Einn aðili gekk svo langt að draga nafn virtrar hundaræktunar og fyrirtækis inn í umræðuna. Viðkomandi hundaræktun og fyrirtæki hafði á engan hátt komið nálægt þessari umræðu og algjörlega óskiljanlegt hvað viðkomandi aðila gekk til með þessum skrifum. Þvert á móti hefur viðkomandi fyrirtæki verið einn hellsti og ötulasti stuðningsaðili deildarinnar ásamt því að hafa stutt aðrar deildir innan HRFI.
Ég geri mér grein fyrir að hér get ég sagt nánast allt án þess að gripið sé fram í. Ég geri mér líka grein fyrir því að ég þarf ef til kemur að standa við það sem ég segi og geri, bæði hér sem og annarstaðar.
Við þekkjum það örugglega langflest sem höfum tekið þátt í umræðum á facebook síðum eða við störtum einhverri umræðu að hún er fljót að leiðast út í eitthvað allt annað en upphaflega stóð til. Fólk getur átt rosalega erfitt með að halda sig við umræðuna og er ég ekki undanskilin þar en langar að bæta mig.
En það sem mér finnst kannski hvað verst er þegar ég eða einhver annar startar umræðu sem ekki eru öllum þóknanleg. Tilgangur færslunnar hjá mér eða öðrum er kannski að benda á eitthvað sem betur mætti fara eða eitthvað óeðlilegt sem hefði átt sér stað.
Þá er það nánast öruggt að í hvert skipti koma sömu aðilarnir (ekki margir) fram á ritvöllinn og byrja að bauna á mig eða aðra sem tjáð sig hafa. Ég eða hinn er svo vitlaus eða svo leiðinlegur, heimskur eða gasprari.
Það getur svo sem vel verið rétt en það réttlætir samt ekki dónaskap/ruddaskap viðkomandi penna. Og til að toppa svo skrifin þá koma aldrei rök frá þessum aðilum hvað er svona rangt eða vitlaust. Nei það er alltaf farið beint í manninn til að beina athyglinni frá því sem skipti mestu máli sem er auðvitað upphafsinnleggið og svo rökstudd svör frá málsmetandi aðilum.
Get seint skilið af hverju fólk sem er með aðra skoðun en þú fari í þá átt að ata þig auri í stað þess að koma með sína skoðun rökstudda á móti.
En auðvitað er þetta auka-atrði og minni aftur á það sem ég sagði hér að ofan, það sem við gerum eða segjum dæmir okkur um leið. En samt er þetta leiðinlegt og þá sérstaklega fyrir þá persónu sem fellur í þá gryfju að skrifa eitthvað bull.
Það er samt leiðinlegt og mikið af neikvæðri orku og tíma sem fer í endalaust þras og pex. En þó virðist vera að þokast í rétta átt hvað þessi mál varðar. Hópurinn af málsmetandi fólki er alltaf að stækka sem lætur sig málin varða og er vel tekið eftir því. Það er því full ástæða til bjartsýni þó enn geti verið svoldið eftir í land.
Ég ryfjaði það upp um daginn fyrir sjálfum mér þegar fella þurfti niður próf Vorsteh-deildar vegna ónægrar þátttöku eitt árið. Þá var búið að skipuleggja með löngum fyrirvara próf deildarinnar og búið að kaupa flugmiða fyrir tvo erlenda dómara.
Það fór svo því miður að tveir menn ákváðu að vinna gegn deildinni og smöluðu því gegn skráningum í prófið með fyrrgreindum afleiðingum. Þetta hef ég staðfest frá fleiri en einum aðila sem þátt tóku á sínum tíma í því að hundsa próf deildarinnar. Auðvitað var það vont að segja dómurunum að við þyrftum ekki á þeim að halda því messufall væri í prófið. Og enn verra var þegar við þurftum að svara spurnigu þeirra sem var hversvegna er messufall í prófið. Auðvitað gátum við ekki logið að þeim og sögðum þeim því hreint út að smalað hefði verið gegn skráningu í prófið. Þeir urðu ofboðslega hissa og höfðu aldrei heyrt um svona tilvik áður. Man einmitt eftir að annar þeirra spurði hvort við værum ekki að hugsa um hundana hérna á Íslandi.
Ég hef ég heyrt frá sumum seinna sem þátt tóku í því að eyðileggja próf deildarinnar að þeir sæju eftir því.
En hugsið ykkur samt hvað við erum berskjölduð gagnvart upp-á-komum sem þessum. Að einn eða tveir einstaklingar skuli geta haft þau áhrif að heill viðburður á vegum deildar innan HRFI er felldur niður. Þetta væri til dæmis aldrei hægt út í Noregi eða öðrum löndum. En hér er þetta hægt vegna þess að við erum svo fá. Þetta væri aldrei hægt hérna ef að jafnaði 50-70 hundar væru að taka þátt en þessir menn geta haft þessi áhrif vegna smæðar okkar.
Ef við tökum dæmi næsta próf sem haldið verður um mánaðarmótin. Það væri hægðarleikur fyrir nokkra aðila að sjá til þess að unghundaflokkur myndi falla niður bara með samanteknum ráðum að skrá ekki í hann. Hér eru svo fáir unghundar að ekkert má út af bera svo náist að halda próf í þeim flokki.
Ég er alls ekki að halda því fram að svo verði heldur þvert á móti þar sem þeir unghundaeigendur sem eru í dag hafa verið duglegir að skrá í prófin hingað til. En því miður er allt of lítið um got og því oft fáir unghundar.
En talandi um facebook síðu deildarinnar. Um hádegisbil í dag var sett inn stutt kynning af öðrum erlenda dómaranum sem kemur til með að dæma í næsta prófi deildarinnar. Verð að segja fyrir mig að mér líst vel á að sá dómari er kona. Með fullri virðingu fyrir karlkyninu þá er þetta góð tilbreyting. Hún heitir Angelica Hammarström og kemur frá Svíðþjóð. Hún kom inn með mjög stuttum fyrirvara þar sem annar dómarinn veiktist og útséð var með að hann kæmist hingað til að dæma hundana okkar. En þegar þetta er skrifað eru 63. búnir að sjá kynninguna á Angelicu en aðeins 3 búnir að setja like. Já like hnappurinn getur verið ótrúlega þungur og erfiður við að eiga. Ef Angelica væri vinur Vorsteh á facebook (sem hún er ekki en hver veit í framtíðinni) og sæi að 63 manns væru búnir að lesa kynninguna en aðeins 3 búnir að setja like hvað skildi hún hugsa og hvað myndir þú hugsa ef þú snérir þessu við upp á þig? Já ég bara varð að velta þessu hér upp.
Það hlýtur að koma að þeim tímapunkti þar sem við náum þeim þroska að skilja á milli skoðana okkar og persónulegrar óvildar.
Ég hef til dæmis þá skoðun vegna eigin reynslu að ég ætla aldrei að fara með mína hunda í próf hjá Íslenskum dómurum aftur. Ég hef fullan skilning á þeirri skoðun minni hjá þeim sem fylgst hafa með málum. Ég veit um fleiri sem eru með sömu skoðun og ég og við verðum bara að virða það. Alveg eins og ég veit um nokkra aðila sem ætla aldrei til þessa íslenska dómara heldur bara hins íslenska og svo öfugt. Það er bara allt í lagi og má hver hafa sína skoðun á því.
En það sem mér finnst ekki í lagi og allt of langt gengið er þegar menn reyna að smala gegn þeim erlendu dómurum sem hingað koma og hafa ekkert með málið að gera einungis vegna skoðanna einstaka manna. Það er verið að fá þessa dómara til landsins fyrir okkur og þeim finnst það mikill heiður að fá að koma.
Auðvitað eiga sem flestir að nota tækifærið og mæta hjá dómurum sem eru í heimsklassa oft á tíðum og fá að heyra þeirra skoðun á hundinum sínum.
En aftur að sportinu sem er okkur mörgum svo kært. Auðvitað er alveg hellingur að hjá okkur og við værum að stinga höfðinu í sandinn ef við viðurkenndum það ekki. Við þurfum ekki annað en fylgjast með umræðum inni á facebook síðu deildarinnar. Þetta er ekkert öðruvísi en á vinnustað, ef mórallinn er slæmur þá finna allir fyrir því og þá er eitthvað sem veldur því að mórallinn sé slæmur. Með öðrum orðum, það er eitthvað að.
Það er eins með okkur og okkar sport. Ef reglulega eru deilur eða rifrildi þá er alveg ljóst að eitthvað er að en hvað er hægt að gera. Hef heyrt þá skoðun að umræður sem þessar eigi heima einhversstaðar annarsstaðar en á facebook síðu deildarinnar. Ég er ekki sammála og veit ég að þar á ég skoðanasystkini. Hvar annarsstaðar eiga umræður og skoðanaskipti um okkar sameiginlega sport heima annarsstaðar en á síðu viðkomandi deildar. Það hefur verið margreint að útrýma svona skoðanaskiptum og umræðum og í öllum tilfellum hefur það mistekist. Nýjasta dæmið er facebook síða FHD sem í kjölfarið dó um leið og ritstýring hófst. Að sjálfsögðu á að grípa inn í ef umræðan fer út í persónulegt skítkast eða eitthvað annað óviðeigandi en þar fyrir utan dæma skrifin sig sjálf.
Það eru svona síður sem gefa okkur öllum tækifæri hver sem við erum að koma skoðunum okkar á framfæri. Svo gerir hver og einn lesandi sér upp eigin skoðun á málinu hvort sem viðkomandi geymir þá skoðun fyrir sjálfan sig eða deilir henni til hinna sem fylgjast með. Við þurfum ekki annað en að sjá allan þann fjölda sem kominn er inn á síðu Vorsteh-deildar á undanförnum dögum. Þetta er ekki allt fólk sem á grúbbu 7 hunda heldur er þetta fólk sem er í félaginu HRFI. Þetta fólk heyrir af síðunni og sendir vinabeiðnir til að fylgjast með vegna þess að það vill það.
Já þetta kemur okkur öllum við sama hvar við stöndum hvað tegundir varðar.
Ég veit það er draumur en mikið rosalega væri það gaman ef hægt væri að vera ósammála á uppbyggjandi hátt. Þá á ég við að aðilar geti skipst á skoðunum á málefnanlegan hátt og hugsanlega komist að sameiginlegri niðurstöðu. Nú eða ekki og bara sammælst um að vera ósammála án þess að vera ómálefnanlegur eða hnýta einhverjum leiðindum í hvort annað.
Jæja svona blogg eiga að vera stutt og er þetta þegar orðið allt of langt. Ég hef því miður ekki þá getu að vera hnitmiðaður og stuttorður. Nokkuð viss um að einhverjir geti sagt það nákvæmlega sama og ég hér að ofan með 70% minna af stöfum en ég get það ekki.
Þangað til næst gleðilega páska og hafiði það sem allra best