Mig langar að segja ykkur sanna sögu af manni sem er tendur mér fjölskylduböndum. Datt þessi samlíking í hug þegar ég horfði á kvöldfréttir í RUV nú í kvöld. Hann hafði um margra ára skeið starfað sem flugumferðarstjóri á Keflavíkurflugelli. Eftir margra ára starf urðu breytingar, fyrirtæki sem heitir Isavia tók yfir allan rekstur flugvallarins og þar með talin málefni flugumferðarstjóra.
Hann hafði átt farsælu starfi að fagna til margra ára og ekki fengið svo mikið sem eina áminningu. En á einhverjum tímapunkti fór hann að skynja þá tilfinningu að ákveðnir aðilar væru að leggja hann í einelti. Til að gera langa sögu stutta fór það þannig að honum var sagt upp störfum með þeirri algengu útskýringu þegar engin ástæða er til að um skipulagsbreytingar væri að ræða!
Hann fékk ekki áminningu, hann fékk ekki ávítur fyrir að standa sig illa í starfi, honum var bara sagt upp, það var bara eitthvað við hann sem yfirmanni líkaði ekki! Hann hafði margra ára sérhæft nám á bakinu sem gat ekki gagnast honum í öðrum störfum. Hann gat ekki farið og sótt um á öðrum vinnustað hér á landi. Nei þetta var nefnilega eini vinnustaðurinn á landinu sem bauð upp á vinnu miðað við hans menntun.
Þetta var ekki eins og verið væri að segja upp einhverjum smið eða kassadömu í Bónus með fullri viðringu fyrir þeim sem hefðu haft möguleika á því að fara í annað fyrirtæki á landinu og sækja um samskonar vinnu. Nei hann varð að fara erlendis og hefur verið þar síðan í stríðshrjáðu landi þar sem sprengjum rignir reglulega. Þar er hann fjarri fjölskyldu, öryggi og vinum marga mánuði í einu til að vinna fyrir fjölskylduna.
Hann stefndi Isavia fyrir ólöglega uppsögn og endaði það alla leið fyrir hæstarétt. Þar var honum dæmt í vil og ákveðnar bætur. En það var ekki það sem hann vildi, hann vildi fá að starfa hér á landi nærri fjölskyldu og vinum.
Auðvitað gat hann sótt um aðra vinnu hér á landi en þá sem sniðin var fyrir hans menntun. En hann mentaði sig í þessu þar sem hann vildi og hafði mikinn áhuga á því að vinna við flugumferðarstjórn.
Af hverju er ég að segja ykkur þessa sögu? Jú eins og þið vitið þá hef ég brennandi áhuga á fuglahundum. Auðvitað er ekki hægt að líkja þessu hér að ofan við það sem ég ætla að segja hér að neðan ..............eða hvað. Jú segi ég þó að sjálfsögðu hafi það ekki eins alvarlegar afleiðingar og í dæminu hér að ofan.
Nú er svo komið og hefur verið í mörg ár að ég hef ekki getað mætt í veiðipróf með mína hunda þegar Íslensku dómararnir þeir Pétur Alan Guðmundsson, Svafar Ragnarsson og Egill Bergmann eru að dæma. Það er algjörlega vonlaust fyrir mig að ætla að fá hlutlausa dóma á mína hunda frá þessum mönnum. Allt of mörg naglföst dæmi í gegnum tíðina sína fram á það svo ekki verður um villst.
Dæmi: Egill Bergmann sakaði mig fyrir mörgum árum og klagaði til stjórnar HRFI að ég hefði veist að sér í veiðiprófi.
Mér til happs voru tveir málsmetandi menn (ásamt eiginkonu minni sem ekki er marktæk) vitni að samtali okkar Egils og vottuðu þeir fyrir stjórn HRFI að samtal okkar Egils hefði ekki átt neitt skilt við það að veitast að einhverjum.
Það fór að lokum að Egill Bergmann fékk ákúrur frá HRFI fyrir að ljúga upp á þátttakanda í viðburðum HRFI.
Ég kærði hann fyrir siðanefnd HRFI sem lét málið niður falla af óskiljanlegum ástæðum. HRFI veitir honum ákúrur en siðanefnd lét málið niður falla þrátt fyrir að sannað væri að Egill sem sinnti trúnaðarstörfum fyrir HRFI hafi logið upp á þátttakanda!
Nú spyr ég þig kæri lesandi ......... Myndir þú mæta í próf hjá dómara sem kæmi svona fram?
En þótt ótrúlegt megi virðast er Pétur Alan samt mun vanhæfari dómari en Egill Bergmann. Ég á ekki að þurfa að taka sérstakt dæmi hvað hann varðar, við vitum öll sem fylgjumst með hvað ég á við. En til að taka bara nærtækasta dæmið má sjá síðasta blogg mitt þar sem hann setur like á færslu Ólafs E þar sem Ólafur E er að hrauna yfir meðlim HRFI og Fuglahundadeildar. Og svo bara frá í gær læt fylgja í þessu bloggi nýjasta like-ið frá Pétri þar sem hann setur like enn og aftur á komment Ólafs E þegar hann gerir lítið úr og hæðist að mönnum.
Þessir menn halda endalaust áfram, þeir vita sem er að þeir komast upp með allt hér eftir sem hingað til, eða hvað? Nei held ekki, sem betur fer er hópurinn orðinn mun stærri í dag sem vill þessa menn frá okkar sporti. Þessir menn eru búnir að skemma svo mikið að óvíst er hvort nokkurn tímann verði hægt að bæta skaðann.
Svafar get ég tekið sérstaklega fyrir en það er nóg að minnast á öll hans like á færslur þar sem verið er að hrauna yfir ákveðna menn. En Svarfar þarf ekkert að tala um, hann er sjálfhættur í þessu þar sem nánast enginn er eftir sem vill skrá í próf hjá honum. Þarf ekki að líta nema til síðasta prófs Vorsteh-deildar þó hann hafi ekki verið dómari þar.
En þá komum við að inntakinu aftur. Gott fólk, við sem ekki getum mætt í próf hjá þorra Íslenskra fuglahundadómara hvað getum við gert. Við getum ekki einu sinni gert þá neyðarráðstöfun að fara erlendis með hundana í dóm eins og maðurinn sem ég minntist á hér að ofan neyddist til að gera vinnu sinnar vegna.
Við getum ekki farið í próf hjá öðru viðurkenndu félagi en HRFI, það er ekki til hér á landi.
Við getum hinsvegar skráð í próf þegar erlendir dómarar koma hingað upp og við fullviss að þessir aðilar komi hvergi þar nærri. Ég veit að margir munu nýta sér það í framtíðinni enda okkar eini séns. En það hallar samt á okkur, það eru svo sjaldan erlendir dómarar hér miðað við fjölda prófa á ári!
Og enn versnar í því og ég læt það bara flakka.
Pétur Alan Guðmundsson er í stjórn HRFI því miður. Þar var hann kosinn inn í vor en ekki á eigin verðleikum, þar að segja kosningin var ekki hlutlaus. Hann gerði eins og hann hefur alltaf gert þegar kemur að kosningum þar sem hann býður sig fram og smalar eins og enginn sé morgundagurinn. Hann vissi að kynningin hans á heimasíðu HRFI dugði ekki til þó aðrir frambjóðendur hefðu látið það duga. Það var ótrúlegt að sjá öftustu raðirnar á aðalfundinum, það þurfti engann starðfræðing til að átta sig á hvers vegna þetta fólk var mætt á aðalfundinn. Fólk sem ekki hefur sést á aðalfundum frá því það gekk í félagið. Og um leið og kosningu var lokið tæmdist þetta fólk sem sat aftast og var bara komið til að kjósa Pétur Alan. Þetta fólk hafði ekki áhuga á HRFI fyrir fimmaura, þessu fólki var alveg sama hvað við vildum sem erum í þessu af lífi og sál og viljum hundum það sem þeim er fyrir bestu.
Nei þetta fólk gat ekki einu sinni sýnt fundinum þá virðingu að sitja út fundinn!
En eins og við vitum öll er það Péturs stíll að sitja aftast, hann getur ekki setið annarsstaðar því hann veit hvað þorri virkra félagsmanna hugsar um hann !
Og af því ég er byrjaður er eins gott að halda áfram.
Af hverju heimtar Pétur Alan að fá að hitta alla fuglahundadómara sem koma til landsins, hver skildi sá tilgangur vera?
Ég átta mig ekki á tilgangnum frekar en margir aðrir, hann skýlir sér með því að íslensku dómararnir eigi allir að fá að hitta dómarana. Hvar eru mörkin spyr ég bara, ef þeir íslensku væru 100 talsins yrður þeir þá allir að hitta þá erlendu? Eða eru aðrir hagsmunir að baki hjá Pétri?
Nú ætla ég að tala um Áfangafellsprófið örstutt. Þar fékk hundur Péturs úr hans eigin ræktun 1.einkunn þrátt fyrir að elta út í eitt! Bæ ðe vei, til hamingju með það Pétur. Næsta sem maður sér er mynd af Pétri úti að borða með dómaranum! Nú er ég ekki að segja að hundurinn hafi ekki átt einkunnina skilið en hitt hefði verið trúverðugra, ertu ekki sammála því?
En höldum áfram og ræðum síðustu sýningu HRFI.
Fljótlega eftir að Vorsteh-hundarnir fengu sína dóma sást hvar Pétur Alan var fyrir utan sýningarhúsið. Fljótlega eftir að Pétur kom útfyrir sést hvar dómarinn sem dæmdi Vorsteh kom einnig útfyrir og það var engu líkara en að gamlir síamstvíburar sem höfðu verið aðskildir í æsku væru að hittas aftur í fyrsta sinn. Það var alveg klárt að þeir tveir voru ekki að hittast í fyrsta sinn! Ætla ekki að hafa eftir hvað dómarinn sagði meðal annars!
Ryfjar það upp fyrir mér hér í denn þegar sú ágæta kona Jóna Th Viðarsdóttir fyrrverandi formaður HRFI var að sýna Írsk Setter hundana sína. Þeir unnu oft grúppuna og var þá Pétur Alan fremstur í flokki að gagnrýna Jónu fyrir að umgangast dómarana fyrir sýningar, fara út að borða með þeim og svo fr.og mæta svo með hunda í dóm hjá þeim. Þetta fannst Pétir algjörlega siðlaust og ætti aldrei að eiga sér stað.
Pétur, ert þú ekki í stjórn HRFI í dag og ertu búinn að skipta um skoðun, klíkuskapur er í lagi meðan þú ert í klíkunni?
Og svo ef við skoðun úrslit sýningar hjá Vorsteh þá eru þetta einu mestu frávikadómar sem ég hef orðið vitni að. Að óstálpaðir unghundar vinni hunda sem virðast vera af annari tegund svo miklir eru yfirburðir þeirra að margsannað er með eindæmum. Það verður gaman að fylgjast með í framtíðinni!
Það getur vel verið að þeir verði góðir fulltrúar sinnar tegundar í framtíðinni með meiri þroska, en hann var langt í frá kominn á síðustu sýningu, sorry!
Tek sérstaklega fram við eigendur Veiðmelahundanna að þetta er alls ekki illa meint. Það getur vel verið að þegar þeir hafa tekið út fullan þroska að þeir verði svo sannarlega verðugir fulltrúar sinnar tegundar á sýningum og væri það bara gaman. En þeir voru það ekki á síðustu sýningu að mínu mati og meira að segja annara sem eiga aðrar tegundir. En þeir eru svo sannarlega ekkert síðri hundar, síður en svo, þeirra rétti tími er bara ekki kominn.
Og svo að lokum síðasta próf sem haldið var á vegum Vorsteh-deildar. Að sjálfsögðu varð Pétur að hitta þá dómara eins og alla aðra dómara sem hingað koma. Pétur mætti svo í próf með hundinn sinn á laugardeginum í unghundaflokk. Ekki veit ég hvernig Pétur fór að því en ég var inni í Sólheimakoti þar sem báðir dómararnir sátu fremst. Ég tók ekki eftir því að annar dómarinn hvarf enda ekkert að spá því. En svo skrapp ég sjálfur út fyrir tilviljun og það sem ég sé þar var með ólíkyndum. Er ekki Pétur Alan mættur á svæði og var að sýna dómaranum hundinn sinn í bílnum. Þeim sama dómara og átti að dæma hann nokkrum mínútum síðar og eins og í fyrra dæmi fór ekki illa á með þeim. Nei það var eins og þeir væru æsku vinir.
En hvernig vissi dómarinn að Pétur var mættur á svæðið, sendi Pétur kannski sms?
Ekki fékk hundurinn einkunn þennan daginn en sérstaklega var samt minnst á hann í lok prófs hversu flottur hann væri.
Ekki ætla ég að þræta fyrir það enda ekki séð hundinn ............. en mikið hefði verið meira að marka það ef Pétur hefði ekki verið að nudda sér utan í dómarann rétt fyrir próf. En Pétur var reyndar svo koggý við setningu prófs að hann var eini maðurinn sem sussa þurfti á svo allir gætu heyrt í dómurunum, ekki bara einu sinni heldur tvisvar!
Það getur vel verið að ég sé aggresífur í þessu bloggi, en ég lýg engu frekar en fyrri daginn
Pétur Alan, Svafar Ragnarsson, Egill Bergmann og Ólafur E (Siggi Benni) ef þið hættið öllum afskiptum af okkur og okkar sporti þá mögulega eigum við séns. Það getur vel verið að þið hafið stuðning hjá einstaka nýliðum sem ekki eru nægilega vel áttaðir sem og óvirkri margklofinni stjórn FHD. En meginþorri fólks sem er virkt sem og þeirra sem hrakist hafa frá ykkar vegna vilja ykkur í burt. Þið hljótið að vera farnir að sjá það sjálfir.
Læt fylgja tvær myndir hér að lokum. Eina mynd af kommenti frá Ólafi E frá í gær sem er eins og svo oft áður að gera lítið úr öðrum. Hans sjálfsvirðing nær bara ekki lengra en það ...... talandi um gáfnaljós. Allt í lagi að setja út á fólk og embætti með rökstuðningi en svona komment dæma sig sjálf. En takið eftir seinni myndinni, það er hverjir setja like á skítinn ............
Já honum var víst hent út af Ensk Setter síðunni fyrir nokkru síðan fyrir skítakomment.
Lesandi góður, ertu enn á þeirri skoðun ef þú lítur inn á við og svarar bara þér sjálfum ............... eru þessir menn hæfir?
Að lokum.
Allt einræði endar, bara spurning hvenær. Hver hefði trúað því fyrir 30.árum að í austur þýskalandi ætti eftir að verða lýðræði. Hvað voru margir skotnir sem reyndu að komast yfir vegginn fram að því. Allt of magir !