Já nú get ég ekki annað en talað bara hreina Íslensku í þessu bloggi. Mun þó reyna að halda mér innan marka eins og venjulega en á þó von á því að vera mjög nálægt mörkum í kvöld!
Vil þó byrja á því að þakka ykkur öllum fyrir heimsóknirnar inn á bloggið mitt. Það er alveg ljóst að það er ekki bara hundafólk sem fylgist með því fjöldinn er slíkur að það myndi jafngilda að 25% félagsmanna HRFI læsi bloggið reglulega. Það getur svo sem vel verið að svo sé en leyfi mér samt að efast um það.
En viðbrögðin við síðasta bloggi mínu hafa ekki látið á sér standa enda skal engan undra. Fólk er almennt sammála um að ekki sé hægt að setja út á málshefjanda Ásgeir Heiðar þar enda var það aldrei ætlun mín, hann er bara eins og hann er og ekkert við því að gera. Það er ekki langt síðan að Ásgeir Heiðar sagði mig vera leggja Pétur Alan í einelti, þetta sagði hann opinberlega netinu. Ég hefði nú frekar kallað mig fjöleltismann = að ég væri að leggja fólk í fjölelti. Já það er rétt að ég tala um það sem daglegu tali kallast spilling og vinavæðing sem ekki á að líðast og skiptir þá ekki máli hver á í hlut.
Ætli Ásgeir hafi eitthvað nafn yfir þá sem kalla menn andskotann og rakinn óþverra?
Ásgeir ég veit ég sagði á netinu að mín skoðun væri sú að Pointerar væru ekki góðir veiðihundar fyrir íslenskar aðstæður fyrir íslenska VEIÐIMENN. Ég myndi ekki mæla með þeim nema hugsanlega að viðkomandi ætlaði að leggja stund á rafmagnsverkfræði í HÍ. Ég sagði það þá og segi það nú, jóla hvað ha.
En það voru like-in sem allir dómarararnir með tölu settu á færslu Ásgeirs sem hafa vakið hvað flest og mest viðbrögð. Við vitum öll hvað like á færslu þýðir. Það þýðir einfaldlega, ég er sammála eða mér líkar þessi skrif hjá þér.
En höldum áfram.
Það nýjasta hjá Pétri var að hann er nú búinn að setja inn á facebook færslu þar sem hann hvetur fólk til að fara inn á deildarsíðu Vorsteh á facebook. Þar segir hann meðal annars. „Kæru hundafélagar endilega kynnið ykkur og setur svo í gæsalappir „uppbyggileg“ skrif á Fb Vorstehdeildar“ Svo setur hann linkinn inn ásamt því að hvetja fólk til að hafa popp og kók og nóg af því við lesturinn. Sjá print screen hér að neðan. Klikka til að stækka og meiri lestur fyrir neðan mynd.

Nú tala ég beint til Péturs.
Sæll Pétur. Hvað gengur þér til stjórnamanni HRFI að setja inn svona færslu. Ertu virkilega orðinn svona örvæntingarfullur að þú þarft að leita þér fylgis utan raða fólks sem á grúppu 7 hunda? Við vitum flest að þrettándinn er orðinn þunnur hjá þér en ekki gerði ég mér grein fyrir því að hann væri orðinn gegnsær!
Ertu virkilega búin að gleyma smöluninni þinni um árið þegar þú smalaði fólki úr öllum deildum til að mæta á aðalfund FHD til að kjósa í stjórn deildarinnar. Reglum félagssins var breytt í framhaldi á þann veg að eftirleiðis hefðu eingöngu meðlimir deilda rétt til að kjósa .............. eðlilega og takk fyrir það Pétur.
Geri ekki ráð fyrir því að þú svarir mér frekar en vanalega. Ekki frekar en öllum þeim sem lagt hafa fyrir þig spurningar opinberlega, þú kýst að fara þöggunarleiðina í hvert einasta skipti. Ef þú hefur ekkert að verja og allt er í stakasta lagi, af hverju svarar þú þá aldrei þeim sem ekki eru þér sammála en kýst frekar að baktala viðkomandi og setja like á færslur sem beinast gegn þeim?
Blogg heldur áfram.
Ég fullyrði að í dag vill stór meirihluti breytingar og það miklar breytingar. Um liðna helgi var haldið opið hús í Sólheimakoti (sem eftir helgi var allt í einu farið að kalla fund). Þetta var mikið hæpað upp á fuglahundasíðunum en þrátt fyrir það var afar dræm mæting.
Nú nota þessir örfáu það sér til tekna að okkur hefði verið nær að mæta á „fundinn“ til að fá svör. Ég segi, til hvers að mæta. Til hvers á fólk að mæta til að fá einhver svör frá manni sem blokkar fullt félagsmönnum HRFI á facebook? Til hvers að mæta ef fara átti eftir auglýstri dagskrá sem var að fara yfir reglur um nám til dómara?
Þó kom svar við spurningu sem ég hef spurt í mörg ár og hef verið óþreytandi að halda á lofti. Það er spurningin um hvenær dómararáð var stofnað formlega? Ég hef reyndar haldið því fram (vissi það reyndar) að dómararáð hafi aldrei verið til. Það var staðfest um helgina, dómararáð er ekki til! Þetta svokallaða ráð er hugarburður nokkurra aðila sem settu það á laggirnar með handafli. En þrátt fyrir það er minnst á dómararáð í 21.skipti í reglum um dómaranám! Og hvað segir þetta okkur? Jú allt sem hið svokallaða dómararáð hefur tekið ákvörðun um undanfarin ár er dautt og ómerkt!
Ég hefði samt örugglega mætt ef ræða hefði átt hversvegna síðustu 4-5 dómaranemar hafa hætt námi? Það finnst það mörgum skrýtið og takið eftir, fullyrðing mörgum. Getur virkilega verið að það sé alltaf eitthvað að hjá nemunum, eða getur verið að eitthvað mikið sé að hjá þeim sem hefur stjórnað hinu svokallaða dómararáði?
Og fyrsta reglan um dómaranám sem jafnframt vegur þyngst er færni viðkomandi í mannlegum samskiptum!
Annað dæmi er flótti Ensk Setter fólks úr FHD, það liggur við að ég fullyrði að þar sé aðeins einn aðili eftir sem á Enskan Seta en sá var kosinn í stjórn deildarinnar. Ég veit líka að margir þessara aðila hafa flúið deildina vegna manns sem heitir xxxxx xxxx og einnig vegna þess að þeir hafa ekki fengið að stofan deild um Enska Setann eins fáránlega og það hljómar. Þar er að mínu mati verið að brjóta lög FCI um stofnun sérdeilda fyrir hundakyn.
Áhugafólk um Enska Setann heldur úti facebook síðu um tegundina. Þar var Pétur búin að biðja um aðgang og var hleypt inn. Honum var hent út aftur og svona gekk þetta í 2-3 skipti. Það endaði á því að hann fékk að hanga inni en það hafði afleiðingar. Þrír af virkustu aðilunum þar inni tóku út allt efni sem þeir höfðu sett þar inn. Hvað gerðist í framhaldinu ..... jú síðan dó um leið!
Einhverja af þeim aðilum blokkar Pétur og er það alveg klárt að það er ákveðin ritstýring á síðum þegar aðilar þar inni pósta inn á grúppurnar sem ekki allir meðlimir grúppunnar sjá!
Hann er einnig meðlimur Vorstehdeildar á facebook ásamt mörgum öðrum. Þar eru margir aðilar sem ekki sjá pósta frá honum og meðal annars má þar nefna aðal styrktaraðila deildarinnar, Siggu í Bendi !
Þetta er þegar orðið allt of langt. Ég mun mjög fljótlega koma með framhald návæmlega þar sem ég hætti núna. Þar mun ég væntanlega tala forn íslensku og minnast á tvíburana tvo sem ganga undir nöfnunum Hallvarður og Hallvarður. Einnig mun ég ræða hugrenningar mína hvers vegna formaður HRFI mætti á opið hús í Sólheimakoti (fund) án þess það væri auglýst? Það hefði örugglega hvatt marga til að mæta. Það er bullandi óánægja meðal fólks sem á grúppu 7 hunda en samt virðist ekkert vera gert til að bregðast við því af kosinni stjórn félagsins. Einnig mun ég tala um persónu sem gengur almennt undir nafninu Jón Grenjar og fl.
Læt fylgja hér að lokum enn eitt like-ið frá Pétri Alan stjórnamanni og fuglahundadómara þar sem hann líkar við færslu Sigþórs Bragasonar. Færslan segir sig sjálf og reyndar like-ið líka. Vek sérstaka athygli á því að ekki þarf að staldra neitt við like-ið hans Ólafs Jóhannssonar, það er alvanalegt. Nú Svafar er náttúrulega bara sjálfhættur eins og flestir vita ....
Meira sem fyrst ...........