir fyrir því að mjög margir skrá ekki í próf þegar Svafar á að dæma. Svafar var meðal annars sagður í þessum spjallþræði ekki hafa verið með góða framkomu við einstaka þátttakendur.
Þarna hefði mér þótt eðlilegt af Svafari að svara bara beint út og biðjast afsökunar á því hafi hann mögulega móðgað einhvern og hann skildi taka það til sín. En nei þess í stað var farin sú leið að eyða út spjallþræðinum. Já kunnugleg aðferð ...........
Eitt af stóru vandamálunum með okkar dómara er að þeir setja sig á prófin. Með öðrum orðum þeir skipta prófunum á milli sín. Þannig á það að sjálfsögðu ekki að vera. Það eru deildirnar sem ákveða sín próf sem eiga að bjóða eða biðja dómarana um að dæma prófið.
Það er í engu landi og engu sporti þar sem dómararnir velja sjálfir hvar og hvenær þeir dæma. Þið hljótið að vera sammála mér þar. Þá fyrst kemur í ljós hvaða dómurum við treystum best til að dæma hundana okkar. Þá myndu vanhæfu dómararnir detta sjálfkrafa út og ekki eiga upp á pallborðið aftur. Svona er gert í öllu sporti, dómarar sem dæma eins og um Engjaldsfíflið væri að ræða og væru með móðgandi komment í sínum útskýringum fá ekki að dæma oftar.
Það er nákvæmlega það sem gerist annarsstaðar. Ætla að ryfja upp eitt próf sem ég tók þátt í fyrir mörgum árum. Erlendur dómari sem heitir að mig minnir Walter Mulan stóð sig alveg skelfilega og dómar hans og framkoma voru algjörlega út úr korti. Fljótlega fékk hann gælunafnið Walter Bin Laden vegna starfa sinna sem segir allt sem segja þarf.
Í framhaldi var ákveðið að þessi maður kæmi aldrei hingað aftur til að dæma í prófi. Já gott fólk þannig á þetta að ganga fyrir sig.
Svo les maður á spjallsíðum þar sem einstaka nýliði eða tveir þrír keppast við að hlandmerkja sér dómarana og mæra þá upp til skýja. Jafnvel þrátt fyrir að hafa aldrei mætt í próf hjá viðkomandi eða bara mætt yfir höfuð í próf.
Allavega er það ágætis skemmtun að lesa þannig komment frá fólki (með fullri virðingu) sem veit nákvæmlega ekkert um hvað það er að tala.
En ég hef samt tekið eftir því að það er í lagi að mæra þá upp en um leið og einhver hefur aðra skoðun þá er lokað á það. Klárlega mismunun á skoðana og tjáningafrelsinu.
Ég er reyndar enn að furða mig á skiptingu verka hjá stjórn Fuglahunda deildar. En eins og fólk hefur verið duglegt að minna mig á þá eru akkúrat þetta vinnubrögðin sem viðhöfð hafa verið undanfarin ár. Þ.e.a.s. ungt og kraftmikið fólk sem hefur þrótt, vilja og þrek til að draga vagninn er sparkað til hliðar.
En það verður nú stundum að þakka fyrir það líka því oft leiðir það gott af sér á endanum. Sjáiði til dæmis að Vorsteh-deild varð til meðal annars vegna svona vinnubragða hjá stjórn Fuglahundadeildar og fyrir það verð ég alltaf þakklátur.
Og svo eru tveir þrír aðilar sem vilja sameina Vorsteh-deild inn í FHD! Það sannar það sem allir vita að ekki eru alltaf allir með fullum mjalla!
Sagan segir reyndar að þeir aðilar fái ekki að stjónast í Vorsteh-deild. Fyrri stjórnir hafa varist þeim fimlega og ekki hlustað á bullið sem frá þeim kemur. Þess vegna vilji þeir að deildin verði sameinuð FHD svo þeir geti aftur náð fullum tökum og afskiptum af okkur og komið hverju bullinu af öðru með ofbeldi inn í reglur og lög!
Jæja gott í bili en ætla í lokin að þakka frábær viðbrögð við því að ég skuli vera byrjaður að blogga aftur. Sumir sögðu þó að ég hefði ekki verið nærri nógu aggresífur ............
Á dagskránni hjá mér er meðal annars að glugga aðeins í einstaka framboð til stjórnar HRFI. Það verður samt ekki alveg strax þar sem gagna öflun er í fullum gangi og er það umfangsmikið verk. En það verður klárt fyrir aðalfund HRFI
Af hverju er ég að þessu kunna sumir að spyrja? Jú það er vegna þess að málið er mér mjög kært eins og margir vita. Ég get ekki horft upp á klíkuskapinn sem þrýfst á meðal okkar. Ég get ekki horft á einstaka aðila ár eftir ár traðka á rústunum sem þeir sáu sjálfir um að brenna niður. Ég veit líka að mjög margir eru sammála mér. Ekki endilega öllu alltaf en mjög flestu því sem ég hef að segja. Ég er ekki að segja að þú eigir að hafa þessa skoðun, nei ég er bara að segja mína skoðun og frá minni reynslu.
Nú ef sannfæring mín er röng þá er hún bara röng og kemur það alltaf í ljós á endanum. En hef sagt það áður að ef einungis 5% af því sem ég hef bloggað um í gegnum tíðina er satt og rétt þá er ástæða til að stoppa við og skoða málið !!!