Ég verð að þakka ykkur kæru vinir fyrir þann frábæra stuðning sem ég hef fengið frá ykkur í þeirri eyðimerkurgöngu sem ég hóf fyrir nokkrum árum. Gönguna byrjaði ég til þess að berjast gegn ótrúlegri klíkustarfsemi og flokkadráttum í fuglahundasportinu, réttlætiskennd mín leyfði ekki annað. Fyrstu skrefin virtist ég vera einn í eyðimörkinni.
En eftir því sem ég gekk lengra fór ég að hitta á vini hér og þar. Nú hef ég gengið mjög lengi og farið um langan veg og má segja að ég sé umlukinn trjám (vinum) sem standa á föstum og traustum rótum. Einnig hafa margir sem ekkert vildu með mig hafa í byrjun og börðust jafnvel gegn mínum málstað bæst í hópinn.
Þessi tré eru af öllum gerðum og stöðugt bætist við. Ég hef fengið fullt af stuðningsyfirlýsingum frá ykkur, bæði í tölvupósti, símtölum og opinberlega á internetinu. Ég hef fengið fullt af upplýsingum frá ykkur þar sem þið bendið mér á þegar ykkur ofbýður, ég kem því svo áfram hér í bloggi mínu. Já ekki veit ég allt og get ekki verið allstaðar þannig að ykkar upplýsingar í gegnum árin hafa verið ómetanlegar.
Nú er svo komið að við erum orðin fylking, fylking sem vill hafa málin eins og þau eiga að vera. Engan klíkuskap og óeðlilegar ívilnanir. Við viljum hlutleysi og heilbrigt umhverfi sem allir geta tekið þátt í. Ég hef oft sagt í gegnum árin að ef einungis 5% af því sem ég hef skrifað um væri rétt er full ástæða til að hreinsa til.
En við göngum árfam með okkar réttlætiskennd í frontinn og klárum málið, við og hundarnir okkkar eigum það skilið. Því miður er eina leiðin til að hafa þetta sem hlutlausast og eðlilegast að nota engöngu erlenda dómara. Ég sé fyrir mér þrjú þriggja daga próf að vori og tvö þriggja daga próf á haustin. Aðeins þá geta deildirnar starfað eðlilega og án allra afskipta frá þeim mönnum sem í raun hafa eyðilagt fyrir okkur það sem okkur er kærast. Hvaða leyfi hafa þeir til þess og hvar fengu þeir það leyfi? Og það besta er að þá geta þessir aðilar einnig tekið þátt á sama grundvelli og við hin.
Ísland er bara of lítið til að dómarar og þeir sem standa að málum geti verið hlutlausir. Allt of margir hafa hrakist frá vegna starfa þessara manna og fleiri munu bætast við ef fram heldur sem horfir.
En við höldum ótrauð áfram með þá von í brósti að hægt sé að breyta þessu til hins betra.
Set inn eina mynd af heimsóknartölum á bloggið mitt. Það eru ótrúlega margar heimsóknir og myndu mörg fyrirtæki vera stolt ef þau fengju slíkar heimsóknir að meðaltali á dag. Það er varla neinn dagur undir 100 heimsóknum og þegar ég blogga rýkur talan upp.
Og vegna bloggsins hafa margir sem ekki einu sinni eiga hund sent mér mail og spurt hvort þetta sé virkilega svona og af hverju ekkert sé gert. Þetta yrði ekki liðið í neinum félagasamtökum öðrum!
En takk enn og aftur fyrir allan stuðninginn. Ég mun halda áfram að blogga og er hellingur sem bíður í pípunum .............. eiginlega allt of mikið þar sem ég hef haft lítinn tíma undanfarið.
Klikka á mynd til að stækka