Forsaga málsins er sú að Ólafur E Jóhannsson póstaði þar inn kommenti sem vægast sagt var mjög óviðeigandi, bæði ruddalegt og meiðandi. Ólafur beindi því kommenti gegn samstarfsmanni í stjórn FHD á þeim tíma og staðfesti þar með eigin vanhæfi sem formanns FHD á þeim tíma.
Svo til að bíta höfuðið af skömminni setti Pétur Alan fuglahundadómari like á herlegheitin. Set enn og aftur mynd af þessum kommentum í þetta blogg fólki til uppryfjunar.
Ég svaraði Ólafi í sömu mynnt, þó held ég að ég hafi verið heldur dannaðri en hann. Daginn eftir þegar ég ætlaði að kíkja inn á FHD á facebook tók ég eftir því að ég hafði verið blokkaður af síðunni!
Ég að sjálfsögðu tók bara upp símann og hringdi í formann deildarinnar Albert Steingrímsson til að fá á því skýringar hvers vegna ég hefði verið blokkaður. Ekki gat gat það verið fyrir mín skrif þar sem þau voru nákvæmlega í sama anda og komment Ólafs E en hann hafði ekki verið blokkaður eins og ég? Og þar fyrir utan hefði komment frá því í vor fengið að standa óhreyft ásamt innsendanda sem líkti andlitinu á mér við hunds-rassgat og lét fylgja því til staðfestingar mynd af einu slíku.
Ég bar spurningu mína undir Albert sem þá var að fara með hunda inn á sýningarsvæði HRFI (á síðustu sýningu, sunnudagur) Hann hafði ekki akkúrat tíma þá til að tala við mig en hringdi í mig ca. klukkutíma síðar.
Til að gera langa sögu styttri sagðist Albert nákvæmlega ekkert vita um málið. Það væri búið að vera mjög mikið að gera hjá honum undanfarið og hann ekki haft tíma til að fylgjast með. Hann sagði einnig blákalt nei þegar ég spurði hann hvort hann hefði greitt því atkvæði að blokka mig út af facebook síðu deildarinnar. Hann ætlaði sannarlega að setja sig inn í málið og hafa svo samband við mig. Núna 7.október er ég enn að bíða eftir því símtali.
Nú þori ég að leggja undir að Albert laug að mér. Ég er 100% viss um að hann, Kristín og Unnur greiddu því atkvæði að ég yrði blokkaður út af facebook síðu deildarinnar! Með öðrum orðum var hann ekki maður til að viðurkenna það fyrir mér beint. Ég hef kannast við Albert í mörg ár og spjallað við hann í hvert skipti sem okkar leiðir liggja saman. Ég hef bara þekkt hann af góðu einu og kemur mér þetta því í opna skjöldu?
En skoðum þetta samt aðeins betur. Mér var hent út vegna þess að ég svaraði Ólafi E í nákvæmlega sama tón og hann skrifar gegn félagsmanni FHD og HRFI sem hefur ekkert gert annað en vinna mikið og óeigingjarnt starf fyrir bæði deild og félag. Pétur Alan setur like á þá færslu sem ég gagnrýni. Þremur dögum síðar er síðunni lokað.
En skoðun stjórn FHD aðeins betur. Unnur á hvolp ef ég fer rétt með frá títtnefndum Pétir Alan og dregur klárlega hans vagn í dag þó ég sé þess fullviss að það breytist með tíð og tíma eins og hjá allflestum sem borið hafa þau reiðtygi, það er bara spurning um tíma.
Og svo það allra athyglisverðasta er að Kristín á best dæmda Weimaraner í allri evrópu ef ekki í heiminum. Og hver haldið þið að hafi verið að dæma ............... Já rétt hjá ykkur, Pétur Alan Guðmundsson. Sjá má þennan í gangagrunni FHD og er ég alveg steinhissa á því að Kristín skuli ekki mæta meira með þennan frábæra hund í próf! En tölurnar í þessu prófi hjá hundinum voru 5-5-5-6-4-4-4 sem er með því allra besta sem gerist hjá hundum yfirleitt. Allir aðrir dómar um þennan hund sem eru þó nokkrir eru allir mun lakari!
Já talandi um að kaupa atkvæði og greiða fyrir! Já það eru víða tengslin í þessum þrönga hóp og ekki þarf að skoða það neitt ofan í kjölinn svo upp komist. Þetta er fyrir okkar allra augum.
En að loka heilli deildarsíðu á facebook með þremur hæpnum atkvæðum af fólki sem ekki stofnaði síðuna og án þess að bera það upp á deildarfundi er ekkert annað en ofbeldi gegn meðlimum deildarinnar. Hvernig stendur á því að þetta sé yfir höfuð hægt? Af hverju lætur fólk svona ofbeldi yfir sig ganga, við erum ekki svo ofurseld þessum fáu hræðum sem öllu vilja ráða. Halló vöknum og opnum augun, við eigum svo miklu betra skilið og hundarnir okkar líka.
Og núna þegar ég sit hér og pikka þetta blogg mitt tek ég eftir því að stjórn FHD er að auglýsa prófið sitt í annað sinn á facebook síðu Vorsteh-deildar. Já það er hálf aumkunarvert að sjá og tala ég fyrir mína parta þegar ég segi að ég vilji ekki sjá þessar auglýsingar né neitt frá FHD inn á facebook síðu Vorsteh-deildar. Ekki getum við sett neitt inn á þeirra síðu og hljóta flestir að sjá að þetta er ekki alveg að passa!
Við vitum öll að á facebook síðu FHD var einnig verið að ræða viðkvæm mál sem snéru að stjórn deildarinnar. Ég set inn mynd af upphafi þeirra umræðu og höfundi hennar með þessu bloggi og hugsanlega ástæðu þess að Ólafur E var með þessi meiðandi og særandi ummæli um meðlim FHD. En hver kippti í spottann, hver stóð fyrir því að síðunni var lokað? Ég veit það en get ekki sagt það ennþá þar sem ég hef það ekki ennþá 100%.
Eins og flest ykkar vita set ég ekkert frá mér nema geta staðið við það og bíð ég því með það að sinni.
En aftur að stjórninni. Á heimasíðu deildarinnar eru aðeins 4 aðilar í stjórn, það er hvergi minnst á Einar Guðnason sem þó var kjörinn í stjórn deildarinnar og hefur hvergi komið fram að hann hafi hætt. En ef svo vill til er þá ekki deildin kol-ólögleg þar sem skýrt er kveðið á um að stjórn skuli skipuð 5.mönnum/konum? Það er mjög sérstakt kommentið frá Einari sem hann setti inn á facebook síðu deildarinnar áður en henni var lokað. Hægt er að sjá það í myndum hér fyrir neðan þetta blogg.
Svo er verið að gagnrýna Kim Jong Un æðsta mann Norður Koreu fyrir stjórnunarhætti. Hvað er það annað en ofbeldi frá stjórn deildarinnar þegar heilli síðu er lokað vegna óþægilegra spurninga sem snúa að stjórn deildarinnar. Halló hvað varð um tjáningarfrelsið?
Nú kunna sumir að segja, hvað er Kjartan að tuða, hann er alltaf rífandi kjaft og setjandi út á þennan og hinn. Mitt svar við því er að ég er hvergi í stjórn né nefdnum sem taka ákvarðanir eða hafa áhrif á störf deilda né HRFI. Um leið og þú ert kominn í þannig stöðu gefur það fólki rétt á að gagnrýna störfin (tek fram að ég er ekki að gagnrýna persónulega) nákvæmlega eins og dómarar í öllum stéttum eru gagnrýndir sem og alþingis menn og fl.
En að kast að kasta mér út af facebook síðu deildar sem er innan HRFI er enn eitt ofbeldið sem ég hef mátt þola fyrir mínar skoðanir í gegnum árin en dæmin í þessum dúr eru orðin miklu fleiri en mig langar til að muna. Ég hef oft verið spurður að því hvernig ég höndli svona framkomu þar sem ákveðnir aðilar svífast einskins til að bregða fyrir mig fæti og gera mig ótrúverðugan. Mitt svar er gjarnan á þá leið, veistu ég er löngu orðinn vanur þessu. En konan mín sagði við mig um daginn, Kjartan, það á enginn að þurfa að venjast svona!
Og ég staldraði við og hugsaði ........................... Þetta er hárrétt hjá henni.
En ég mun að sjálfsögðu halda áfram að blogga eftir minni sannfæringu og staðfestu. Hef oft sagt það áður að þó ekki væri nema bara 5% af því sem ég segi rétt er það ástæða til að gera eitthvað róttækt í málunum.
Næsta blogg mun mjög sennilega verða um Vorsteh-prófið síðasta, mína upplifun og annara af því. Einnig veiðipróf FHD í Áfangafelli nú í sept og úrslit hjá Vorsteh-hundum á síðustu sýningu HRFI. Það gæti orðið mjög forvitnileg og sérstök lesning.
Góðar stundir
Klikka á myndir til að stækka